Ráðin nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða Dr. Catherine Chambers hefur verið ráðin forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða. Innlent 7. ágúst 2025 08:08
Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Fyrirlestri starfsmanns við Bar-Ilan háskólann í Ísrael á Þjóðminjasafninu var aflýst um tuttugu mínútum eftir að hann átti að hefjast í dag. Hópur mótmælenda mætti á fyrirlesturinn og mótmælti því að starfsmaður við stofnun sem styðji Ísraelsher opinberlega flytti fyrirlesturinn. Innlent 6. ágúst 2025 16:46
Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Framkvæmdastjóri Rafmenntar segir nöfn fyrrverandi starfsmanna við Kvikmyndaskólann hafa verið fjarlægð af vefsíðu skólans þá og þegar hann sá ásakanir þeirra um að nöfn þeirra væru notuð að þeim forspurðum til að auglýsa skólann. Hann furðar sig á því að þau hafi ekki haft samband við hann beint heldur farið beint með mál sitt til fjölmiðla. Innlent 6. ágúst 2025 13:30
Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Akademískir starfsmenn Kvikmyndaskóla Íslands segja þekkingarfyrirtækið Rafmennt nota nöfn þeirra í blekkingarskyni að þeim forspurðum til að auglýsa skólann. Verið sé að auglýsa háskólastarfsemi sem á sér ekki stað. Innlent 6. ágúst 2025 11:02
Borgin hafnar yfirlýsingum KSÍ Reykjavíkurborg hafnar því að framkvæmdir á nýju skólaþorpi í Laugardal hafi verið settar af stað án þess að samþykkt skipulag á svæðinu liggi fyrir, líkt og fulltrúar KSÍ hafa undanfarna daga haldið fram. Innlent 31. júlí 2025 15:25
Íslenskum nemendum fækkar en erlendum fjölgar Nemendur í einkareknum grunnskólum á landinu hafa aldrei verið fleiri. Í leið hafa grunnskólanemar með erlent móðurmál og erlent ríkisfang aldrei verið fleiri. Innlent 31. júlí 2025 12:18
Þau eru framtíðin – en fá ekki að njóta nútímans „Þetta var auðvitað rosalega mikil truflun, partí og mikil læti. Þess vegna ætlum við ekki að gera þetta aftur. En í raun og veru voru engin vandræði, engin slagsmál og ekki neitt.” Þessi orð lét eigandi tjaldsvæðisins að Hraunborgum falla í samtali við blaðamann Vísis í kjölfar árlegrar útilegu nemenda við Verzlunarskóla Íslands, sem haldin var á svæðinu. Skoðun 29. júlí 2025 22:01
Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Mygla kom upp í Grunnskólanum á Þórshöfn fyrr í vor. Sveitastjórnin stendur nú frammi fyrir vali um að rífa og byggja nýjan skóla á sama grunni eða reisa glænýjan skóla, en báðar lausnir kosta hundruði milljóna króna. Sveitarstjóri segir málið áfall fyrir kennslu á svæðinu. Innlent 28. júlí 2025 20:34
MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Nemandi í MBA-námi við Háskóla Íslands á árunum 2020-2022 neyðist til að greiða skólanum rúmlega átta hundruð þúsund krónur. Um er að ræða hluta af skólagjöldum sem nemandinn hafði neitað að borga og borið við forsendubresti og óánægju með námið. Hann fór hörðum orðum um starfsfólk námsins og sakaði meðal annars um lygar. Innlent 28. júlí 2025 16:31
Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Merkúr Máni Hermannsson, nemi við Menntaskólann í Reykjavík, nældi sér í brons með íslenska landsliðinu í Ólympíukeppninni í líffræði í Filippseyjum. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2016 sem Ísland vinnur til verðlauna í keppninni. Innlent 27. júlí 2025 08:54
