Úkraína

Úkraína

Höfuðborg: Kænugarður. Mannfjöldi: 36,7 milljónir (2025). Flatarmál: 603.500 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð

Rússar skutu mörgum skotflaugum og flugu fjölda sjálfsprengidróna að Kænugarði og öðrum borgum Úkraínu í gærkvöldi og í nótt. Að minnsta kosti 21 skotflaug lenti í höfuðborginni í þremur mismunandi bylgjum en samkvæmt Úkraínumönnum bar allavega ein þeirra klasasprengjur, sem hannaðar eru til að dreifa tugum smærri sprengja yfir stórt svæði.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Nei, Pútín er harð­svíraður morðingi“

Ráðgjafi Vladimírs Pútín segir að Rússar séu tilbúnir til þríhliða viðræðna milli Rússlands, Bandaríkjanna og Úkraínu. Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa mótmælt ummælum erindreka Donalds Trump um að Pútín sé mannvinur.

Erlent
Fréttamynd

Björguðu særðum her­manni með dróna

Úkraínskir hermenn notuðu á dögunum stóran dróna til að bjarga særðum hermanni af víglínunni. Maðurinn hafði varið nærri því fimm hundruð dögum á víglínunni en hann tilheyrir 30. stórfylki Úkraínuhers. Drónar hafa verið notaðir til að flytja til hans matvæli, vatn og skotfæri en eftir að hann særðist alvarlega var ákveðið að flytja hann á brott.

Erlent
Fréttamynd

Frestar gildis­töku refsi­að­gerða gegn Rúss­landi

Donald Trump forseti Bandaríkjanna undirritaði í gær forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gegn rússnesku efnahagslífi. Hann tilkynnti á þinginu í gær að hann væri að fresta gildistökunni í þágu þjóðarhagsmuna en útskýrði það ekki nánar. 

Erlent
Fréttamynd

Varaði við nýju Rúss­landi Pútíns

Vólódímír Selenskí segir að Úkraínumenn eigi rétt á því að verja sig og að hann sé einungis að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar. Er það eftir gagnrýni Donalds Trump í hans garð vegna árása á rússneska olíuvinnsluinnviði. Selenskí varaði líka við því að Vladimír Pútín væri að skapa Rússland sem líktist Norður-Kóreu og að öðrum ríkjum myndi áfram stafa ógn af Rússlandi í framtíðinni.

Erlent
Fréttamynd

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur

Donald Trump hefur gert Vladimír Pútín mikla greiða á undanförnum dögum, með því að grafa undan vörnum Úkraínumanna og samstöðu meðal bakhjarla Úkraínu. Þá hefur forsetinn gagnrýnt Vólódímír Selenskí harðlega og sakað hann, en ekki Pútín, um að standa í vegi friðar með því að verða ekki við kröfum Rússa, sem fela í sér lítið annað en uppgjöf.

Erlent
Fréttamynd

Hófu aftur á­rásir á olíuvinnslur í Rúss­landi

Úkraínumenn gerðu í morgun árás á olíuvinnslu í Ryazan-héraði í Rússlandi. Það var skömmu eftir að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði að árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi myndu hefjast á nýjan leik. Úkraínumenn hættu þessum árásum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því einhliða yfir að Úkraínumenn og Rússar hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars.

Erlent
Fréttamynd

„Þeir sam­þykktu, af því að ég segi að þeir sam­þykktu“

Donald Trump staðhæfði í gær að Vladimír Pútín og Vólódímír Selenskí hefðu samþykkt orkuinnviðavopnahlé, af því að hann hefði sagt að þeir ættu að samþykkja það. Þá hélt forsetinn því fram að það væri Selenskí en ekki Pútín sem stæði í vegi friðar, eins og hann hefur ítrekað gert áður.

Erlent
Fréttamynd

Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu

Bandaríkjamenn eru sagðir hafa hótað því að hætta að deila upplýsingum með Úkraínumönnum og að meina ríkjum Evrópu að kaupa vopn og flugskeyti í loftvarnarkerfi Úkraínu. Það verði gert ef Úkraínumenn hætti ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi.

Erlent
Fréttamynd

Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé

Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti kom af fjöllum þegar tilkynning barst frá Donald Trump um að Bandaríkin og Úkraína hefðu samþykkt orkuvopnahlé í stríðinu. Hvorki stjórnvöld í Kænugarði né Moskvu hafa tjáð sig opinberlega um málið.

Erlent
Fréttamynd

Vill nýjan Úkraínuforseta

Bandaríkjaforseti virðist ekki hafa brugðist vel við harðri gagnrýni Úkraínuforseta á dísilsamning Bandaríkjamanna og Rússa og telur að tími sé til kominn að Úkraína fái sér nýjan forseta „sem kunni að gera samninga.“

Erlent
Fréttamynd

Á­fall fyrir Evrópu og vest­ræna sam­vinnu

Samkomulag Bandaríkjanna og Rússlands um útflutning Rússa á hundruðum þúsunda tonna af díselolíu er áfall fyrir Evrópu og vatn á myllu stríðsreksturs Rússa í Úkraínu að mati alþjóðastjórnmálafræðings.

Erlent
Fréttamynd

Banda­ríkin fjár­festi í stríðs­rekstri Pútíns

Volódímír Selenskí Úkraínuforseti gagnrýnir harðlega samkomulag Donalds Trump Bandaríkjaforseta um kaup á rússneskri díselolíu. Hann segir samninginn gjöf til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og fjárfestingu í áframhaldandi stríði.

Erlent
Fréttamynd

Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum

Að minnsta kosti 33 eru látnir eftir að rússnesk svifsprengja lenti við hlið nokkurra rútna sem voru fullar af fólki í austanverðri Úkraínu í morgun. Að minnsta kosti 22 og þar af fimm börn dóu þegar eldflaug hæfði fjölbýlishús í annarri borg í Úkraínu í gær.

Erlent
Fréttamynd

„Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“

Kona sem fæddist í Oleshky í Úkraínu en hefur búið á Íslandi í tuttugu ár segir fjölskyldu sína borða gras og snigla úr garðinum til þess að lifa af. Veturinn framundan muni vera hörmulegur fyrir íbúa Oleshky sem er undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu. Íbúar hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði og skortir mat og aðrar nauðsynjar. 

Innlent