HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta karla fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó dagana 11. júní til 19. júlí 2026.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu

    Óhætt er að segja að hinn fertugi markvörður Grænhöfðaeyja, Vozinha, hafi slegið í gegn þegar hann hélt markinu hreinu gegn Evrópumeisturum Spánar á HM í fótbolta í gær. Tárin streymdu hjá honum eftir leik.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Skot­sýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis

    Sádi-Arabar þekkja það að koma á óvart í fyrsta leik á HM í fótbolta, enda unnu þeir þá verðandi heimsmeistara Argentínu á HM fyrir fjórum árum, og þeir voru nálægt því að vinna einnig Úrúgvæ óvænt í gærkvöld.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM

    Samtök sem hafa eftir­lit með því hvort mis­munun eigi sér stað á yfir­standandi Heims­meistaramóti í fót­bolta hafa farið þess á leit við FIFA að dómari á mótinu verði sendur heim. Hann er sagður hafa, í beinni út­sendingu, með handa­bendingu gert merki sem er tengt við öfga hægri hóp hvítra yfir­burðar­sinna.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Var­kár Van Dijk vill ekki sjá vatnspásur

    Virgil van Dijk, fyrirliði Hollands, forðaðist að láta stór orð falla en lét þó í ljós óánægju sína með þriggja mínútna pásurnar sem gerðar eru í hvorum hálfleik í öllum leikjum á HM í fótbolta.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Rekinn eftir einn leik á HM

    Knattspyrnusamband Túnis hefur ákveðið að reka Sabri Lamouchi úr starfi landsliðsþjálfara, eftir aðeins einn leik á HM, en liðið steinlá gegn Svíþjóð í nótt, 5-1.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    „Skyldan kallar hjá kærastanum“

    Justin Trudeau, fyrrverandi forsætisráðherra Kanada, sá ástæðu til að afsaka þá umdeildu ákvörðun sína að mæta á fyrsta leik Bandaríkjanna á HM í fótbolta í stað þess að mæta á fyrsta leik þjóðar sinnar.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna

    Eftir að hafa farið bakdyraleið inn á HM og komist þangað með herkjum þá hófu Svíar mótið með miklum glæsibrag í nótt þegar þeir unnu 5-1 sigur á Túnis í F-riðli. Fílabeinsströndin vann dísætan 1-0 sigur gegn Ekvador í E-riðli.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    „Ég ætla að halda mig til hlés“

    Sir Gareth Southgate, fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands, segist hafa hafnað starfi sem sérfræðingur á heimsmeistaramótinu í fótbolta þar sem hann taldi það ekki „hjálplegt“ fyrir möguleika liðsins.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    „Fyrir­gefið okkur, vin­sam­legast“

    Tyrklandi var spáð sigri í fyrsta leik liðsins á heimsmeistaramótinu í fótbolta en var refsað miskunnarlaust af Ástralíu í skyndisóknum. Ástralía vann leikinn 2-0 og úrslitin eru mikið áfall fyrir tyrknesku þjóðina.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Ó­væntur varnarsigur

    Ástralía vann frábæran sigur á Tyrklandi á heimsmeistaramótinu í fótbolta í nótt. Það reyndi mikið á vörn Ástrala þar sem Tyrkir voru meira með boltann en náðu aldrei að koma sér í nógu góð færi.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    For­seti FIFA móðgaði Ítali

    Gianni Infantino, forseti FIFA, vakti mikið uppnám á Ítalíu eftir að hann gerði grín að lélegum árangri Ítalíu á heimsmeistaramóti karla í fótbolta. Það er óhætt að segja að honum hafi tekist að móðga Ítala.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Fjörið og fegurðin var í fyrri hálf­leik

    Brasilía og Marokkó gerðu 1-1 stórmeistarajafntefli í fyrsta uppgjöri stóru þjóðanna á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Marokkómenn komust yfir í fjörugum fyrri hálfleik en Brasilíumenn voru búnir að jafna eftir ellefu mínútur.

    Fótbolti