Hæstiréttur fellst á að taka fyrir mál Jóns Ársæls Hæstiréttur hefur fallist á að taka fyrir mál fjölmiðlamannsins Jóns Ársæls Þórðarsonar sem dæmdur var í Landsrétti til að greiða konu, sem hann tók viðtal við í sjónvarpsþáttunum Paradísarheimt og sýndir voru í Ríkissjónvarpinu, 800 þúsund krónur í miskabætur og þrjár milljónir króna í málskostnað. 10.6.2022 08:09
Ferðamönnum í pakkaferðum nú hleypt inn í landið Stjórnvöld í Japan hafa nú létt á takmörkunum fyrir erlenda ferðamenn og byrjað að staðfesta vegabréfsáritanir á nýjan leik. Það á þó einungis við ferðamenn í pakkaferðum og sem samþykkja að fylgja stífum reglum landsins um grímuskyldu og aðrar sóttvarnaaðgerðir. 10.6.2022 07:45
Leifar af hvassviðri gærdagsins enn með suðurströnd landsins Leifar af hvassviðri gærdagsins eru enn með suðurströnd landsins og eru gular viðvaranir í gildi þar fram á eftirmiðdag, til klukkan 14 á Suðurlandi og klukkan 16 á Suðausturlandi. 10.6.2022 07:15
Running Tide semur um uppbyggingu á Akranesi Bandaríska loftslagsfyrirtækið Running Tide hefur undirritað samning við Breið - þróunarfélag og Brim hf. um leigu húsnæðis á Akranesi undir aðstöðu fyrir rannsóknir og framleiðslu á þörungum til kolefnisbindingar í hafi. 9.6.2022 15:08
Hættir hjá Strætó og hefur störf hjá Tvist Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, hefur verið ráðinn sem hugmynda- og textasmiður og ráðgjafi í almannatengslum hjá auglýsingastofunni Tvist. 9.6.2022 14:31
Opna hótel í sögufrægu húsi á Siglufirði Keahótel hafa opnað nýtt gistihús á Siglufirði, Salt, sem staðsett er í sögufrægu húsi sem áður hýsti Hótel Hvanneyri og var fyrst starfrækt árið 1934. 9.6.2022 14:18
Bein útsending: Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 „Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030: Losun, Markmið og aðgerðir“ er yfirskrift fundar sem Byggjum grænni framtíð, samstarfsvettvangur stjórnvalda og atvinnulífs um vistvæna mannvirkjagerð, stendur fyrir og hefst klukkan 14 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilara að neðan. 9.6.2022 13:31
Klassískir söngvarar vilja að fjárveitingar til Íslensku óperunnar verði stöðvaðar Fagfélag klassískra söngvara á Íslandi, Klassís, hefur skorað á Lilju Dögg Alfreðsdóttur, ráðherra menningarmála, að stöðva fjárveitingar til Íslensku óperunnar og ítreka vantraust sitt á stjórn og óperustjóranum Steinunni Birnu Ragnarsdóttur. 9.6.2022 13:05
Fyrstu tilfelli apabólu líklega verið greind á Íslandi Tveir karlmenn á miðjum aldri greindust með apabólu á fyrsta prófi hér á landi í gær. 9.6.2022 11:11
Sóttu jólastyttu fulla af kókaíni á pósthúsið á Stórhöfða Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnainnflutnings þar sem þeir sóttu pakka á pósthús þar sem í var jólastytta með um kíló af kókaíni innan í. 9.6.2022 08:08