IE-deild karla: Sigrar hjá Grindavík og Fjölni Grindavík er komið í toppbaráttuna í Iceland Express-deild karla af fullum krafti með sigri á Stjörnunni í Ásgarði í kvöld. Körfubolti 25. febrúar 2010 20:53
IE-deild karla: Þrír leikir á dagskrá í kvöld Þrír leikir fara fram í Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld þar sem hæst ber viðureign Stjörnunnar og Grindavíkur í Ásgarði í Garðabæ. Körfubolti 25. febrúar 2010 12:45
Snæfellingar bikarmeistarar í dag - myndaveisla Ljósmyndarinn Daníel Rúnarsson var í Laugardalshöllinni í dag þegar Snæfellingar tryggðu sér bikarmeistaratitilinn í annað skiptið á þremur árum með 92-81 sigri á Grindavík í úrslitaleiknum. Körfubolti 20. febrúar 2010 22:30
Hlynur: Það þarf lið til þess að stoppa svona menn Hlynur Bæringsson lyfti bikarnum í annað skiptið á þremur árum eftir 92-81 sigur á Grindavík í úrslitaleik Subwaybikars karla í Laugardalshöllinni í dag. Hlynur var með 10 stig og 19 fráköst í leiknum. Körfubolti 20. febrúar 2010 18:31
Þorleifur: Það voru allir að klikka hjá okkur í dag „Við gerðum ekki það sem við lögðum upp með og þess vegna er þetta mjög svekkjandi. Maður getur aldrei verið sáttur með að tapa þegar frammistaðan er ekki betri en hún var í þessum leik," sagði Grindvíkingurinn Þorleifur Ólafsson eftir 81-92 tap fyrir Snæfelli í úrslitaleik Subwaybikars karla í dag. Körfubolti 20. febrúar 2010 18:21
Þorleifur: Vinnum ef við spilum okkar besta leik Grindvíkingurinn Þorleifur Ólafsson segir að spenningurinn sé mikill fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Snæfelli í dag. Körfubolti 20. febrúar 2010 14:00
Jón Halldór: Mínar stelpur vildu bara ekki vinna þennan leik Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, var afar svekktur í leikslok eftir þriðja bikarsilfrið á fjórum árum. Keflavík tapaði einnig bikarúrslitaleiknum 2007 og 2009 undir hans stjórn og þetta er eini titilinn sem hann á eftir að vinna með kvennaliðinu. Körfubolti 20. febrúar 2010 13:50
Snæfellingar þremur stigum yfir í hálfleik Snæfell er þremur stigum yfir á móti Grindavík, 44-41, í hálfleik á úrslitaleik karla í Subwaybikar karla í Laugardalshöllinni. Leikurinn hefur haldist jafn allan hálfleikinn en Snæfell náði frumkvæðinu með því að skora þrettán stig í röð um miðjan annan leikhluta og komast með því í 36-30. Körfubolti 20. febrúar 2010 13:49
Snæfellingar bikarmeistarar í annað skiptið á þremur árum Snæfell tryggði sér sigur í Subwaybikar karla með ellefu stiga sigri á Grindavík, 92-81, í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöllinni í dag. Snæfell var með frumkvæðið allan tímann eftir að liðið skoraði þrettán stig í röð í öðrum leikhluta. Körfubolti 20. febrúar 2010 13:49
Nýi KR-kaninn æfði um tíma með Detroit Pistons í sumar Íslandsmeistarar KR hafa fundið eftirmann Semaj Inge því liðið er búið að semja við Morgan Lewis sem varð síðasta vetur meistari með Findlay-háskólanum í annari deild bandaríska háskólaboltans. Þetta kemur fram á heimsíðu KR. Körfubolti 18. febrúar 2010 10:30
ÍR-ingar búnir að senda Jefferson heim Bandaríski bakvörðurinn Michael Jefferson er búinn að spila sinn síðasta leik með ÍR í Iceland Express deild karla og náði því aldrei að vinna leik í úrvalsdeildinni á Íslandi. Karfan.is segir frá því í dag að ÍR-ingar hafi sent Jefferson heim. Körfubolti 17. febrúar 2010 11:30