Þrengt að þjóðarleikvanginum Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) var snemma á árinu upplýst um fyrirhugaðar framkvæmdir og uppsetningu á skólaþorpi við Laugardalsvöll. Skoðun 23. júlí 2025 14:30
Ríkisstjórn Bandaríkjanna og Harvard takast á fyrir dómstólum Fulltrúar ríkisstjórnar Bandaríkjanna og Harvard háskólans fóru fyrir alríkisdómara í dag vegna ákvörðunar stjórnarinnar um að frysta fjárframlög til skólans. Rökstuðningurinn er að fulltrúar Harvard hafi leyft andgyðingslega hegðun á skólalóð sinni. Erlent 21. júlí 2025 16:51
Stofna grunnskóla fyrir einhverf börn í Garðabæ Garðabær og Jónsvegur ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um að stofnaður verði nýr sérhæfður grunnskóli í sveitarfélaginu fyrir einhverf börn. Fyrstu börnin ættu að hefja nám haustið 2026. Innlent 21. júlí 2025 15:56
Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Sérsveit ríkislögreglustjóra hafði afskipti af útilegu nemenda við Menntaskólann í Reykjavík við Laugarvatn. Óboðnir gestir höfðu látið sjá sig og neitað að fara. Þeir sögðust vera vopnaðir hnífum. Innlent 20. júlí 2025 22:14
Hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu Borgarstjóri hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu sem tjaldsvæðiseigendur sögðu hafa „farið úr böndunum“. Innlent 20. júlí 2025 14:35
Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur Útilega nemenda úr Verzlunarskóla Íslands er sögð hafa farið úr böndunum og hyggst tjaldsvæðið ekki taka aftur á móti menntaskólahópum. Mikið fyllerí og partístand var á ungmennunum, öðrum tjaldgestum til mikilla ama. Innlent 20. júlí 2025 11:39
Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Manneskjan er ekki fullkomin, við getum lært og breytt okkar eigin vana svo lengi sem við lifum. Allir geta valið á hverjum degi að vaxa, að hlusta á aðra, að snúa við blaðinu í hegðun og gera betur sem manneskja. Skoðun 18. júlí 2025 17:02
Háskólinn fær 200 milljónir vegna vatnslekans Veitur, ráðgjafafyrirtækið COWI og tryggingafélagið TM þurfa að borga Háskóla Íslands samtals rúmlega 200 milljónir króna vegna mikils vatnsleka sem olli tjóni í byggingum skólans í byrjun árs 2021. Innlent 17. júlí 2025 15:28
Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Reykjavíkurflugvöllur uppfyllir öll þau skilyrði sem krafist er fyrir flugnám. Þeir sem hafa talað um að neyða flugnámið burt frá fllugvellinum þekkja ekki hvaða kröfur þarf að uppfylla skv. EASA - Evrópsku flugöryggisstofnuninni og hvaða skaða þeir valda með því að hrekja flugnámið burt. Þó svo að flugskólarnir yrðu hraktir í burtu myndi flugumferð lítið minnka um Reykjavíkurflugvöll því flugnemarnir þyrftu hvort eð er að fljúga til og frá vellinum í sínu einkaflugnámi og í blindflugsæfingum. Skoðun 16. júlí 2025 09:02
Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Þriggja ára barn fór í gær af leikskólanum Urriðabóli í Garðabæ og gekk inn í Bónus í Kauptúni. Þar var hringt á lögreglu eftir að nágranni barnsins varð þess var og lét bæði móður og lögreglu vita. Starfsfólk leikskólans vissi ekki að barnið væri týnt þegar lögregla ræddi við þau. Leikskólastjóri harmar atvikið og segist hafa farið yfir verklag með starfsfólki í morgun. Innlent 15. júlí 2025 11:03
Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Tvær leiðir eru í boði fyrir þá sem stefna í atvinnuflugnámið (ATPL - Airline Transport Pilot Licence) og eru þær báðar samþykktar og niðurnjörvaðar af EASA - European Union Aviation Safety Agency, Flugöryggisstofnun Evrópu. Skoðun 14. júlí 2025 09:00
Reykvíkingur ársins tileinkar samstarfsfólki útnefninguna Reykvíkingur ársins var útnefndur í morgun í Elliðarárdal líkt og venjan hefur verið undanfarin ár. Að þessu sinni er það Ingi Garðar Erlendsson stjórnandi Skólahljómsveitar Vestur- og Miðbæjar. Hann renndi fyrir laxi í Elliðará í morgun og var eðli málsins samkvæmt í sólskinsskapi þegar fréttastofa náði af honum tali. Lífið 13. júlí 2025 15:06
Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Reykvíkingur ársins 2025 er Ingi Garðar Erlendsson stjórnandi Skólahljómsveitar Vestur- og Miðbæjar. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri tilkynnti valið á bökkum Elliðaár í morgun, en þetta er í fimmtánda sinn sem Reykvíkingur ársins er valinn. Innlent 13. júlí 2025 10:32
Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Samtök foreldra kalla eftir aukinni viðveru forráðamanna á hittingum ungmenna. Það sé mikilvægt að efla traust svo viðburðirnir séu öruggari fyrir þá sem mæta. Innlent 12. júlí 2025 23:03
Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum Þrátt fyrir að hefðbundið skólastarf sé ekki í gangi í Hússtjórnarskólanum yfir sumartímann er nóg um að vera í skólanum um þessar mundir þar sem börnum er kennt að sauma út, baka og elda. Lífið 12. júlí 2025 22:30
Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Ég hugsa að þegar sú umræða ber á góma um 40 % drengjanna sem geta ekki lesið sér til gagns í skólakerfinu þá súmmi margir út. Ég gæti líka trúað því að það sé erfitt að gera sér það í hugarlund hvernig það er nema að hafa staðið í þeim sporum sjálfur og þekkja tilfinninguna að geta ekki verið samferða bekkjasystkinum sínum námslega og koma svo út í lífið með miklu verri forgjöf, það er dauðans alvara. Skoðun 12. júlí 2025 16:01
Flugnám - Annar hluti: Afskiptaleysi stjórnvalda Í áratugi hefur flugnám á Íslandi hvílt á herðum áhugasamra einstaklinga og án aðstoðar frá yfirvöldum að mestu leyti. Það hefur oft borið á því að yfirvöld setji frekar stein í götu flugnámsins með hækkandi gjöldum, skattlagningu, íþyngjandi reglugerðum og takmörkunum alls konar á flugvöllum frekar en að ýta undir það og búa flugnemum betra umhverfi til að læra flug í sínu heimalandi. Skoðun 12. júlí 2025 09:01
„Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Formaður foreldrafélags Laugarnesskóla segir það hálfgerðan yfirgang af hendi forsvarsmanna líkamsræktarstöðvarinnar World Class að krefjast þess að hagsmunir rekstrarins gangi fram fyrir heilsu og menntun 450 grunnskólabarna. Innlent 11. júlí 2025 12:18
Samstarf er lykill að framtíðinni Við Íslendingar búum við þá gæfu að skólarnir okkar eru hjartsláttur hvers samfélags. Óháð skólagerð þá gerum við kröfur um að þeir komi til móts við bæði náms- og félagslegar þarfir nemenda. Kröfur sem eru byggðar á gildandi lögum og námskrám sem útfærðar eru á mismunandi hátt. Skoðun 11. júlí 2025 11:02
Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Eigendur líkamsræktarstöðvarinnar World Class mótmæla breytingum á aðalskipulagi sem þau segja brjóti gegn óbeinum eignarétti þeirra á bílastæðum í Laugardalnum. World Class hefur fengið afnot af bílastæðum gjaldfrjálst í rúm tuttugu ár en þar á að rísa skólaþorp. Forsvarsmenn stöðvarinnar krefjast bóta verði ekki fallið frá áformunum. Innlent 11. júlí 2025 07:54