Ísrael

Ísrael

Höfuðborg: Jerúsalem (yfirlýst höfuðborg Ísraela þó að fæst ríki heims viðurkenni það). Mannfjöldi: 9,9 milljónir (2025). Flatarmál: 22.145 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám

Metfjöldi Ísraela gekk að kjörborðinu í dag en reiknað var með því að ríflega sjö milljónir manns greiddu atkvæði. Miðað við fyrstu útgönguspár mun hvorki fylking Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra né stjórnarandstaðan ná þeim 61 þingsætum sem þarf til að mynda meirihluta á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Kjörstaðir opnir í Ísrael

Kjörstaðir voru opnaðir í Ísrael í morgun í fyrstu þingkosningum frá árás Hamas-liða 7. október 2023, sem leiddi til blóðugra átaka á Gaza. Flestar skoðanakannanir benda til þess að stjórnarbandalag Benjamins Netanyahu forsætisráðherra muni missa meirihluta sinn á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti.

Erlent
Fréttamynd

Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól

Ríkisstjórn Donalds Trump hefur beitt frekari refsiaðgerðum gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum (ICC). Það var opinberað nokkrum klukkustundum eftir að fyrrverandi dómari við dómstólinn fékk friðarverðlaun Nóbels en Marco Rubio utanríkisráðherra segir aðgerðunum ætlað að lama starfsemi dómstólsins.

Erlent
Fréttamynd

Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú

Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segist vona að ísraelskir kjósendur hafni Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, og öðrum sem eru með honum í ríkisstjórn. Þörf væri á nýrri ríkisstjórn sem hefði trú á tveggja ríkja lausninni svokölluðu.

Erlent
Fréttamynd

„Skil­greinandi augna­blik“

Heimir Hallgrímsson sagði að írska landsliðið myndi líta til baka á þetta landsleikjahlé sem „skilgreinandi augnablik“ í sögu sinni, eftir gærkvöldið þar sem deilur komu upp í 1-1 jafntefli Íra gegn Ísrael.

Fótbolti
Fréttamynd

Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis

Sérkennilegar spurningar ísraelskra blaðamanna, þar á meðal einhverjar sem áttu ekkert skilt við fótbolta, ollu því að blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar var slitið snemma. Þá þurfti að koma einum blaðamanni burt í öryggisfylgd.

Fótbolti
Fréttamynd

Veittist að flug­stjóranum með öxi í til­raun til að fremja hryðju­verk

Aðstoðarflugmaður í flugi Flydubai FZ1073, sem var á leið frá Dúbaí til Tel Avív á miðvikudag, lagði á ráðin um hryðjuverk. Hann réðst á flugstjórann inni í flugstjórnarklefanum með neyðaröxi og reyndi að brotlenda flugvélinni en farþegar og áhöfn yfirbuguðu hann. Alls voru ríflega hundrað og sjötíu manns um borð í vélinni.

Erlent
Fréttamynd

Flug­maður stakk kollega sinn og reyndi að brot­lenda vélinni

Farþegar hjálpuðu til við að yfirbuga annan flugmann vélar Flydubai sem var á leið frá Dúbaí til Tel Avív í morgun. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir flugmanninn hafa stungið kollega sinn í flugstjórnarklefanum með hníf og hafi ætlað að brotlenda vélinni.

Erlent
Fréttamynd

Flug­vél beint annað eftir „slags­mál“ milli flug­manna

Farþegaþotu á leið frá Dúbaí til Tel Aviv í Ísrael var beint til Sádí-Arabíu eftir „slagsmál“ milli tveggja flugmanna vélarinnar. Áhöfn vélarinnar naut aðstoðar farþega við að yfirbuga annan flugmanninn og binda hendur hans fastar. Óljósar fregnir hafa borist af hníf í vélinni og að flugmenn úr hópi farþega hafi hjálpað til við lendingu.

Erlent
Fréttamynd

Vill gera á Vestur­bakkanum það sem gert var á Gasa

Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og formaður HaTziyonut HaDatit, segist vilja að Ísraelar fari í stríð á Vesturbakkanum, leysi Palestínustjórnina upp og beiti þar sambærilegum hernaðaraðferðum og á Gasaströndinni. Hann segist jafnframt vilja innlima hluta Gaza og landsvæði í Líbanon allt norður að Litani-fljóti.

Erlent
Fréttamynd

Ringul­reið hjá Heimi og leikur við Ís­rael í upp­námi

Mikil óvissa er uppi varðandi leik Írlands við Ísrael í Þjóðadeild UEFA á morgun. Blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar var frestað, hans lið hefur enn ekki mætt til æfinga og það berast af því óstaðfest tíðindi að leikmenn séu hættir við að gefa kost á sér í leikinn.

Fótbolti
Fréttamynd

Reyna að banna arabíska stjórn­mála­flokka

Sérstök þingnefnd um kosningar meinaði í vikunni stjórnmálaflokkum landsins sem leiddir eru af Aröbum að bjóða fram í þingkosningum næsta mánaðar. Fastlega er búist við því að hæstiréttur Ísrael muni ógilda ákvörðun nefndarinnar, sem er nánast eingöngu skipuð þingmönnum.

Erlent
Fréttamynd

Frægt fólk meðal hand­tekinna í New York

Yfir eitt hundrað voru handteknir á fjölmennum mótmælum í New York í gær í tengslum við ræðu Benjamins Netanyahu forsætisráðherra Ísraels á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Þekktir einstaklingar voru á meðal þeirra sem handteknir voru.

Erlent
Fréttamynd

Full­trúi Ís­lands yfir­gaf ekki salinn með hinum

Fulltrúi Íslands sat áfram á fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tók til máls. Fulltrúar fjölda ríkja gengu úr salnum á fimmtudag í mótmælaskyni en stríðsrekstur Ísraels á Gasa hefur verið harðlega gagnrýndur. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ekki í salnum þegar atvikið átti sér stað. 

Innlent
Fréttamynd

Tugir full­trúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls

Tugir fulltrúa ríkja á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gengu úr salnum þegar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels steig í ræðustól í New York í dag. Forsætisráðherrann lét sér fátt um finnast og kallaði fulltrúana siðferðislega hugleysingja.

Erlent
Fréttamynd

Opið bréf til ríkis­stjórnar Ís­lands - Á­kall um að­gerðir vegna þjóðarmorðs

Í nánast þrjú ár hefur ríkisstjórn síonista í Ísrael framið þjóðarmorð á Gaza. Alþjóðalög eru brotin daglega af ógnargrimmum her ríkis síonista, með kerfisbundnum árásum á óbreytta borgara, vísvitandi og markvisst er skotið á börn. Þá er heilbrigðisstarfsfólk, hjálparstarfsmenn og blaðamenn drepin markvisst. Fólk er sprengt, skotið, brennt, limlest og beitt andlegum og líkamlegum pyntingum.

Skoðun