Íslenska krónan

Íslenska krónan

Allt er viðkemur ríkisgjaldmiðlinum.

Fréttamynd

Verð­bólgan verði þrá­lát út árið

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,45 prósent í október frá fyrri mánuði og að ársverðbólga muni þannig haldast óbreytt í 5,9 prósentum. Spáð er að verðbólga verði áfram þrálát út árið og skapi þróun olíuverðs nokkra óvissu um skammtímahorfurnar.

Viðskipti innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hærri vextir og sterkari króna draga verðmat Brims niður

Verðmat á Brim er lækkað nokkuð þrátt fyrir að afkomuhorfur hafi batnað eftir sterkan fyrri helming ársins. Hækkun erlendra vaxta og mikil styrking krónunnar vega þar þungt en hlutabréfagreinandi telur nú talsverðan mun á undirliggjandi verðmæti Brims og markaðsvirði sjávarútvegsfélagsins.

Innherjamolar
Fréttamynd

Gæti gefið eftir með haustinu en munum ef­laust á­fram búa við sterka krónu

Góð staða helstu útflutningsgreina, sem birtist meðal annars í hækkandi afurðaverði í sjávarútvegi og „mjög sterku“ ferðamannasumri, samhliða háu vaxtastigi hefur ýtt undir gengishækkun krónunnar og er raungengið núna í hæstu hæðum. Sérfræðingur á gjaldeyrismarkaði segir að á meðan sú staða helst óbreyttu sé fátt sem bendi til þess að gengið muni hreyfast mikið og því áfram útlit fyrir sterka krónu.

Innherji
Fréttamynd

Gengis­styrking krónunnar að undan­förnu kemur BlueBay „alls ekki á ó­vart“

Gengisstyrking krónunnar að undanförnu kemur einu stærsta skuldabréfastýringarfélagi Evrópu, sem er jafnframt umsvifamikill eigandi íslenskra ríkisskuldabréfa, ekki á óvart en hann telur að ef já-ið verður ofan í þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort hefja eigi á nýjan leik aðildarviðræður við ESB þá muni fjárfestar fara að veðja á samleitni vaxta við evrusvæðið.

Innherji
Fréttamynd

Þrátt fyrir mikla hækkun er raun­gengið talið að­eins „ör­lítið“ yfir­verðlagt

Á meðan sum útflutningsfyrirtæki eru í auknum mæli farin að kvarta undan skertri samkeppnishæfni vegna sögulega hás raungengis krónunnar þá sýnir nýlegt mat bæði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Seðlabanka Íslands að það er ekki mjög yfirverðlagt með hliðsjón af því sem samrýmist þjóðhagslegu jafnvægi. Sjóðurinn hefur ekki áhyggjur af sjálfbærni erlendrar stöðu þjóðarbúsins, þótt hún hafi veikst eilítið síðustu ár, en varar við því að hækki launakostnaður áfram umfram framleiðniaukningu muni það grafa undan stöðu útflutningsgreina.

Innherji
Fréttamynd

Ís­land og evran

Við þekkjum öll að verðlag á Íslandi er hærra en víðast annars staðar. Okkur er sagt að launin séu há og vissulega koma oft margar krónur í launaumslagið en við fáum óþarflega lítið fyrir þær. Af hverju er verðlag svona hátt hér á landi og hefur verið það svo lengi sem menn muna, sérstaklega matarverð? Er þetta eitthvað sem við þurfum að sætta okkur við um ókomna framtíð?

Skoðun
Fréttamynd

Þriðja vaxta­hækkunin í röð en sjá fram á hratt hjaðnandi verð­bólgu á næsta ári

Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur í takt við væntingar hækkað meginvexti bankans um 25 punkta, sem er núna komnir á sama stað og snemma árs í fyrra, enda þótt einn nefndarmaður hefði kosið óbreytta vexti. Yfirlýsing bankans ber með sér mildari tón en áður og bent er á að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna á suma mælikvarða.

Innherji
Fréttamynd

Bein út­sending: Rök­styðja stýrivaxtahækkun

Þau Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, kynna ákvörðun peningastefnunefndar og nýútgefin Peningamál á blaðamannafundi klukkan 09:30. Fundinn má sjá hér á Vísi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hækka stýrivexti

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Við­reisn fjar­lægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“

Færsla þar sem æðruleysisbæninni hafði verið breytt í svokallaða „krónuleysisbæn“ var birt í dag, sunnudaginn 16. ágúst, á Facebook-síðu Viðreisnar en henni var skömmu seinna eytt út. Framkvæmdastjóri Viðreisnar segir ástæðuna einfaldlega þá að viðbrögðin við færslunni hafi verið verri en búist var við en að það hafi aldrei verið ætlunin að særa neinn með þessari uppfærðu útgáfu af bæninni.

Innlent
Fréttamynd

Seðla­bankinn upp­færði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórn­völd vilja segja

Daði Már vitnar í fjórtán ára gamla greiningu Seðlabanka Íslands en sleppir því að sami banki hefur síðan endurmetið höggdeyfihlutverk krónunnar — fyrst 2017 og nú aftur með gögnum til 2025. Jóhann Páll byggir sömuleiðis á þeirri mynd að höggdeyfihlutverkið sé veikt án þess að nefna nýrra mat bankans. Ef málstaður stjórnvalda er góður ætti hann að þola allar staðreyndir — ekki aðeins þær sem henta pólitískum málflutningi.

Skoðun
Fréttamynd

Höggdeyfir fyrir hverja?

Algeng rök fyrir því að halda í íslensku krónuna eru þau að hún virki sem mikilvægur höggdeyfir: að fljótandi gengi auðveldi hagkerfinu að laga sig að efnahagsáföllum; án sjálfstæðrar myntar þyrfti aðlögunin að fara fram með sársaukafyllri hætti gegnum ríkisfjármál og vinnumarkað.

Skoðun
Fréttamynd

Verði að hætta að benda hver á annan

Verðbólga mælist 5,3 prósent og allt bendir til þess að verðbólguskilyrði kjarasamninga standist ekki í september. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að aðilar vinnumarkaðarins verði að hætta að benda hver á annan og taka höndum saman til að draga úr verðbólgu í landinu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Laun hækka um­fram verð­bólgu

Hagstofan hefur birt tölur fyrir júnímánuð og hækkaði launavísitala um 0,2 prósent frá fyrri mánuði. Greint var frá því fyrr í morgun að verðbólga hækki milli mánaða en hún mælist nú 5,3 prósent á ársgrundvelli.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Verð­bólga eykst enn

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,36 prósent á milli mánaða og er 693,2 stig. Ársverðbólga mælist nú 5,3 prósent, 0,1 stigi meiri en í síðasta mánuði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ævi­saga krónunnar

Merkilegar tilviljanirnar. Ég datt ofan í að lesa ævisögu krónunnar. Mjög merkileg saga en í raun saga þrautseigju og vonar. Við sem erum komin á efri ár munum eftir þessu basli krónunar.

Skoðun