Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Meðal ákvæða í fyrirliggjandi friðarsamkomulagi milli Bandaríkjanna og Írans er fyrirvaralaus opnun fyrir skipaumferð um Hormússund og aflétting hafnbanns Bandaríkjanna í Íran. Erlent 12.6.2026 22:26
Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir „Við getum staðfest að samþykkt lokaorðalag friðarsamkomulag liggur fyrir,“ segir Shehbaz Sharif forsætisráðherra Pakistan í færslu á samfélagsmiðlum. Erlent 12.6.2026 18:19
Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Bandaríkjamenn og Íranir héldu áfram árásum sínum í nótt og í morgun en skotmörk fyrrnefndu voru hernaðarinnviðir tengdir loftvörnum, eftirliti og samskiptum. Síðarnefndu svöruðu með árásum á skotmörk í Barein, Jórdaníu og Kúvæt. Erlent 11.6.2026 06:53
Íranar gera árásir á Kúveit og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Yfirvöld í Kúveit greindu frá því í morgun að loftvarnir landsins hefðu verið virkjaðar vegna yfirstandandi eldflauga- og drónaárásar. Nokkrum mínútum síðar sögðust hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa gert árásir á radar- og stjórnstöðvar í Íran yfir helgina. Erlent 1. júní 2026 07:01
Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Tugir voru drepnir í hörðum árásum Ísraela á Líbanon í gær og í nótt eftir að forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú hafði heitið því að setja aukinn kraft í baráttuna gegn Hezbollah samtökunum sem starfa þar í landi. Erlent 27. maí 2026 08:25
Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Ekki hafa verið fleiri aftökur í heiminum í 44 ár, eða frá árinu 1981. Á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í sautján löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar. Erlent 18. maí 2026 07:58
Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Þrátt fyrir að vopnahlé eigi að gilda halda átök áfram milli Ísraels og Hezbolla í Líbanon. Hið minnsta sjö féllu í loftárás Ísraels í Saksakiyeh í dag. Á meðan bíða Bandaríkjamenn eftir því að Íranir bregðist við friðartillögum sínum. Erlent 9. maí 2026 20:05
Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ísraelar gerðu loftárás á Líbanon með það að markmiði að hæfa leiðtoga innan Hezbollah-samtakanna. Vopnahlé milli þeirra tók gildi um miðjan apríl. Erlent 6. maí 2026 19:09
Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í kvöld að vopnahlé milli Líbanon og Ísraels yrði framlengt um þrjár vikur. Hann segir Bandaríkjamenn auk þess hafa „algjöra stjórn“ á Hormússundi. Erlent 23. apríl 2026 22:38
Klukkan tifar og enn langt í land Ekki hefur verið boðað opinberlega til fundar í friðarviðræðum Bandaríkjanna og Íran nú þegar um þrír dagar eru eftir af tveggja vikna vopnahléi ríkjanna. Forseti íranska þingsins segir viðræður um að binda enda á stríðið hafa „miðað áfram“ en ríkin séu „langt frá lokaviðræðum.“ Erlent 19. apríl 2026 10:44
Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Donald Trump Bandaríkjaforseti segist bjartsýnn á að samningar náist milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael á næstu dögum en í gær tilkynnti hann um tíu daga vopnahlé á svæðinu sem gekk í gildi í gærkvöldi. Erlent 17. apríl 2026 07:49
Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Ísraelsmenn og Líbana hafa komist að samkomulagi um tíu daga vopnahlé sem á að taka gildi klukkan 22 í kvöld að íslenskum tíma. Erlent 16. apríl 2026 15:58
Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir leiðtoga Ísrael og Líbanon munu ræða saman í dag um mögulegt vopnahlé. Frá þessu greindi hann á Truth Social en nefndi leiðtogana ekki á nafn. Áður höfðu fjölmiðlar greint frá því að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sætti þrýstingu af hálfu Bandaríkjanna um að ganga að samningaborðinu. Erlent 16. apríl 2026 06:55
Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að viðræður við Írani myndu mögulega hefjast á ný á næstu dögum. Erlent 15. apríl 2026 06:44
Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Fulltrúar Ísraels og Líbanon áttu í sínum fyrstu diplómatísku viðræðum í meira en þrjá áratugi í dag. Markmið fundarins var að binda enda á átökin á milli Ísraels og Hezbollah-samtakanna. Erlent 14. apríl 2026 23:09
Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael. Erlent 14. apríl 2026 06:34
Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Stjórnvöld í Íran hafna þeirri fullyrðingu Bandaríkjamanna að tveir tundurspillar á vegum bandaríska sjóhersins hafi siglt í gegnum Hormússund. Bandaríkjaforseti segir það breyta engu fyrir sig hvort friðarsamkomulag náist við Íran. Erlent 11. apríl 2026 21:15
Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Þrátt fyrir vopnahlé í stríðinu í Íran hafa átök Ísraelsmanna og Hesbollah í Líbanon haldið áfram og ljóst að engin samstaða er um þann hluta vopnahléssamninganna. Erlent 10. apríl 2026 07:31
Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Tala látinna eftir að Ísraelsher gerði loftárás á miðborg Beirút í gær er komin yfir þrjú hundruð. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segir að herinn haldi áfram árásum á Hezbollah-samtökin þar til öryggi Ísraela er tryggt. Erlent 9. apríl 2026 23:51
Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. Erlent 8. apríl 2026 20:08
Hormússund sagt lokað á ný Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið. Erlent 8. apríl 2026 17:13
Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Tugir eru sagðir fallnir og hundruð særð eftir að Ísraelsher gerði fyrirvaralausar loftárásir á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar segja að vopnahlé sem þeir gerðu við Írani í gær nái ekki til árása þeirra á Hezbollah-samtökin í Líbanon. Erlent 8. apríl 2026 13:57
Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. Erlent 28. mars 2026 23:41
Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Stjórnvöld í Ísrael hyggjast taka yfir suðurhluta Líbanon að ánni Litani, það sem þau kalla „öryggissvæði“. Áin liggur í um 30 kílómetra fjarlægð frá landamærum Ísrael og Líbanon. Að sögn utanríkisráðherrans Israel Katz munu Ísraelar einnig stjórna þeim brúm yfir ána sem enn standa. Erlent 24. mars 2026 12:05