Al-Sadr reynir að semja Bráðabirgðastjórnin í Írak segir að sjíta klerkurinn Moqtada al-Sadr sé að semja um að fá að yfirgefa bænahús í borginni Najaf, óáreittur. Klerkurinn hefur haldið sig þar síðan Bandaríkjamenn hófu stórsókn inn í borgina í gær. Erlent 13. ágúst 2004 00:01
Najaf hertekin Bandarískar og írakskar hersveitir hafa hertekið miðborg Najaf í stórfelldri árás þar sem beitt hefur verið bæði þyrlum og skriðdrekum. Skilaboð árásarsveitanna til uppreisnarmannanna eru einföld: farið eða þið deyið. Erlent 12. ágúst 2004 00:01
Þúsundir flýja Najaf Þúsundir íbúa flýja nú íröksku borgina Najaf, þar sem Bandaríkjamenn og írakskar öryggissveitir berjast hatrammlega gegn skæruliðum, meðan aðrir íbúar þustu út á götur til að mótmæla. Bandaríkjamenn aka um borgina og kalla til íbúa í gegnum gjallarhorn að ætlunin sé að svæla út uppreisnarmenn úr röðum sjíta-múslima sem þeir hafa barist við nær linnualust í heila viku. Erlent 12. ágúst 2004 00:01
360 fallnir og þúsundir flúnar Bandaríkjamenn segjast hafa fellt þrjú hundruð og sextíu uppreisnarmenn í stórsókn sinni í borginni Najaf. Þúsundir borgarbúa hafa flúið vegna bardaganna. Erlent 12. ágúst 2004 00:01
Hvattir til uppgjafar Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, hvatti andspyrnuhreyfingu sjíta-múslima til að leggja niður vopn fyrr í dag en þeir hafa barist hatrammlega við hernámsliðið í nokkrum borgum Íraks í dag. Hann hvatti þá jafnframt til að ganga til liðs við „pólitíska framþróun“ landsins eins og það er orðað í erlendum fréttamiðlum. Erlent 12. ágúst 2004 00:01
Al-Sadr fer hvergi Átök brutust út í íröksku borginni Najaf í morgun, sjötta daginn í röð. Viðlíka átök hafa verið í sjítahverfum í fleiri borgum Íraks, þar á meðal í höfuðborginni Bagdad, þar sem sprengja sprakk í vegkanti í morgun. Erlent 10. ágúst 2004 00:01
900 Bandaríkjamenn hafa fallið Rúmlega níu hundruð bandarískir hermenn hafa látið lífið í Írak en flestir þeirra, eða rúmlega átta hundruð, létust eftir að George Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu í Írak væri lokið í maí á síðasta ári. Af níu hundruð hafa yfir tvö hundruð látist af slysförum. Erlent 10. ágúst 2004 00:01
Skemmdarverk á olíuleiðslum Skemmdarverk voru unnin á annarri af tveimur olíuleiðslum á Faw-skaganum í Írak í morgun. Leiðslan er hundrað og tuttugu metrar í þvermál og vegna skemmdanna hefur framleiðslugeta Íraka minnkað úr 1,9 milljónum tunna á dag í 1,1 milljón. Erlent 10. ágúst 2004 00:01
Bardagar í hverfum sjíta-múslima Harðir bardagar geisa í hverfum sjíta-múslima í nokkrum borgum Íraks, þar á meðal í Najaf þar sem átök hafa staðið yfir nær linnulaust í fimm daga. Klerkur sjíta, Moqtada al-Sadir, segir fylgismenn sína ekki ætla að leggja niður vopn. Erlent 9. ágúst 2004 00:01
6 látnir og 17 særðir Bílsprengja varð sex manns að bana og særði sautján í borginni Baquba, norður af Bagdad, í Írak í morgun. Sprengjan sprakk fyrir utan hús ríkisstjóra á svæðinu sem var fluttur á spítala en ekki er vitað um afdrif hans. Erlent 9. ágúst 2004 00:01