IE-deild karla: Stjarnan sótti sigur á Krókinn Einn leikur fór fram í Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld þar sem Stjarnan vann 68-70 á Tindastóli en staðan var 31-35 gestunum í Stjörnunni í vil í hálfleik. Körfubolti 16. febrúar 2010 20:47
Ólafur tróð með tilþrifum í Röstinni í gær - myndband Körfuboltavefurinn Karfan.is hefur vakið athygli á frábærum tilþrifum Ólafs Ólafssonar í sigurleik á Breiðabliki í gærkvöldi. Ólafur átti þá eina flottustu troðslu tímabilsins þegar hann skilaði sóknafrákasti í körfunni að hætti þeirra bestu í NBA-deildinni. Körfubolti 16. febrúar 2010 15:00
IE-deild karla: Úrslit kvöldsins voru eftir bókinni Tveir leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í kvöld þar sem Grindavík bar sigurorð af Breiðablik 94-68 og Snæfell vann 116-133 stórsigur gegn FSu. Körfubolti 15. febrúar 2010 20:47
Michael Jefferson á enn eftir að vera í sigurliði í deildinni ÍR-ingurinn Michael Jefferson hefur ekki reynst ÍR-ingum eins mikill happafengur og menn vonuðust örugglega eftir þar á bæ. ÍR-liðið hefur tapað öllum sex deildarleikjum sínum síðan að hann kom til liðsins eftir að hafa unnið 5 af 11 leikjum sínum fyrir komu hans. Körfubolti 15. febrúar 2010 16:00
Enginn leikur á Króknum í kvöld - slæm veðurspá Mótanefnd Körfuknattleikssambands Íslands hefur ákveðið að fresta leik Tindastóls og Stjörnunnar í Iceland Express-deild karla í kvöld eftir að hafa ráðlagt sig við Lögregluna og Vegagerðina Körfubolti 15. febrúar 2010 15:43
Pavel búinn að hækka sig í öllu þrjá leiki í röð Pavel Ermolinskij var með glæsilega þrennu í 80-75 sigri KR á Fjölni í Iceland Express deild karla í gærkvöldi og hefur þar með hækkað í sig fimm helstu tölfræðiþáttunum í hverjum leik sínum með KR. Körfubolti 15. febrúar 2010 12:30
Arnþór: Áttum að klára leikinn „Við héldum einbeitingunni í dag ekki nema í þrjátíu og átta mínútur og það dugði ekki í dag. En við erum búnir að vera spila vel upp á síðkastið og það er jákvætt," sagði Arnþór Freyr Guðmundsson, leikmaður Fjölnis, eftir sárt tap á móti KR í kvöld. Körfubolti 14. febrúar 2010 22:17
Ungu pungarnir verða að átta sig á það þarf að klára leikina „Fjölnir mætti hingað í kvöld fullir af krafti, ungir og sprækir en þeir byrjuðu kannski að fagna aðeins of snemma. Ungu pungarnir verða átta sig á því að það verður að klára leikina en ekki byrja rífa kjaft áður en þetta er búið," sagði Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, eftir baráttusigur, 80-75, gegn Fjölni í kvöld. Körfubolti 14. febrúar 2010 22:06
Umfjöllun: Meistararnir of sterkir fyrir Fjölni í lokin Í kvöld heimsóttu Fjölnismenn Íslandsmeistara KR í DHL-höllina í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Leikurinn var frábær skemmtun frá upphafi til enda. Mikil spenna var allt til loka en KR-ingar kláruðu Fjölni í lok síðasta leikhluta og lokatölur, 80-75. Körfubolti 14. febrúar 2010 22:01
IE-deild karla: KR stöðvaði Fjölni Fjölnismenn hafa flogið hátt í Iceland Express-deild karla. Lagt Njarðvík, Grindavík og Snæfell af velli. Sigurganga þeirra var síðan stöðvuð í kvöld er þeir mættu Íslandsmeisturum KR vestur í bæ. Körfubolti 14. febrúar 2010 21:01
