Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Sautján greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Enn eru flestir sem greinast smitaðir tengdir hópsýkingum og þá sérstaklega þeirri sem kom upp í leikskólanum Jörfa. 24.4.2021 11:33
Viðbúið að gas berist yfir byggð á Reykjanesskaga í dag Viðbúið er að gasmengun frá eldstöðvunum við Fagradalsfjall muni leggja yfir byggð á norðvestanverðum Reykjanesskaga í dag. Í nótt snýst vindur fyrst til suðvesturs og síðan norðvesturs og dreifist gasmengun þá til austurs í fyrstu og gæti náð til höfuðborgarsvæðisins í fyrramálið. 24.4.2021 09:44
Veik von um að kafbáturinn finnist í tæka tíð Dvínandi líkur eru taldar á því að kafbátur indónesíska sjóhersins, sem hvarf úti fyrir ströndum Balí, finnist í tæka tíð svo unnt sé að bjarga áhöfninni áður en súrefni verður á þrotum. 53 eru í áhöfninni en áætlað er að súrefni verði á þrotum nú að morgni laugardags að staðartíma. 24.4.2021 08:41
Natan Dagur áfram í næstu umferð eftir stórbrotinn flutning á lagi Rihönnu Natan Dagur Benediktsson er kominn áfram í sextán manna úrslit í norsku útgáfunni af sjónvarpsþáttunum Voice. Natan Dagur flutti lagið Stay með Rihönnu með glæsibrag í 32 manna úrslitunum sem fram fóru í gær en þetta var í þriðja sinn sem Natan Dagur steig á svið í þáttunum en flutning hans má sjá í spilaranum hér að neðan. 24.4.2021 07:51
Átti að vera í sóttkví en hundsaði öll fyrirmæli Lögregla kannaði ástand veitingastaða í miðborg Reykjavíkur í gær með tilliti til sóttvarna og þess hvort gestir væru skráðir samkvæmt reglum. Víðast hvar var reglum um sóttvarnir og skráningu gesta fullnægt en fengu starfsmenn á tveimur veitingastöðum tiltal varðandi hvað betur mætti fara. 24.4.2021 07:30
„Ég er ekki búin að geta opnað munninn í þrjá mánuði“ Lembi Seia Sangla, aðstoðarleikskólastjóri á Egilsstöðum, er algjörlega ráðþrota og langþreytt eftir að hún lenti í því fyrir nokkrum mánuðum, eftir að dregin var úr henni tönn, að geta ekki lengur opnað munninn. Hún þjáist af heilkenni sem kallast trismus sem lýsir sér þannig að viðkomandi festist í kjálkanum og getur ekki opnað munninn nema takmarkað. Þar að auki er hún mjög bólgin í andliti og er misslæm milli daga. 22.4.2021 21:01
Daníel vill annað sæti á lista VG í Reykjavík Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ´78, sækist eftir 2. sæti á lista Vinstri grænna í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna fyrir komandi Alþingiskosningar. Daníel er 31 árs, alinn upp í Þorlákshöfn en hefur búið á höfuðborgarsvæðinu frá því hann var um tvítugt. 22.4.2021 14:50
Varð ófrísk að öðru barni á meðan hún var þegar ólétt af því fyrsta Kona nokkur í Bretlandi, hin 39 ára Rebecca Roberts, varð ófrísk að öðru barni á meðan hún gekk með annað. Hún og eiginmaður hennar, Rhys Weaver sem er fjórum árum eldri, höfðu reynt árangurslaust í rúmt ár að eignast barn þegar það loksins tókst og rúmlega það. Getnaður varð ekki einu sinni heldur tvisvar með þriggja vikna millibili. 22.4.2021 14:39
„Aldrei verið eins lítil ástæða til að veita lagastoð jafnmikilli valdbeitingu“ Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var önnur þeirra tveggja þingmanna sem ekki studdu frumvarp heilbrigðisráðherra um sóttvarnarhús og ráðstafanir á landamærum. Hún segir aldrei hafa verið eins litla ástæðu til að veita jafnmikilli valdbeitingu á landamærunum lagastoð. 22.4.2021 14:15
Hefði viljað ganga lengra til að „stoppa lekann á landamærum“ Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður velferðarnefndar, segir miður að ekki hafi verið gengið lengra í frumvarpi sem samþykkt var á Alþingi í nótt við að veita sóttvarnayfirvöldum heimild til að „stöðva lekann á landamærum.“ Hún telur ósamstöðu innan ríkisstjórnarinnar um að kenna. 22.4.2021 11:38