Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta „Þegar 13 þúsund manns skrifa undir svona áskorun þá verða stjórnvöld auðvitað að hlusta.“ Þetta sagði umhverfisráðherra eftir fund með andstæðingum sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Þeir segjast vona að það verði forgangsmál stjórnvalda að koma í veg fyrir að sjókvíaeldið verði að veruleika. 12.10.2026 13:52
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Seðlabankastjóri segir innlendar hækkanir á þjónustu og launum hafa mest áhrif á verðbólguna núna. Stýrivextir séu biturt meðal og ekki með glöðu geði sem þeim er beitt. Það sé rétt hjá verkalýðshreyfingunni að stýrivextir leggist misjafnlega á ólíka hópa en staðan sé að einhverju leyti afleiðing af þeirra eigin gjörðum. Rangar ákvarðanir hafi mögulega verið teknar í Seðlabankanum sem í raun reyni að reka velferðarstefnu. 12.10.2026 07:00
Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum Mótmæli gegn sjókvíaeldi Kaldavíkur á Seyðisfirði fara samtímis fram þar og á Austurvelli í dag. Lögmaður segir stefna í fjölmenna fundi enda mikið hitamál fyrir austan og telur hún mikla annmarka á leyfisveitingum. 11.10.2026 12:00
Opið hús í Höfða í dag Landsmönnum gefst kostur á að skoða hið sögumerka hús Höfða í Reykjavík í dag en þar er búið að koma fyrir söguhorni. Tilefnið er friðarvika á vegum Reykjavíkurborgar. 10.10.2026 13:11
Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu. 7.10.2026 12:09
Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun. Formaður VR segir samtalið efnismeira en áður þó að enn sé talsverð gjá á milli og hætta á að samningar falli. Ögurstund er í kjaramálum. 6.10.2026 12:11
SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og Fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif. 5.10.2026 13:34
Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Fjármálaráðherra segir það valda áhyggjum hvað virðing og traust til Alþingis Íslendinga sé lítið. Gera þurfi breytingar á þingsköpum en passa upp á minnihlutaverndina. 4.10.2026 14:49
„Okkur finnst við vera undanskilin“ Sú staðreynd að Austurland leggi meira til ríkissjóðs en það fær til baka sýnir með skýrum hætti hversu mikilvægt atvinnulíf og verðmætasköpun á svæðinu er. Því þurfi ríkið að fjárfesta í þeim innviðum sem gera fólki og fyrirtækjum kleift að búa og starfa á svæðinu. Þetta segir formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. 3.10.2026 15:55
Geri málið tortryggilegt að neita að svara Almannatengill og ráðgjafi segir framkomu formanns Flokks fólksins í umdeildu fréttamáli óvenjulega. Það geri málið tortryggilegt að neita að svara fréttamönnum auk þess sem það sé vanvirðing við fjölmiðla og þjóðina að segjast ekki hafa tíma til að ræða stórt fréttamál á sama tíma og formaðurinn veiti ítarlegt viðtal um tísku. 2.10.2026 13:00