„Þessi Kane er stórhættulegur“ DeAndre Kane heillaði sérfræðinga Körfuboltakvölds með frammistöðu sinni gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Stjörnunnar á föstudaginn síðastliðinn. Frammistaðan sem hann sýndi fram á þar er sá Kane sem Grindavík þarf til að taka næsta skref. Körfubolti 15. mars 2026 08:02
ÍA 86-115 Tindastóll | Skagfirðingar ekki í vandræðum á Skaganum Tindastóll hafði betur gegn ÍA er liðin mættust á Akranesi í kvöld í Bónus deild karla í körfubolta. Sigur Sauðkrækinga öruggur, 115-86 urðu lokatölur. Körfubolti 14. mars 2026 21:10
Stórleikur Elvars dugði ekki til sigurs Elvar Már Friðriksson spilaði stórvel þegar Anwil Wlocawek laut í lægra haldi fyrir Lublin, 97-91, í pólsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Elvar var stiga- og stoðsendingahæstur í liði Anwil Wlocawek. Körfubolti 14. mars 2026 16:17
Ræddu umtalaða sigurkörfu KR: „Þetta er rosalega heimskulegt“ Umtöluð sigurkarfa KR gegn Keflavík í Bónus deild karla var til umræðu í Bónus Körfuboltakvöldi í gær. Magnús Þór Gunnarsson skilur ekki hvað leikmanni Keflavíkur, Mirza Bulic, gekk til þegar hann sló í boltann eftir skot Toms Elvis Leimanis. Körfubolti 14. mars 2026 13:40
„Gerðum heiðarlega tilraun til að henda þessu frá okkur í restina“ Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var að vonum ánægður með sigur gegn Stjörnunni eftir að lið hans tryggði sér deildarmeistaratitilinn í stórskemmtilegum leik í Grindavík. Sport 13. mars 2026 23:31
„Ég set blóð, svita og tár í þetta og mér finnst ekkert skemmtilegra“ Grindavík tryggði sér deildarmeistaratitilinn með mögnuðum 94-88 sigri á Stjörnunni í kvöld í 20. umferð Bónus deild karla. Stjarnan var lengst af yfir í leiknum en Grindvíkingar sýndu mikinn karakter og snéru leiknum sér í vil undir lok leiksins. Sport 13. mars 2026 23:06
Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 94-88 | Deildarmeistarar eftir magnaðan viðsnúning Eftir að hafa verið undir lengst af í leiknum vann Grindavík 94-88 sigur gegn Stjörnunni í 20. umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Körfubolti 13. mars 2026 21:20
Besta sætið: Fjandi stór fjárfesting á föstudeginum þrettánda Það var nóg um að ræða í Besta sætinu í dag. KA-menn opnuðu veskið til þess að fá Danijel Dejan Djuric til sín úr atvinnumennsku, Bónus deildin bauð upp á dramatík og deildarmeistarar gætu verið krýndir í kvöld. Þá er áhugaverð helgi framundan í enska boltanum. Sport 13. mars 2026 16:01
Fyrsta tapið á tímabilinu og Almar þarf nú að bíða og vona Það var stutt gaman hjá Almari Orra Atlasyni og félögum í Miami-skólanum í úrslitakeppni Mid-American Conference-deildarinnar. Körfubolti 13. mars 2026 07:30
KR - Keflavík 107-105 | Keflvíkingar gáfu frá sér fimmta sætið KR tók á móti Keflavík í 20. umferð Bónusdeildar karla í körfubolta nú í kvöld. Um sannkallaðan spennutrylli var að ræða þar sem úrslitin réðust á lokasekúndu leiksins. Körfubolti 12. mars 2026 23:00
„Einn stærsti sigur hjá félaginu í körfubolta“ Ármann vann afar mikilvægan sigur gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld 74-79. Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, var afar sáttur með sigurinn og það var mikil gleði í hópnum eftir leik. Sport 12. mars 2026 22:35
„Hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn“ Jakob Örn Sigurðarson þjálfari KR var að vonum sáttur með dramatískan sigur liðsins á Keflavík í kvöld. Sigurinn þýðir að liðin skiptast á sætum þegar skammt er eftir af deildinni. Körfubolti 12. mars 2026 22:17
Uppgjörið:Njarðvík - Valur 110-78| Njarðvíkingar að kveikja á sér á hárréttum tíma Valsmenn geta unnið sinn fjórða leik í röð í kvöld, í Bónus-deild karla í körfubolta, en þeir mæta Njarðvík sem þarf sárlega á stigum að halda. Körfubolti 12. mars 2026 21:50
Uppgjör: Álftanes - ÍR 89-93 | Álftanes að missa af en ÍR á leið í úrslitakeppnina Álftanes er við það að missa af sæti en ÍR er búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni eftir 89-93 sigur í leik liðanna í 19. umferð Bónus deildar karla. Körfubolti 12. mars 2026 21:49
„Var bara skemmtilegt og það voru allir að hafa gaman“ Njarðvík vann í kvöld 110-78 stórsigur á Valsmönnum þegar þessi lið mættust í 20. umferð Bónus deild karla í kvöld. Leikur sem aldrei var í neinni hættu. Veigar Páll Alexandersson fyrirliði Njarðvíkur ræddi við Vísi eftir leik. Sport 12. mars 2026 21:35
Hákon: Þetta er svo ógeðslega gaman Fyrirliði ÍR, Hákon Örn Hjálmarsson, var skiljanlega himinlifandi með sigur sinna manna á Álftanesi í kvöld 89-93. Sigurinn tryggir ÍR sæti í úrslitakeppninni en Hákon skoraði 14 stig og þar af 12 úr þriggja stiga skotum. Körfubolti 12. mars 2026 21:26
Þór Þ. - Ármann 74-79 | Ármenningar skildu Þórsara eftir í fallsæti Ármann sótti einn mikilvægasta sigur tímabilsins til Þorlákshafnar og skildi Þór eftir í fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir af Bónus deild karla í körfubolta. Lokatölur 74-79 fyrir Ármanni eftir æsispennu. Körfubolti 12. mars 2026 18:32
Risa leikur í kvöld: „Einn af þeim stærri í sögu Þórs Þorlákshafnar“ Þór Þorlákshöfn berst fyrir lífi sínu í Bónus deildinni og mætir liði Ármanns í kvöld í algjörum lykilleik sem þjálfari Þórs, Lárus Jónsson, segir vera einn þann mikilvægasta í sögu félagsins. Körfubolti 12. mars 2026 13:03
Clark fór á kostum í fyrsta landsleiknum Bandaríska körfuboltakonan Caitlin Clark spilaði sinn fyrsta A-landsleik í gærkvöldi og um leið fyrsta keppnisleik sinn síðan hún meiddist í júlí síðasta sumar. Körfubolti 12. mars 2026 12:31
„Þetta er ógeðslegt starf“ Benedikt Guðmundsson er einn reyndasti körfuboltaþjálfarinn í sögu íslenska körfuboltans en hvorki hann né Teitur Örlygsson mæta með því að fólk fari út í körfuboltaþjálfun í meistaraflokki. Körfubolti 12. mars 2026 10:01
Tryggvi með hæstu einkunn í flottum sigri Tryggvi Snær Hlinason átti ríkan þátt í góðum sigri Bilbao Basket á útivelli í kvöld, 77-69, gegn tyrkneska liðinu Petkim Spor í 8-liða úrslitum Evrópubikars FIBA í körfubolta. Körfubolti 11. mars 2026 19:28
Ævintýri Stólanna lauk á spennuleik Í kvöld fór fram leikur Tindastóls og Riga Zelli í Sikinu á Sauðárkróki þar sem gestirnir unnu 101-94. Leikurinn var í 16-liða úrslitum ENB deildarinnar og eru Stólarnir þar með úr leik. Körfubolti 11. mars 2026 18:31
Trúlofun slitið, forræðisdeila hafin og lögreglu blandað í málið Slóvenska körfuboltastjarnan Luka Dončić, sem spilar fyrir Los Angeles Lakers í NBA, og slóvenska fyrirsætan Anamaria Goltes hafa slitið trúlofun sinni eftir tíu ára samband. Þau eru sögð deila um forræði yfir dætrum sínum tveimur sem Dončić hefur ekki séð síðan í desember. Lífið 11. mars 2026 16:21
Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Serbía sigraði Ísland, 92-66, í Novi Sad í undankeppni EM í körfubolta kvenna í kvöld. Körfubolti 11. mars 2026 16:18
Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Einvígi Nablans, Andra Más Eggertssonar og Tómasar Steindórssonar í Extraleikunum hélt áfram og nú voru þeir komnir í höfuðstöðvar Mjölnis til að kynnast betur blönduðu bardagaíþróttunum. Körfubolti 11. mars 2026 10:31
Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Bam Adebayo skoraði 83 stig, næstflest stig í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta, og leiddi Miami Heat til 150-129 sigurs á Washington Wizards í nótt. Körfubolti 11. mars 2026 07:47
Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn „Það er mikil spenna fyrir þessum leik og þessir heimaleikir í Evrópukeppninni hafa verið vel sóttir hingað til. Ég held að okkar fjórir best sóttu heimaleikir á tímabilinu hingað til hafi verið okkar heimaleikir í þessari keppni,“ segir Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls fyrir leiknum annað kvöld gegn Riga Zelli í 16-liða úrslitum ENBL-deildarinnar. Körfubolti 10. mars 2026 16:31
Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu Breyting hefur orðið á leikmannahópi kvennalandsliðs Íslands í körfubolta, fyrir leikinn við Serbíu í Novi Sad á morgun í undankeppni EM. Körfubolti 10. mars 2026 15:35
NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Ekkert verður af samstarfi Atlanta Hawks við strippstaðinn Magic City. NBA-deildin sló á putta Haukanna og bannaði þeim að halda viðburð þar sem kynna átti staðinn. Körfubolti 10. mars 2026 07:30
Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst Þrír leikmanna kvennaliðs UCLA í körfubolta fengu að láta ljós sitt skína með öðrum hætti á dögunum, þegar þær slógust í lið með dansliði skólans í skemmtilegu hálfleiksatriði. Körfubolti 9. mars 2026 13:17