Ægir Þór: Varnarleikurinn lagði grunninn að sigrinum „Þetta var bara frábær leikur og algjörlega sigur liðsheildarinnar hjá okkur. Það voru allir að leggja sig fram og margir leikmenn að stíga upp á réttum tímapunktum í leiknum. Körfubolti 11. febrúar 2010 22:00
Ingi Þór: Vorum bara ekki tilbúnir að mæta baráttunni hjá þeim „Við vorum bara hræðilega lélegir. Leikurinn var spilaður mjög fast og fékk að fljóta þannig og við létum þá bara lemja okkur niður. Við vorum bara ekki tilbúnir að mæta baráttunni hjá þeim í kvöld,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir 69-64 tap liðs síns gegn Fjölni í Iceland Express deild karla í kvöld en þetta var fyrsta tap Snæfells á árinu 2010. Körfubolti 11. febrúar 2010 21:45
Bárður: Hlýtur bara að vera eitthvað í okkur spunnið „Við vorum góðir í kvöld. Varnarleikurinn hjá okkur var mjög massívur og við vorum búnir að undirbúa okkur vel fyrir að mæta þeim og mér fannst okkur takast vel upp með að stoppa þeirra hættulegustu menn,“ sagði Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis, eftir 69-64 sigur liðs síns gegn Snæfelli í Iceland Express-deild karla í körfubolta í Dalhúsum í Grafarvogi í kvöld. Körfubolti 11. febrúar 2010 21:30
Nýliðar Fjölnis fyrstir til að vinna Snæfell á árinu 2010 Nýliðar Fjölnis fylgdu eftir sigrum á Grindavík og Njarðvík á undanförnum vikum með því að vinna fimm stiga sigur á Snæfelli, 69-64, í Grafarvogi í kvöld. Fjölnismenn urðu þar með fyrstir til að vinna Hólmara á árinu 2010. Körfubolti 11. febrúar 2010 20:17
Stjarnan og Keflavík minnkuðu forskot KR á toppnum Stjarnan og Keflavík minnkuðu bæði forskot KR í tvö stig á toppi Iceland Express deildar karla í körfubolta eftir heimasigri í kvöld. Stjarnan vann 80-71 sigur á ÍR en Keflavík burstaði botnlið FSu með 40 stigum, 136-96. Körfubolti 11. febrúar 2010 20:16
Umfjöllun: Brynjar með skotsýningu í sigri KR-inga á Njarðvík KR-ingar náðu fjögurra stiga forskot á toppi Iceland Express deildar karla með tólf stiga sigri á Njarðvík, 89-77, í DHL-Höllinni í kvöld. Eftir jafnan en sveiflukenndan leik þá sýndu KR-ingar mikla yfirburði í lokaleikhlutanum og tryggðu sér sinn fyrsta sigur á Njarðvíkingum í vetur. Körfubolti 8. febrúar 2010 23:04
Páll Axel: Spiluðum ekki vel en það komu góðir kaflar Páll Axel Vilbergsson var stigahæstur í Grindavíkurliðinu sem vann ÍR í kvöld og komst þar með í úrslitaleik Subway-bikarsins. Leikurinn endaði 91-78 en ÍR-ingar voru vel inni í leiknum og munurinn var fjögur stig fyrir síðasta leiklutann. Körfubolti 8. febrúar 2010 22:14
Grindvíkingar komnir í Höllina eftir sigur á ÍR Grindvíkingar tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöllinni eftir 91-78 sigur í undanúrslitaleik Subwaybikars karla í Röstinni í Grindavík í kvöld. Grindavík var með forustuna allan leikinn en ÍR-ingar voru búnir að minnka muninn í fjögur stig fyrir lokaleikhlutann. Körfubolti 8. febrúar 2010 20:39
Njarðvíkingar búnir að tapa fjórum í röð - frábær fjórði leikhluti hjá KR KR-ingar með Brynjar Þór Björnsson í fararbroddi unnu tólf stiga sigur á Njarðvík, 89-77, í Iceland Express deild karla í DHL-Höllinni í kvöld. Njarðvíkingar hafa því tapað fjórum síðustu leikjum sínum í deild og bikar. Eftir miklar sveiflur og jafna stöðu fyrir lokaleikhlutan fóru KR-ingar illa með Njarðvíkurliðið í lokaleikhlutanum sem þeir unnu 19-7. Körfubolti 8. febrúar 2010 19:15