Miklar breytingar hjá Motus Fjórir nýir stjórnendur hafi komið til starfa hjá Motus á sviði upplýsingatækni, innheimtu, samskipta og viðskiptastýringar. Þau eru Bjarki Snær Bragason, Eva Dögg Guðmundsdóttir, Magnea Árnadóttir og Sigríður Laufey Jónsdóttir. Klinkið 25. janúar 2022 11:41
Ragnhildur Steinunn breytir til hjá RÚV Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir hefur sagt upp sem aðstoðardagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV. Hún segist ætla að snúa sér aftur að dagskrárgerðinni. Innlent 24. janúar 2022 14:18
Auður ráðin gæðastjóri Distica Auður Aðalbjarnardóttir hefur verið ráðin gæðastjóri eða faglegur forstöðumaður hjá Distica. Hún tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Viðskipti innlent 24. janúar 2022 07:30
Tryggvi Þór lætur af störfum sem forstjóri RARIK Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK ohf. hefur óskað eftir því að láta af störfum. Hann verður þó áfram starfsmaður RARIK og starfa sem ráðgjafi stjórnar og nýs forstjóra og enn fremur í sérstökum verkefnum. Viðskipti innlent 21. janúar 2022 11:00
Berglind aðstoðar Svandísi í fjarveru Iðunnar Berglind Häsler, samskipta- og viðburðastjóri Vinstri grænna, mun leysa Iðunni Garðarsdóttur af sem aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Iðunn fer nú í árs barneignarleyfi og hefur Berglind störf 14. febrúar næstkomandi. Kári Gautason er hinn aðstoðarmaður Svandísar. Innlent 21. janúar 2022 09:20
Guðrún Ágústa og Ólafur nýir aðstoðarmenn Guðmundar Inga Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, hefur ráðið Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur og Ólaf Elínarson sem aðstoðarmenn sína. Innlent 19. janúar 2022 10:29
Hættir hjá Landsbankanum og fer til Arctica Finance Sveinn Þórarinsson, sem hefur verið helsti hlutabréfagreinandi Landsbankans á undanförnum árum, hefur hætt störfum hjá bankanum og ráðið sig til Arctica Finance. Klinkið 18. janúar 2022 15:47
Ólafur Teitur stýrir samskipta- og kynningarmálum Carbfix Ólafur Teitur Guðnason hefur verið ráðinn til að stýra samskiptum og kynningarmálum Carbfix. Viðskipti innlent 18. janúar 2022 13:47
Ólafur Teitur til Carbfix Ólafur Teitur Guðnason, fyrrverandi aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, mun hefja störf hjá fyrirtækinu Carbfix í mars. Klinkið 18. janúar 2022 10:31
Þórdís Anna komin í stjórn Arctic Adventures Þórdís Anna Oddsdóttir hefur tekið sæti í stjórn Arctic Adventures en hún kemur í stað Grétu Maríu Grétarsdóttur sem var nýlega ráðin forstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins. Klinkið 14. janúar 2022 20:01
Unnur Brá og Steinar Ingi til Guðlaugs Þórs Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis, og Steinar Ingi Kolbeins varaformaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna eru sögð munu aðstoða Guðlaug Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra á kjörtímabilinu. Klinkið 13. janúar 2022 13:37
Þuríður Helga hættir hjá Menningarfélagi Akureyrar Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdarstjóri Menningarfélags Akureyrar, hefur sagt starfi sínu lausu. Hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri félagsins í sex ár. Menning 13. janúar 2022 13:23
Helgi Seljan frá RÚV á Stundina: „Veitir mér leyfi til að svara fyrir mig“ Fréttamaðurinn Helgi Seljan hefur sagt upp störfum hjá RÚV. Helgi, sem hefur starfað á miðlinum frá árinu 2006, hefur verið í leyfi frá störfum og hyggst ekki snúa aftur. Hann tekur við sem rannsóknarritstjóri Stundarinnar þann 15. febrúar. Innlent 13. janúar 2022 13:15
Skipaður skrifstofustjóri kjara- og mannauðssýslu ríkisins Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að skipa Jökul Heiðdal Úlfsson í embætti skrifstofustjóra kjara- og mannauðssýslu ríkisins, sem fer með vinnuveitendahlutverk fyrir ríkið í heild. Skipunin er til fimm ára. Viðskipti innlent 13. janúar 2022 11:10
Jón Friðrik tekur við af Sigmari sem framkvæmdastjóri Hlöllabáta Jón Friðrik Þorgrímsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Hlöllabáta ehf. Hann tekur við stöðunni af Sigmari Vilhjálmssyni. Hlöllabátar reka samnefnda keðju ásamt veitingastaðnum Barion í Mosfellsbæ. Viðskipti innlent 12. janúar 2022 13:29
Pálmi Rafn ráðinn íþróttastjóri KR Pálmi Rafn Pálmason, leikmaður fótboltaliðs KR, hefur verið ráðinn íþróttastjóri félagsins. Íslenski boltinn 11. janúar 2022 17:01
Grétar Rafn ráðinn til KSÍ Knattspyrnusamband Íslands hefur ráðið Grétar Rafn Steinsson sem tæknilegan ráðgjafa knattspyrnusviðs. Ráðningin er til sex mánaða. Íslenski boltinn 11. janúar 2022 16:15
Tryggvi Másson verður framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokkins Tryggvi Másson verður nýr framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðismanna, samkvæmt heimildum Innherja. Hann tekur við starfinu af Sigurbirni Ingimundarsyni. Klinkið 9. janúar 2022 12:22
Umdeildur skopmyndateiknari Moggans hverfur á braut Helgi Sig. hefur starfað sem skopmyndateiknari Morgunblaðsins nú í rúman áratug. Teikningar hans hafa reynst afar umdeildar og nú hefur hann sagt gott og er hættur. Innlent 7. janúar 2022 17:03
Tveir nýir framkvæmdastjórar hjá Icelandair Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þjónustu og markaðsmála hjá Icelandair Group. Einnig hefur Rakel Óttarsdóttir verið ráðin í starf framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá félaginu. Viðskipti innlent 7. janúar 2022 14:14
Sylvía hættir hjá Origo Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo, hefur ákveðið að láta af störfum hjá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 7. janúar 2022 13:50
Jón Trausti tekur við vatns- og fráveitu Veitna Jón Trausti Kárason hefur verið ráðinn forstöðumaður vatns- og fráveitu hjá Veitum. Viðskipti innlent 7. janúar 2022 11:15
Maríanna ráðin leiðtogi breytinga hjá Landsneti Maríanna Magnúsdóttir hefur verið ráðin leiðtogi breytinga hjá Landsneti. Viðskipti innlent 7. janúar 2022 10:49
Ráðin mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar Kristín Sigrún Guðmundsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar. Viðskipti innlent 7. janúar 2022 08:50
Marta Rós, Sigurður Ingi og Sólveig nýir stjórnendur hjá Orkustofnun Marta Rós Karlsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri sjálfbærrar auðlindanýtingar hjá Orkustofnun, Sigurður Ingi Friðleifsson sviðsstjóri loftslagsmála, orkuskipta og nýsköpunar og Sólveig Skaptadóttir samskiptastjóri stafrænnar miðlunar. Viðskipti innlent 6. janúar 2022 16:25
Linda Dröfn kemur í stað Viðars Linda Dröfn Gunnarsdóttir hefur verið ráðin tímabundið í starf framkvæmdastjóra Eflingar og hóf störf þann 13. desember síðastliðinn. Innlent 6. janúar 2022 15:37
Ágúst ráðinn sérfræðingur í forvörnum hjá Verði Ágúst Mogensen hefur verið ráðinn í nýtt starf sérfræðings í forvörnum hjá tryggingafélaginu Verði. Viðskipti innlent 6. janúar 2022 11:28
Jón Arnór Stefánsson ráðinn til Fossa markaða Jón Arnór Stefánsson, sem var besti körfuknattsleiksmaður Íslands um langt árabil, hefur haslað sér völl á nýjum starfsvettvangi og verið ráðinn til verðbréfafyrirtækisins Fossa markaða. Innherji 5. janúar 2022 18:07
Sigríður frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins til Landsbankans Sigríður Guðmundsdóttir hefur verið ráðin til starfa sem mannauðsstjóri Landsbankans. Hún tekur við af Baldri Gísla Jónssyni í byrjun febrúar en hann hefur gegnt stöðunni undanfarin ellefu ár. Viðskipti innlent 5. janúar 2022 10:52
Sigríður tekur við af Baldri sem mannauðsstjóri Landsbankans Sigríður Guðmundsdóttir, sem hefur meðal annars starfað um árabil sem fræðslu- og mannauðsstóri hjá Eimskip, hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans. Klinkið 5. janúar 2022 09:15