Munu svara fyrir sig verði leikarnir sniðgengnir Ráðamenn í Kína segjast ætla að svara fyrir sig ef ríkisstjórn Bandaríkjanna ákveður að sniðganga vetrarólympíuleikana í Peking í febrúar. Fjölmiðlar vestanhafs segja líklegt að sniðganga verði tilkynnt í Washington DC í þessari viku. Erlent 6. desember 2021 14:34
MeToo mætt af hörku í Kína Yfirvöld í Kína hafa mætt MeToo hreyfingunni af hörku. Þegar tennisstjarnan Peng Shuai sakaði einn af valdamestu mönnum Kommúnistaflokks Kína um nauðgun fyrr í þessum mánuði, og hvarf í kjölfarið, vakti það gífurlega athygli á heimsvísu. Erlent 24. nóvember 2021 22:00
Ólympíumeistarinn í fimleikum varð fyrir áras á götu í LA Suni Lee varð Ólympíumeistari í fimleikum í Tókýó í sumar en hún hefur nú sagt frá ömurlegri upplifun sem hún varð fyrir í síðasta mánuði. Sport 12. nóvember 2021 09:31
Hundrað dagar í Ólympíuleika og svona líta verðlaunapeningarnir út Það eru ekki liðnir nema nokkrir mánuðir frá því að Ólympíuleikarnir í Tókýó kláruðust en íþróttafólk er þegar farið að telja niður dagana í þá næstu. Sport 27. október 2021 16:30
Var ólétt þegar hún vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum Breska hjólreiðakonan Elinor Barker greindi frá því í dag að hún var orðin ólétt af sínu fyrsta barni þegar hún vann til silfurverðlauna á Ólympíleikunum í Tókýó í ágúst. Sport 5. október 2021 23:32
Óbólusett íþróttafólk á ÓL í Peking þarf að fara í þriggja vikna sóttkví Allir sem ætla að mæta á vetrarólympíuleikana í byrjun næsta árs þurfa annað hvort að mæta fullbólusettir til Kína eða fara í 21 dags sóttkví áður en þeir keppa á leikunum. Sport 30. september 2021 09:00
Simone Biles: Ég átti að hætta fyrir Ólympíuleikana Fimleikakonan Simone Biles hefur viðurkennt að það hafi verið mistök hjá sér að mæta til leiks á Ólympíuleikana í Tókýó. Sport 28. september 2021 09:01
Þurfti að eyða 48 tímum í dimmu herbergi eftir að hún vann Ólympíugullið Kanadíska knattspyrnukonan Stephanie Labbé hefur sagt opinberlega frá því sem hún þurfti að ganga í gegnum eftir möguleika stærstu stund sína á fótboltaferlinum. Þar voru engin veisluhöld eða sigurpartý á ferðinni. Fótbolti 27. september 2021 10:31
Bandarísku keppendurnir á Vetrarólympíuleikunum verða að láta bólusetja sig Keppendur fyrir hönd Bandaríkjanna á Vetrarólympíuleikunum og Ólympíumóti fatlaðra í Peking á næsta ári þurfa að fara í bólusetningu vegna kórónuveirunni til að mega taka þátt. Sport 23. september 2021 17:01
2021 er einkar eftirminnilegt ár fyrir Damian Lillard Árið í ár verður án efa eitt það allra eftirminnilegasta á ævi NBA körfuboltamannsins Damian Lillard. Það er langur listi af hverju svo er. Körfubolti 16. september 2021 15:30
Handhafi næstelsta heimsmetsins látinn Besti sleggjukastari sögunnar, Úkraínumaðurinn Júrí Sedykh, lést í gær af völdum hjartaáfalls, 66 ára að aldri. Sport 15. september 2021 13:01
Gætu tekið kannabis af listanum yfir bannefni eftir að Sha'Carri missti af ÓL Alþjóðalyfjaeftirlitið, WADA, skoðar nú hvort það eigi að fjarlægja kannabis af listanum yfir bannefni. Sport 15. september 2021 11:31
Breska boðhlaupssveitin við það að missa Ólympíusilfrið Fljótlega eftir Ólypíuleikana var greint frá því að CJ Ujah, einn afmeðlimum bresku boðhlaupssveitarinnar, hefði verið settur í bann á meðan að rannsókn á lyfjamisnotkun færi fram. Nú hefur annað sýni greinst jákvætt og því er sveitin við það að missa silfurverðlaun sín ú 4x100 metra spretthlaupi. Sport 14. september 2021 23:01
Fyrrverandi forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar látinn Belginn Jacques Rogge, sem gegndi embætti forseta Alþjóðaólympíunefndarinnar í tólf ár, er látinn, 79 ára að aldri. Sport 30. ágúst 2021 08:44
Thelma Björg og Patrekur Andrés fánaberar Íslands Sundkonan Thelma Björg Björnsdóttir og hlauparinn Patrekur Andrés Axelsson verða fánaberar Íslands á setningarathöfn Ólympíumóts fatlaðra sem fram fer í Tókýó. Sport 21. ágúst 2021 18:01
„Afreksíþróttamiðstöð ein og sér er ekki bara lausnin“ Andri Stefánsson, sviðsstjóri Afreks- og ólympíusviðs ÍSÍ, segir íþróttahreyfinguna þurfa að gera upp við sig hvernig áherslur eigi að vera í afreksíþróttastarfinu, svo sem hvort það sé forgangsverkefni að koma á fót miðlægri afreksíþróttamiðstöð og hversu umfangsmikil hún eigi að vera. Sport 20. ágúst 2021 14:31
