Vonar að hreinsunarstarfi ljúki að mestu í dag Hreinsunarstarf er hafið á Austurlandi eftir óveðrið sem gekk yfir landið í vikunni. Mikill liðsauki hefur borist á Stöðvarfjörð þar sem mikið verk er fyrir höndum. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir tjónið í plássinu mikið Innlent 7. febrúar 2025 13:09
Myndarlegir úrkomubakkar fara yfir landið Spár Veðurstofunnar gera ráð fyrir að nokkrir ágætlega myndarlegir úrkomubakkar fari yfir landið í dag. Áður en dagur er að kveldi komin megi því búast við að það hafi snjóað eða slyddað í flestum landshlutum. Veður 7. febrúar 2025 07:09
„Það getur enginn unnið við að laga neitt í svona veðri“ Veðrið hefur leikið íbúa á Stöðvarfirði grátt síðastliðinn sólarhring. Miklar skemmdir eru á húsum og bærinn allur á floti. Hallgrímskirkja slapp með skrekkinn þegar eldingu laust þar niður. Innlent 6. febrúar 2025 23:19
„Mjög stórt verkefni sem við fengum í fangið“ Almannavarnir starfa enn á hættustigi á Austfjörðum vegna óveðursins sem reið yfir landið í dag. Sviðsstjóri Almannavarna segir verkefnin undanfarin sólarhring hafa verið fjölbreytt og viðbragðsaðilar standi enn í verkefnum á Austfjörðum. Innlent 6. febrúar 2025 19:09
„Það er allt á floti“ Hús Ingibjargar Ómarsdóttur á Stöðvarfirði hefur komið illa út úr óveðrinu sem hefur gengið yfir landið síðustu tvo daga. Innlent 6. febrúar 2025 17:34
Hringvegurinn farinn í sundur á tveimur stöðum Flætt hefur yfir varnargarða og yfir hringveginn við Jökulsá í Lóni með þeim afleiðingum að vegurinn er farinn í sundur. Þá er hringvegurinn við Karlsstaðarvita í Berufirði einnig farinn í sundur. Innlent 6. febrúar 2025 17:26
Bandbrjálað veður á Stöðvarfirði og allir kallaðir til Rauðar viðvaranir eru í gildi víða um land. Mikið foktjón hefur orðið bæði á Austur- og Norðurlandi. Slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar segir nóttina þar hafa verið langa. Slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar segir stöðuna á Stöðvarfirði mjög slæma. Innlent 6. febrúar 2025 12:13
Nýja hurðin sprakk upp Talsverð hætta skapaðist á Siglufirði í nótt þegar þakplötur tveggja stórra iðnaðarhúsa losnuðu og fuku um bæinn. „Þetta var löng nótt,“ segir slökkviliðsstjórinn í Fjallabyggð. Innlent 6. febrúar 2025 10:36
Ekki stætt utandyra segir lögreglan á Austurlandi Veðrið á Austurlandi er víða afar slæmt og ekki stætt utandyra, segir í tilkynningu frá lögreglu. Vegfarendum gæti staðið hætta af lausamunum. Innlent 6. febrúar 2025 10:21
Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu: Verkefni björgunarsveita um 300 í gær Björgunarsveitir sinntu um 300 verkefnum í gær í veðurofsanum sem gekk yfir landið, þar af voru um 200 á höfuðborgarsvæðinu. Slökkvilið sinnti mörgum verkefnum vegna vatnstjóns. Viðbragðsaðilar eru í viðbragðsstöðu vegna næstu lægðar sem fer nú yfir landið. Rauðar og appelsínugular viðvaranir eru í gildi eða munu taka gildi um nær allt land. Veður 6. febrúar 2025 08:37
Truflanir víða og Holtavörðuheiði lokað Rauðar viðvaranir sem hófu að taka gildi ein af annarri frá klukkan 7 í morgun fara að detta úr gildi upp úr klukkan 13, fyrst á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi. Innlent 6. febrúar 2025 06:18
Létu rauða viðvörun ekki stoppa sig Þrátt fyrir rauða veðurviðvörun voru þónokkrir á ferð um miðbæ Reykjavíkur í dag. Ferðamenn í stuttu stoppi sem vildu ekki eyða deginum inni á hótelherbergi, fólk á leið heim úr vinnu og einn hlaupari sem þurfti að klára æfingu dagsins. Innlent 5. febrúar 2025 22:01
Óvenjulegt að allt landið sé undir Rauðar og appelsínugular veðurviðvaranir eru um allt land í kvöld og á morgun og hættustig almannavarna er í gildi. Margar tilkynningar um fok- og vatnstjón hafa borist viðbragðsaðilum. Óvissa er með skólastarf í höfuðborginni. Veður 5. febrúar 2025 20:13
Eldingar víða um land: Litlar sem engar skemmdir í Hallgrímskirkju Það hefur sést til þrumna og eldinga víða um land, til að mynda á höfuðborgarsvæðinu, í kvöld. Ein elding hafnaði í Hallgrímskirkjuturni. Veður 5. febrúar 2025 19:51
Lýsa yfir hættustigi almannavarna Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, Austurlandi, Vestmannaeyjum, Suðurlandi og Suðurnesjum lýsir yfir hættustigi Almannavarna vegna veðurs sem spáð er næsta sólarhringinn. Innlent 5. febrúar 2025 14:22
Vaktin: Aftakaveður gengur yfir landið Aftakaveður gengur yfir landið í dag. Rauðar og appelsínugular viðvaranir eru í gildi og er spáð hviðum upp í fimmtíu metra á sekúndu. Vísir fylgist með gangi mála í vaktinni og tekur við ábendingum og myndum á netfangið ritstjorn(hja)visir.is. Veður 5. febrúar 2025 13:27
