Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar í kjaradeilu aðilanna klukkan sjö annað kvöld. 3.6.2026 10:55
Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Flugmenn Air Atlanta hafa tvívegis fellt nýjan kjarasamning í atkvæðagreiðslu. Í samningnum sem felldur var síðast áttu launin að hækka samkvæmt kjarasamningsbundinni hækkun stöðugleikasamkomulags á almennum vinnumarkaði. Sú hækkun nemur um 3,5% á ári hverju yfir samningstímann. 2.6.2026 11:13
Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Ekki hefur enn verið boðað til fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Síðasti fundur var á föstudag. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir þó samtöl í gangi milli deiluaðila um áframhaldandi viðræður. Ef tækist að koma á fundi yrði hann mögulega haldinn þegar líður á vikuna. 2.6.2026 09:55
Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost „Ég deili vissulega áhyggjum af þeirri stöðu sem er uppi hjá Icelandair og erfiðum horfum hjá félaginu framundan, sbr. umfjöllun í fjölmiðlum undanfarna daga,” segir Davíð Rúdólfsson, framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Gildis, sem er næststærsti hluthafi flugfélagsins Icelandair. 1.6.2026 15:33
Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Flugmenn hafa lagt til svokallaða fleytilausn í kjaradeilunni við Icelandair sem hefur ekki náð flugi í samningaviðræðunum. Markmiðið væri að skapa til friðar meðan á sumarvertíð Icelandair stendur. 1.6.2026 11:52
Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Fundi samninganefnda Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjá ríkissáttasemjara lauk í dag án þess að boðað væri til nýs fundar. Samkvæmt upplýsingum frá ríkissáttasemjara verður ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina. 29.5.2026 17:56
Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Enn ber talsvert á milli Icelandair og flugmanna í kjaradeilu félaganna. Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan ellefu í morgun. Icelandair hefur aflýst fimm áætlunarferðum í vikunni vegna mönnunarvanda, þar af tveimur í dag. 29.5.2026 12:02
Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Kaleo snýr aftur heim í sumar eftir að hafa spilað á stórum sviðum víða um heim og orðið ein þekktasta íslenska rokksveit síðari ára. Hljómsveitin segir tónleikana Bergmál á Þingvöllum í sumar þó vera í sérflokki. 28.5.2026 16:40
Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Skúli Mogensen, stofnandi WOW air, segir vandamál Icelandair ekki aðeins felast í núverandi samningum við flugmenn heldur í grunnrekstri félagsins, flóknum flugflota og skorti á skýrri stefnu. Hann telur að félagið þurfi að einfalda reksturinn, selja einingar utan kjarnastarfsemi og nota andvirðið til að endurnýja flugflotann. 28.5.2026 11:17
Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir Sjálfstæðisflokkinn hafa fórnað sögulegu tækifæri til að breyta stefnu Reykjavíkurborgar í nafni starfsfriðar og stöðugleika. 27.5.2026 15:34
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent