Pílukast

Pílukast

Nýjustu fréttir af heimsmeistaramótinu í pílukasti í Alexandra Palace í London og fleiri mótum.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Féll í yfir­lið í miðjum leik

Cameron Menzies þurfti að gefa leikinn sinn í dag gegn Ross Smith í World Matchplay-mótinu í pílukasti. Menzies var búinn að spila þrjá leggi þegar hann varð úrvinda á sviðinu og svo leið yfir hann baksviðs.

Sport
Fréttamynd

Til­finninga­ríkur sigur Littler

Luke Littler vann úrvalsdeildina í pílukasti í gærkvöldi. Hann vann nafna sinn, Luke Humphries, í æsispennandi úrslitaleik þar sem úrslitin réðust á einum legg. Leikurinn endaði 11-10.

Sport
Fréttamynd

Kýldur kaldur en ætlar ekki að kæra

Hollenski pílukastarinn Michael van Gerwen veit ekki hvað manninum, sem kýldi hann í andlitið, gekk til. Hann hafi klárlega verið búinn að fá sér of mikið í tánna. 

Sport
Fréttamynd

Sakaði Luke Littler um dóna­skap

Gerwyn Price tryggði sér sigur á úrvalsdeildarkvöldi í Manchester en það voru þó ungu mennirnir sem stálu fyrirsögnunum eftir að Gian van Veen sakaði Luke Littler um að hafa sýnt sér dónaskap.

Sport
Fréttamynd

Littler gerir and­litið sitt að skráðu vöru­merki

Frægir íþróttamenn þurfa líka að passa sig þegar kemur að gervigreindinni og misnotkun hennar en einn af þeim vinsælustu reynir að vera skrefinu á undan þeirri þróun að fólk noti gervigreindina til að græða pening á frægu fólki.

Sport
Fréttamynd

Græðir milljón á dag með nýjum samningi

Tvöfaldi heimsmeistarinn í pílukasti, Luke Littler, verður aðeins 19 ára síðar í þessum mánuði en þarf engar áhyggjur að hafa af peningum og hefur nú skrifað undir metsamning.

Sport
Fréttamynd

Skar sig á klósettinu milli leikja

Gian van Veen greindi frá ástæðu þess að blóðdropi sást á píluspjaldinu í úrslitaleik HM í gærkvöldi. Hann skar sig óvart þegar hann fór á klósettið milli leikja.

Sport