Danir styðja Bandaríkjamenn Forsætisráðherra Danmerkur segir að Danir standi þétt við bakið á Bandaríkjamönnum í Íraksstríðinu, þrátt fyrir neikvæðar skýrslur og harða gagnrýni á gang mála. Hann tekur undir áhyggjur danskra fjölmiðla sem óttast hefndaraðgerðir vegna fregna af pyntingum danskra hermanna á írökskum föngum. Erlent 9. ágúst 2004 00:01
Blóðbað í Najaf Harðir bardagar milli íraskra uppreisnarmanna og bandarískra hermanna í hinni helgu borg Najaf síðustu tvo daga hafa kostað 300 uppreisnarmenn lífið að sögn bandarísku herstjórnarinnar í Írak. Tugir til viðbótar hafa látist í bardögum annars staðar á svæðum sjíamúslima að sögn íraskra stjórnvalda. Erlent 6. ágúst 2004 00:01
Barist í nokkrum borgum Tveir bandarískir hermenn létu lífið í hörðum átökum í Najaf í Írak í dag. Írakskir og bandarískir hermenn berjast við árásarmenn í nokkrum borgum í landinu og ekkert lát er á árásum. Erlent 6. ágúst 2004 00:01
Al-Sadr neitar miklu mannfalli Talsmaður sjítaklerksins Moqtada al-Sadr neitar þeim fréttum Bandaríkjamanna að þrjú hundruð írakskir uppreisnarmenn hafi fallið í tveggja daga bardögum í borginni Najaf. Hann segir þrjátíu og sex af þeirra mönnum látna. Erlent 6. ágúst 2004 00:01
Bandarísk þyrla skotin niður Bandarísk þyrla var skotin niður af uppreisnarmönnum í borginni Najaf í Írak í morgun. Þrír hermenn í þyrlunni særðust og voru þeir fluttir í burtu. Erlent 5. ágúst 2004 00:01
Enn barist í Najaf Enn er barist að hluta til á götum borgarinnar Najaf í Írak en að sögn talsmanna bandaríska hersins hefur þeim tekist að einangra uppreisnarmennina og halda þeim í skefjum. Vígamenn gerðu árás á lögreglustöð í borginni í gærkvöldi og í kjölfarið brutust út átök milli lögreglunnar og uppreisnarmanna. Erlent 5. ágúst 2004 00:01
Sprenging fyrir utan lögreglustöð Að minnsta kosti fimm létust og tuttugu og einn særðist þegar bílsprengja sprakk fyrir utan lögreglustöð suður af Bagdad í Írak í morgun. Uppreisnarmenn skutu einnig eldflaugasprengju að brú í Bagdad. Þá börðust bandarískir hermenn og írakskar öryggissveitir við skæruliða úr röðum írakska klerksins Moqtada al-Sadr í borginni Najaf í nótt. Erlent 5. ágúst 2004 00:01
Átök í Mósúl í morgun Til harðra átaka kom í borginni Mósúl í Norður-Írak á milli uppreisnarmanna og íröksku lögreglunnar í morgun og hafa átökin nú staðið yfir í nokkra klukkutíma. Samkvæmt upplýsingum frá Reuters-fréttastofunni brutust út átök á fleiri en einum stað í borginni og mátti heyra í það minnsta sex háværar sprengingar. Erlent 4. ágúst 2004 00:01
Harðir bardagar í Mósúl Í það minnsta 20 létust í hörðum bardaga í borginni Mósúl í Norður-Írak í morgun. Þetta eru mannskæðustu átök í Írak frá því að Írakar tóku aftur við völdum í landinu. Barist var á nokkrum stöðum í borginni, þar á meðal í miðbænum. Erlent 4. ágúst 2004 00:01
Gíslar látnir lausir Uppreisnarmenn hafa látið nokkra gísla lausa í Írak í morgun en þeir eru flestir bílstjórar eða vinna fyrir erlend fyrirtæki sem starfa fyrir Bandaríkjaher. Fyrirtækin hafa í flestum tilfellum lofað að draga starfsemi sína út úr Írak til að fá gíslana lausa. Á meðal þeirra sem látnir hafa verið lausir eru tveir Tyrkir. Erlent 4. ágúst 2004 00:01
