Glæpahringur sem svindlaði á túristum upprættur Spænska lögreglan handtók 29 manns í vikunni sem hafa stundað að leigja útlendum ferðamönnum íbúðir til lengri og skemmri tíma. Fólkið greiðir leiguna fyrir fram og svo grípur það í tómt þegar það kemur til Spánar. 10.4.2023 16:00
Fimmtíu ár liðin frá andláti Pablo Picasso Þess er minnst á Spáni í dag, og reyndar víðar, að hálf öld er liðin frá andláti Pablo Picasso, mesta listmálara Spánar á 20. öldinni. Verk hans seljast sem aldrei fyrr en þó hefur fallið á glansmyndina eftir að ofbeldisfull samskipti hans við konur komust í hámæli. 8.4.2023 14:28
Assange var svikinn í hendur bandarísku leyniþjónustunnar Julian Assange, stofnandi Wikileaks, var svikinn í hendur bandarísku leyniþjónustunnar af fyrirtækinu sem hafði tekið að sér að gæta öryggis hans í sendiráði Ekvador í Lundúnum. Spænska dagblaðið El País hefur upptökur og pósta sem sýna svikin með óyggjandi hætti. 2.4.2023 23:58
„Viðkvæmir lesendur“ breyta Agöthu Christie Viðamiklar breytingar verða gerðar á bókum Agöthu Christie á næstu misserum. Flest orð sem vísa til kynþáttar sögupersóna verða fjarlægð sem og persónulýsingar sem teljast niðrandi. Fólk sem skilgreinir sig sem viðkvæma lesendur fer yfir texta bókanna. 1.4.2023 15:31
Æ fleiri karlar pissa sitjandi Æ fleiri karlar hafa þvaglát sitjandi og virðist sem þeim hafi fjölgað sérstaklega í Covid-faraldrinum. Í Þýskalandi geta menn orðið fyrir því á almenningssalernum að Angela Merkel skipi pissandi körlum að setjast á klósettið. 26.3.2023 14:30
UEFA rannsakar meinta spillingu og mútugreiðslur Barcelona Knattspyrnusamband Evrópu hefur hafið rannsókn á meintri spillingu og mútugreiðslum knattspyrnufélagsins Barcelona. Félagið hefur verið ákært fyrir að hafa greitt valdamiklum dómara andvirði 1.000 milljóna íslenskra króna til að tryggja sér hagstæða dómgæslu á 17 ára tímabili. 25.3.2023 14:30
Grísk lögregla rænir og misþyrmir hælisleitendum kerfisbundið Gríska lögreglan misþyrmir og rænir flóttafólk með skipulögðum hætti. Hún hefur á síðustu árum stolið meira en tveimur milljónum evra af fólkinu. Grísk stjórnvöld hafa ennfremur flutt meira en 20.000 flóttamenn yfir til Tyrklands með ólögmætum hætti. 19.3.2023 14:31
Telur sig loks hafa fundið móður Leonardos Da Vinci Ítalskur sagnfræðingur hefur leyst meira en 500 ára ráðgátu um hver var móðir endurreisnarmálarans Leonardos Da Vinci. Hún var prinsessa og þræll sem rænt var frá heimkynnum sínum í barnæsku. 18.3.2023 14:30
Tekist á um dánarbú Leonards Cohen Einkaerfingjar kanadíska ljóðskáldsins og tónlistarmannsins Leonards Cohen saka umboðsmann söngvarans um að reyna að ræna dánarbúinu innan frá. Dánarbúið er metið á tæpar 50 milljónir dala og þessa dagana er tekist á um það fyrir dómstólum í Los Angeles. 16.3.2023 14:01
Mörg ríki Bandaríkjanna hyggjast banna dragsýningar Stjórnvöld í Tennesse í Bandaríkjunum hafa samþykkt lög sem banna dragsýningar. 10 ríki til viðbótar hafa lagt fram lagafrumvarp í svipuðum anda. 13.3.2023 14:30
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent