New York á loksins lið í lokaúrslitum
New York Liberty er komið í úrslitaeinvígi WNBA deildarinnar í körfubolta þar sem liðið mætir ríkjandi meisturum í Las Vegas Aces.
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
New York Liberty er komið í úrslitaeinvígi WNBA deildarinnar í körfubolta þar sem liðið mætir ríkjandi meisturum í Las Vegas Aces.
Subway deild karla í körfubolta hefst á fimmtudaginn kemur og Vísir telur niður í mótið með því að spá fyrir um lokaröð liða deildarinnar næstu daga. Í dag er komið að þeim þremur liðum sem við teljum að muni berjast um áframhaldandi sæti í deildinni.
Jrue Holiday stoppaði stutt hjá Portland Trail Blazers en honum var skipt til félagsins þegar Damian Lillard fór til Milwaukee Bucks á dögunum. Nú hefur verið greint frá því að Holiday er á leið til Boston Celtics í öðrum stórum skiptum NBA-deildarinnar á aðeins örfáum dögum.
Fyrrum leikstjórnandi San Antonio Spurs, Josh Primo, hefur verið dæmdur af NBA deildinni í fjögurra leikja bann vegna ásakana í hans garð um kynferðisofbeldi. Leikmaðurinn skrifaði svo undir samning við Los Angeles Clippers.
Sérfræðingar Subway Körfuboltakvölds völdu sitt draumalið í upphitunarþætti fyrir deildina sem hefst þann 5. október.
Tómas Valur Þrastarson, leikmaður Þórs Þorlákshafnar í Subway deild karla, er næsta stórstjarna deildarinnar samkvæmt sérfræðingum Körfuboltakvöldsins.
Nýliðum Álftaness er spáð góðu gengi í Subway-deild karla í vetur en liðið hefur styrkt sig mikið í sumar. Sérfræðingar Körfuboltakvölds fóru yfir stöðuna á Álftanesi og Teitur velti því upp hvort Kjartan Atli yrði mögulega fyrsti þjálfarinn til að fá reisupassann í vetur.
Damian Lillard hafði óskað eftir því við Joe Cronin, framkvæmdastjóra Portland Trail Blazers, að draga ósk sína um félagaskipti til baka þegar útséð var um að hann gæti gengið til liðs við Miami Heat.
LeBron James mun spila fyrir Los Angeles Lakers á sínu 21. tímabili í NBA deildinni í vetur. Þrátt fyrir að hafa misst mikið úr síðasta tímabili er hann staðráðinn í að komast í sitt allra besta leikform.
Íslandsmeistarar Tindastóls verja Íslandsmeistaratitil sinn ef marka má spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna sem var opinberuð á kynningarfundi Subway deildar karla í körfubolta í dag.
Damian Lillard er orðinn leikmaður Milwaukee Bucks í NBA deildinni í körfubolta eftir risaskipti milli þriggja félaga í gær.
Njarðvík þurfti að lúta í lægra haldi gegn Keflavík í lokaleik fyrstu umferðar Subway-deildar kvenna í körfubolta en bæði Reykjanesbæjarliðin ætla sér stóra hluti í vetur.
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var nokkuð brattur eftir 80-83 tap gegn erkifjendunum úr Keflavík í Subway-deild kvenna. Njarðvík var í dauðafæri til að stela sigrinum í lokin.
Hrefna Ottósdóttir var stjarna kvöldsins þegar nýliðar Þórs hófu leik í Subway deild kvenna með góðum sigri á Stjörnunni í gærkvöldi.
Berglind Gunnarsdóttir verður áfram sérfræðingur í Subway Körfuboltakvöldi kvenna og hún er spennt fyrir nýrri tíu liða deild í vetur.
Keflvíkingurinn Katla Rún Garðarsdóttir nær stórum tímamótum í kvöld þegar hún spilar tvö hundraðasta leik sinn í úrvalsdeild kvenna.
Grindavíkurkonur unnu góðan tíu stiga sigur er liðið tók á móti Fjölni í fyrstu umferð Subway-deildar kvenna í körfubolta í kvöld, 81-71. Sigur Grindavíkurkvenna var aldrei í mikilli hættu en þær þurftu þó að hafa töluvert fyrir honum.
Íslandsmeistarar Vals unnu öruggan 17 stiga sigur er liðið heimsótti Breiðablik í fyrstu umferð Subway-deildar kvenna í körfubolta í kvöld, 58-75.
Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur í Subway-deild kvenna, var sáttur með tvö stig á heimavelli í fyrsta keppnisleik Grindavíkur í meistaraflokki í nýjum og glæsilegum sal.
Þór Akureyri vann góðan níu stiga sigur er liðið tók á móti Stjörnunni í nýliðaslag 1. umferðar Subway-deildar kvenna í körfubolta í kvöld, 67-58.
Toronto Raptors þykir líklegast til að fá bandarísku körfuboltastjörnuna Damian Lillard.
Subway deild kvenna í körfubolta hefst í völd en hún tekur miklum breytingum á milli tímabila. Fleiri lið eru nú í deildinni, deildinni verður tvískipt um mitt tímabil og nú verða tvöfalt fleiri lið í úrslitakeppninni sem þýðir að deildin verður allt öðruvísi en í fyrra.
Subway deild kvenna í körfubolta hefst annað kvöld en hún tekur miklum breytingum á milli tímabila. Fleiri lið eru nú í deildinni, tvískipting mun eiga sér stað um mitt tímabil og tvöfalt fleiri lið komast í úrslitakeppnina sem þýðir að deildin verður allt öðruvísi en í fyrra.
Finnur Freyr Stefánsson þjálfari Vals var ánægður með sigur sinna manna gegn Tindastóli í Meistarakeppni KKÍ.
Valsmenn eru meistarar meistaranna eftir átta stiga sigur gegn Tindastóli á Sauðárkróki í kvöld. Kristófer Acox og Kristinn Pálsson áttu báðir frábæran leik fyrir Valsmenn.
Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Bilbao unnu í dag öruggan sigur í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
Allt útlit er fyrir að keppni í Subway-deildum karla og kvenna hefjist á réttum tíma eftir að samningar náðust á milli dómara og KKÍ í vikunni. Dómarar eiga þó eftir að greiða atkvæði um samninginn og samþykkja hann formlega.
Giannis Antetokounmpo hristi aðeins upp í NBA heiminum á dögunum þegar hann var gestur í hlaðvarpinu 48 minutes. Þar lét hann þau orð falla að ef hann ætti betri möguleika á vinna titilinn annarsstaðar yrði hann að taka honum.
Lítið virðist þokast í viðræðum um félagaskipti Damian Lillard frá Portland Trail Blazers en Miami Heat virðist ekki geta boðið neitt bitastætt til að koma skiptunum í kring.
Framkvæmdastjóri KKÍ segir götukörfubolta eða streetball hafa verið mikið til umræðu á nýafstöðnu ársþingi alþjóðakörfuknattleikssambandsins FIBA. Hann útilokar ekki að stofna landslið í greininni.