Miðaði byssu á annan mann Eftir að hafa varist allra fregna um aðgerðir í dag sagði aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að tilkynnt hefði verið um mann vopnaðan skotvopni að miða því á annan mann. Fimm voru handteknir í dag. Innlent 2. ágúst 2026 19:48
Tveir lagðir við gangstéttina Á myndbandi sem fréttastofu barst sést aðgerð sérsveitar og lögreglu á Akureyri í dag frá öðru sjónarhorni þar sem minnst tveir menn voru látnir liggja á gangstéttinni. Fimm voru handteknir og skotvopn fundust í tveimur bílum. Innlent 2. ágúst 2026 19:16
Enn brotist inn í miðbænum Tilkynnt var um enn eitt innbrotið í fyrirtæki miðsvæðis í Reykjavík í dag. Fjallað hefur verið um þráláta hrinu innbrota í miðborginni undanfarið. Innlent 2. ágúst 2026 18:32
Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Sérsveit og lögregla handtóku fimm manns á Akureyri síðdegis í dag. Skotvopn fundust í tveimur bílum. Innlent 2. ágúst 2026 15:47
Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Maður á sjötugsaldri var í gærkvöldi handtekinn eftir að hafa ráðist á konu fyrir utan bar í miðborg Rekjavíkur og gert sig líklegan til að ganga starfsfólki í skrokk. Innlent 2. ágúst 2026 13:22
Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Lögreglan á Suðurlandi segir umferð í umdæminu hafa gengið vel. Þrír voru handteknir í nótt eftir átök í heimahúsi. Innlent 2. ágúst 2026 13:06
Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Talsverður fjöldi skemmti sér í Heimaey í gærkvöldi og nótt en veðrið hefur leikið við Þjóðhátíðargesti. Innlent 2. ágúst 2026 11:05
Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Níu voru handteknir og einn vistaður í fangageymslu vegna vopnalagabrots á tónleikasvæði á Akureyrarvelli í gærkvöld. Fjórir voru handteknir í bænum vegna minniháttar fíkniefnalagabrots og einn þeirra vistaður í fangageymslu. Einnig var tilkynnt um stórfellda líkamsárás þar sem einstaklingur endaði með beinbrot í andliti. Innlent 2. ágúst 2026 09:01
Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Maður í mjög annarlegu ástandi var handtekinn í Kópavogi í dag. Þegar lögregla kom að honum gekk hann um með barefli í hendi, öskraði og sýndi ógnandi tilburði. Innlent 1. ágúst 2026 17:35
Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Paul Watson-samtökin gagnrýna harðlega meðferð áhafnar Bandero, segja lagalegar forsendur þess að þeim sé haldið óljósar og að áhöfnin hafi ekki fengið að setja sig í samband við ástvini sína og lögmann. Meðferðin veki upp stórar spurningar þegar komi að lagalegum réttindum og mannréttindum. Innlent 1. ágúst 2026 17:02
Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Hvorki barst tilkynning um kynferðisbrot né líkamsárás í Vestmannaeyjum í nótt, að sögn lögreglu í Eyjum. Yfirlögregluþjónn segir að fyrsti dagur Þjóðhátíðar hafi gengið afar vel. Innlent 1. ágúst 2026 15:41
Slasaðist á fæti uppi á hálendi Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar sækir göngumann á hálendi sem slasaðist á fæti í nágrenni við Laugaveg. Maðurinn er milli Hrafntinnuskers og Álftavatns. Innlent 1. ágúst 2026 13:40
Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna. Yfirheyrslur fóru í gær fram yfir öllum tuttugu og einum áhafnarmeðlimum. Þetta staðfestir Skúli Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 1. ágúst 2026 11:23
Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum Sex fíkniefnamál komu upp á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gær og hafði lögregla afskipti af einum vegna ölvunaraksturs. Einnig var nokkrum veitt aðstoð vegna ölvunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en fíkniefnamálin eru sögð minniháttar. Rólegra virðist hafa verið hjá lögreglunni fyrir norðan. Innlent 1. ágúst 2026 11:16
„Ég er skrímsli“ „Ég er skrímsli.“ Þetta er Ming Ting Mancel sögð hafa sagt við fyrstu skýrslutöku lögreglu þann 14. júní 2025 eftir að eiginmaður hennar og dóttir fundust látin á hótelherbergi þeirra á Reykjavík Edition-hótelinu um morguninn. Skýrslan var tekin á Landspítalanum þar sem hún lá með lífshættulegt stungusár. Innlent 1. ágúst 2026 09:47
Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Erlendir netkúgarar hótuðu að dreifa gervigreindarbúnu kynferðislegu myndefni af íslenskum unglingspilti ef hann greiddi þeim ekki tíu þúsund krónur. Kúgararnir komust í samband við hann eftir að hann samþykkti vinabeiðni á Discord. Pilturinn greiddi en hótanirnar héldu áfram. Innlent 31. júlí 2026 22:03
Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Lögreglu barst í dag tilkynning um að ekið hefði verið á reiðhjólamann. Reiðhjólamaðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl til skoðunar. Innlent 31. júlí 2026 16:48
Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Lögreglan á Suðurlandi leitar fólks sem varð vitni að líkamsárás sem varð á Kótelettunni, sem fram fór á Selfossi á dögunum. Innlent 31. júlí 2026 15:20
Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Rannsókn lögreglu á innbrotinu í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal stendur enn yfir. Ummerki benda til þess að fleiri en einn kunni að hafa verið að verki en það hefur ekki verið staðfest. Á sama tíma hefur ástandið í dalnum róast og ekkert tilfelli verið staðfest í byggð. Innlent 31. júlí 2026 12:38
Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Skipstjóri Bandero neitaði fyrirmælum Landhelgisgæslunnar um að stöðva skipið, svara í talstöð og senda frá sér staðsetningarmerki og sendi gæslan því varðskipið Freyju og þyrlu á vettvang. Á mögnuðu myndbandi sem var tekið um borð í Bandero má sjá þegar smábátar elta skipið uppi og sérsveitarmenn klifra um borð. Innlent 31. júlí 2026 12:18
Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Landhelgisgæslan fylgdi Bandero, skipi aðgerðarsinna Paul Watson-samtakanna, til Sundahafnar í nótt. Vísir fylgist með gangi mála í beinni útsendingu og í vakt hér að neðan. Innlent 31. júlí 2026 08:41
Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson samtakanna, í kvöld og tóku yfir stjórn skipsins. Skipstjóri þess var handtekinn. Innlent 30. júlí 2026 23:32
Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Í hverri viku berast tugir tilkynninga um vasaþjófnað við ferðamannastaði og verulegar fjárhæðir eru oft undir að sögn lögreglu. Sex voru handteknir á Suðurlandi í gær og ferðaþjónustuaðilar við Seljalandsfoss segja þjófnað daglegan atburð við fossinn. Innlent 30. júlí 2026 20:00
Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Þrír af sex erlendum ríkisborgurum sem handteknir voru á Suðurlandi í gær grunaðir um vasaþjófnað voru gripnir glóðvolgir af óeinkennisklæddum lögreglumönnum við Seljarlandsfoss. Aðalvarðstjóri segir tugi tilkynninga um vasaþjófnað berast í hverri viku af helstu ferðamannastöðum landsins. Innlent 30. júlí 2026 12:34
Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Lögreglan á Suðurlandi handtók í gær sex erlenda ríkisborgara í tengslum við rannsókn á vasaþjófnaði á ferðamannastöðum undanfarnar vikur. Innlent 30. júlí 2026 08:20
Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni „Við héldum að sendingin væri komin af stað til Íslands en svo kom bara í ljós að það var enginn gámur til að sækja. Flutningsaðilinn greip bókstaflega í tómt þarna úti. Það var búið að ræna allri sendingunni.“ Innlent 30. júlí 2026 06:51
Mosfellsdalur minnti á vígvöll „Þetta líktist næstum því vígvelli,“ sagði Tómas Arnar Þorláksson, fréttamaður sem fylgt hefur eftir atburðum í Mosfellsdal í dag, en þar hefur mátt heyra skothvelli á meðan drónar sveima yfir. Fréttir bárust af því í morgun að þúsundum minka hefði verið sleppt úr búrum sínum á Dalbúi, síðasta minkabúi landsins, og er unnið hörðum höndum að því að ná stjórn á minkafaraldrinum. Innlent 30. júlí 2026 00:02
Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Lögregla stöðvaði ökumann fyrir of hraðan akstur í Hlíðahverfi Reykjavíkur sem keyrði á nánast tvöföldum hámarkshraða. Hraði hans mældist 87 kílómetrar á klukkustund þar sem hæsti leyfilegi hraði er 50 kílómetrar á klukkustund. Málinu var lokið á staðnum með greiðslu sektar. Innlent 29. júlí 2026 18:31
Horfðu á bílinn velta niður fjallið Fjölskylda á ferðalagi um Vestfirði reiknaði með því versta þegar hún horfði á bíl velta niður hlíðar Bolafjalls um þrjúleytið í dag. Fólkið trúði ekki sínum eigin augum þegar það sá konu skríða út úr bílflakinu sem var í algjörri klessu. Ótrúlegt en satt er konan aðeins slösuð á handlegg. Innlent 29. júlí 2026 16:57
Allir á hlaupum að reyna fanga minka Aðstoðarlögreglustjóri segir að rökstuddur grunur sé um að brotist hafi verið inn í minkabú og dýrunum hleypt úr búrunum. Alls hafi verið á milli tíu og tólf þúsund minkar í búinu en fjöldi viðbragðsaðila kemur að því að fanga minkana sem sluppu. Mikið sé undir. Innlent 29. júlí 2026 13:35