Gullkona frá ÓL í Tókýó segir kynlíf fyrir keppni gefa henni aukinn sprengikraft Það er gömul mýta í íþróttaheiminum að íþróttafólk eigi alls ekki að stunda kynlíf stuttu fyrir leiki eða keppni heldur spara frekar þá orku. Rússneskur gullverðlaunahafi frá því í Tókýó er ekki alveg sammála því. Sport 20. ágúst 2021 09:01
Sha'Carri ekki í vinaleit þegar hún keppir við Ólympíumeistarann um helgina Bandaríska frjálsíþróttakonan Sha’Carri Richardson er farin að kynda vel upp fyrir athyglisvert spretthlaup sem fer fram um helgina. Sport 19. ágúst 2021 12:30
Skýtur á ÍSÍ og segir boltann rúlla hægt „Er ekki kominn tíminn á að láta verkin tala? Ég vil sjá aðgerðir svo það náist loksins að styðja og styrkja afreksíþróttafólkið okkar eins og það á skilið.“ Þetta segir Kjartan Ásmundsson, markaðs- og þróunarstjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur, sem er orðinn langeygður eftir íslenskri afreksíþróttamiðstöð. Sport 19. ágúst 2021 09:31
Safnaði fyrir aðgerð lítils barns með því að bjóða upp Ólympíusilfrið sitt Pólski spjótkastarinn Maria Andrejczyk vann silfur á Ólympíuleikunum í Tókýó á dögunum en hún var tilbúin að láta frá sér silfrið sitt aðeins nokkrum vikum síðar. Sport 18. ágúst 2021 12:00
Popovich sendi gagnrýnendum tóninn: Hvernig í fjandanum líst ykkur á okkur núna? Eftir óvænt töp í aðdraganda Ólympíuleikanna sem og fyrsta leik á leikunum sjálfum var umræðan í kringum bandaríska landsliðið í körfubolta ekki jákvæð. Gregg Popovich, þjálfari liðsins, sendi spekingum tóninn í ræðu sem hann hélt inn í klefa eftir að Bandaríkin höfðu tryggt sér gullið. Körfubolti 17. ágúst 2021 17:01
Er ekki kominn tími á Afreksíþróttamiðstöð Íslands? Nú er frábærum Ólympíuleikum nýlokið þar sem Japanir þreyttu algjört kraftaverk í framkvæmd íþróttaviðburðar. Allt í beinni útsendingu úr Efstaleitinu þar sem viðmælendur í sjónvarpssal skiptust einnig á skoðunum um sjálfa leikana og eins var afreksíþróttaumhverfið hér á landi tekið fyrir. Skoðun 17. ágúst 2021 13:31
Útilokuð frá Ólympíuleikunum en fær nú að keppa við Ólympíumeistarann Heimurinn fékk ekki að sjá fljótustu bandarísku konuna hlaupa á Ólympíuleikunum í Tókýó en það verður bætt úr því á Prefontaine Classic mótinu. Sport 16. ágúst 2021 15:01
Missti ömmu sína í apríl en fékk ekki að vita það fyrr en hún hafði unnið gull á ÓL Gleðileg heimkoma gullverðlaunahafans Sun Yingsha af Ólympíuleikunum í Tókýó breyttist snögglega í mikla sorg. Sun fékk nefnilega ekki góðar fréttir þegar hún kom heim til sín í Kína. Sport 16. ágúst 2021 11:01
Kaley Cuoco býðst til að kaupa hestinn sem var laminn á Ólympíuleikunum Leikkonan Kaley Cuoco, sem flestir þekkja eflaust úr þáttunum The Big Bang Theory, hefur sagst munu borga hvaða verð sem er til að bjarga hestinum sem laminn var af þýskum þjálfara á Ólympíuleikunum. Lífið 14. ágúst 2021 20:32
Fann konuna sem borgaði leigubílinn og sá til þess að hann gat unnið ÓL-gullið Ólympíumeistarinn Hansle Parchment frá Jamaíku lenti í miklum hrakförum á leið sinni á keppnisstaðinn á Ólympíuleikunum í Tókýó á dögunum og hann var mjög þakklátur konunni sem bjargaði honum fyrir horn. Sport 13. ágúst 2021 10:31
Rannsaka lyfjamisnotkun bresks spretthlaupara og Ólympíusilfrið í hættu Breski spretthlauparinn CJ Ujah hefur verið dæmdur í keppnisbann fyrir meinta lyfjamisnotkun. Ujah var hluti af breska liðinu sem vann til silfurverðlauna í 4x100 metra spretthlaupi á Ólympíuleikunum, en verðlaunin gætu nú verið í hættu. Sport 13. ágúst 2021 09:31
Gunnhildur Yrsa fékk Ólympíugullið um hálsinn Það voru fagnaðarfundir þegar Erin McLeod kom heim af Ólympíuleikunum í Tókýó með gullverðlaun í farteskinu. Fótbolti 12. ágúst 2021 11:30
„Þetta snýst svolítið um að pína sig áfram“ Arna Sigríður Albertsdóttir er á meðal þeirra íslensku íþróttamanna sem halda til Tókýó að keppa á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics. Hún mun keppa í handahjólreiðum á leikunum. Sport 11. ágúst 2021 19:31
24 ára Ólympíufari fannst látin Nýsjálenska hjólreiðakonan Olivia Podmore er látin en hún fannst á heimili sínu í gær. Örlög hennar eru mikið áfall fyrir alla í íþróttaheiminum á Nýja Sjálandi og víðar. Sport 11. ágúst 2021 09:01