Lýsa yfir óvissustigi Almannavarna vegna óveðursins Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, Vestfjörðum, Austurlandi, Vestmannaeyjum, Suðurlandi og Suðurnesjum lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna veðurs sem spáð er næsta sólarhringinn. Innlent 5. febrúar 2025 12:40
Skellur á með látum, versnar hratt og hviður jafnvel yfir 50 m/s Aftakaveður gengur yfir landið eftir hádegi, nær öllu millilandaflugi hefur verið aflýst og vegir í öllum landshlutum eru á óvissustigi. Veðurfræðingur segir óveðrið munu skella á með miklum látum og spáir hviðum upp undir fimmtíu metra á sekúndu. Foreldrar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að sækja börn sín í skólann. Innlent 5. febrúar 2025 12:06
Ólíklegt að hægt verði að opna Holtavörðuheiði í dag Veginum um Holtavörðuheiði var lokað í morgun vegna veðurs og flutningabíls og ólíklegt er sagt að hægt verði að opna hann í dag. Hellisheiði og Þrengsli voru opnuð aftur snemma í morgun en varað er við slæmu skyggni vegna skafrennings og éljagangs. Innlent 5. febrúar 2025 08:49
Fjöldi vega á óvissustigi vegna veðurs Hellisheiði og Þrengsli voru opnuð snemma í morgun en Vegagerðin varar við því að skyggni geti verið slæmt á svæðinu vegna skafrennings og éljagangs. Vegfarendur eru því beðnir um að fara afar varlega. Innlent 5. febrúar 2025 07:21
Appelsínugular viðvaranir taka gildi: Stormur og sums staðar ofsaveður Dýpkandi lægð suður af Hvarfi fer nú allhratt norðaustur í átt að landinu. Henni fylgir vaxandi sunnanátt eftir hádegi, þar sem mun hlýna og fara að rigna. Veður 5. febrúar 2025 07:12
Hellisheiðin lokuð Hellisheiðinni var lokað rétt fyrir klukkan níu í kvöld. Reykjanesbrautin er á óvissustigi. Innlent 4. febrúar 2025 21:03
„Mönnum verður hætta á að verða værukærir“ Aftakaveður er í kortunum á öllu landinu næstu daga og verulegar raskanir verða á flugsamgöngum. Björgunarsveitir hafa þegar hafið undirbúning vegna yfirvofandi óveðurs. Innlent 4. febrúar 2025 20:32
Foreldrar þurfi að vera tilbúnir að sækja börnin Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu til foreldra og forráðamanna barna á grunnskólaaldri vegna óveðursins sem er í kortunum, en appelsínugul viðvörun verður í gildi á morgun og hinn. Innlent 4. febrúar 2025 16:07
Tjón víða í Norðfirði eftir öfluga vindhviðu Skemmdir urðu á nokkrum stöðum á Norðfirði þegar hviða fór yfir bæinn sem mældist 54 metrar á sekúndu klukkan 9:14. Rúða brotnaði í dráttarvél á Kirkjubóli í Norðfjarðarsveit, sex metra grenitré brotnaði við Mýrargötu auk þess sem gróðurhús fauk á hliðina í nálægð við leikskólann Eyrarvelli. Fyrst var fjallað um málið á vef Austurfrétta. Veður 4. febrúar 2025 15:14
Icelandair aflýsir 38 flugferðum vegna veðurs Slæmt veður sem gengur yfir landið mun hafa áhrif á flugáætlun Icelandair á morgun og fimmtudag. Meðal annars verður seinkun á að Íslendingar komist í sólina á Tenerife. Play hefur aflýst öllum flugum á morgun nema þremur en heldur flugáætlun á fimmtudag. Innlent 4. febrúar 2025 14:36
Loka öllum endurvinnslustöðvum á morgun vegna veðurs Allar endurvinnslustöðvar SORPU verða lokaðar á morgun, miðvikudaginn 5. febrúar, vegna veðurs. Appelsínugular viðvaranir taka gildi á morgun fyrir landið allt. Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs, segir það samkvæmt verklagi að loka þegar viðvaranir eru appelsínugular. Innlent 4. febrúar 2025 13:06
Appelsínugular viðvaranir: Gæti minnt á óveðrið 2015 Appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir allt landið á morgun og fimmtudaginn. Veðurfræðingur segir að einhverjar þeirra gætu jafnvel verið hækkaðar í rautt með stuttum fyrirvara. Veðurfræðingur segir veðrið minna á veður sem gekk yfir í mars 2015. Þá fór allt á flot í Mosfellsbæ og víðar eins og sjá má í myndböndum að neðan. Veður 4. febrúar 2025 10:45
Víða allhvasst og éljagangur Lægðin sem olli vestanstormi í gærkvöldi á norðanverðu landinu fjarlægist nú landið, en lægð í myndun á Grænlandssundi stýrir veðrinu í dag. Áttin verður suðvestlæg, víða strekkingur eða allhvass vindur og éljagangur, en yfirleitt úrkomulítið norðaustantil. Veður 4. febrúar 2025 07:14
Nýr veðurstofuvefur kominn í loftið Nýr veðurvefur Veðurstofunnar fór í loftið í dag. Vefurinn er fyrsta skrefið í endurnýjun vefs Veðurstofunnar og tækniumhverfi hans. Stöðum sem hægt er að fá veðurspá fyrir hefur verið fjölgað Veður 3. febrúar 2025 13:35