Blóðbað í Baqouba Ein mannskæðasta sprengjuárás frá innrás Bandaríkjamanna í Írak kostaði 51 óbreyttan borgara lífið í borginni Baqouba í gær. Hryðjuverkaógn vofir yfir fulltrúafundi um næstu helgi sem leggja á grunn að þjóðþingi Íraka. </font /></b /> Erlent 29. júlí 2004 00:01
Eldflaugarárás nærri Græna svæðinu Að minnsta kosti einn írakskur borgari lést og annar særðist þegar skæruliðar skutu eldflaugasprengju í miðri Bagdad í morgun. Sprengjan lenti nærri „Græna svæðinu“ svokallaða þar sem eru sendiráð Bandaríkjanna og aðsetur íröksku bráðabirgðastjórnarinnar. Nokkrir bílar skemmdust í árásinni en sprengjum hefur ítrekað verið skotið á svæðið. Erlent 27. júlí 2004 00:01
Egypska embættismanninum sleppt Mannræningjar í Írak slepptu egypskum embættismanni úr haldi í gær. Utanríkisráðherra Egypta segir manninn við góðu heilsu en honum var rænt á föstudag þegar hann var að ganga út úr bænahúsi. Erlent 27. júlí 2004 00:01
Ættingjar gísls hótuðu drápum Sex Írakar særðust er sprengja sprakk í borginni Fallujah í Írak í dag. Vígamenn eru grunaðir um verknaðinn. Hryðjuverkamenn hafa hótað árásum á veginum milli Jórdaníu og Íraks en mesta umferðin þar á milli er á vegum Bandaríkjahers. Talið er að þetta sé sami hópur og rændi jórdönsku bílstjórunum í gær. Erlent 27. júlí 2004 00:01
Dráp og mannrán halda áfram Vígamenn í Írak drápu átta manns í dag, þar á meðal háttsettan embættismann úr innanríkisráðuneytinu. Ekkert lát er á mannránum en tveimur Jórdönum og tveimur Pakistönum var rænt í dag til viðbótar við þá sjö gísla sem hafa setið í haldi í rúma viku. Erlent 26. júlí 2004 00:01
Háttsettur Íraki myrtur Þrír létust í sjálfsmorðsárásum í borginni Mósúl í Írak í morgun og háttsettur embættismaður var myrtur á heimili sínu í Bagdad. Árásum í Írak fer fjölgandi. Erlent 26. júlí 2004 00:01
13 skæruliðar drepnir Varnarliðsmenn í Írak drápu þrettán skæruliða í hörðum bardögum utan við borgina Baquba í morgun. Skæruliðarnir réðust til atlögu með sprengjuvörpum og handsprengjum á varnarliðsmenn þar sem þeir aðstoðuðu bandaríska hermenn við að brjóta á bak aftur skyndiáhlaup í Baquba. Erlent 25. júlí 2004 00:01
Pyntingatól í Írak Pyntingartól sem Údei Hussein notaði til að refsa íþróttamönnum í stjórnartíð Saddams, föður hans, voru höfð til sýnis á þjóðarleikvangi Íraka í Bagdad í gær. Þetta var gert í tilefni Ólympíuleikanna sem haldnir verða í næsta mánuði til að minna á að ógnarstjórnin sé liðin undir lok. Erlent 25. júlí 2004 00:01
Áströlum og Írökum hótað Ástralíu og Ítalíu hafa borist hótanir um hryðjuverk frá samtökum, sem talin eru tengjast Al-Kaída, flytji löndin ekki heri sína heim frá Írak. Utanríkisráðherra Ástralíu segist taka hótunina alvarlega en ekki komi til greina að láta undan kröfum hryðjuverkamanna. Erlent 25. júlí 2004 00:01
Embættismanni rænt í Írak Háttsettur embættismaður frá Egyptalandi er nú í haldi írakskra skæruliða ásamt sjö öðrum gíslum. Egyptinn, Momdoh Kotb að nafni, er einn af aðalerindrekum Egypta í Írak og segjast skæruliðarnir hafa tekið hann í gíslingu vegna tilboðs Egypta um að hjálpa til við öryggismál í landinu. Erlent 24. júlí 2004 00:01