

Handbolti
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Stiven spilar sinn fyrsta leik á HM
Vinstri hornamaðurinn Stiven Tobar Valencia er kominn inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn við Argentínu á HM í handbolta í dag. Sigvaldi Björn Guðjónsson er hins vegar ekki með.

Er í 90 prósent tilfella nóg
„Manni líður ekkert vel. En eins og staðan er núna þurfum við bara að vinna næsta leik og munum gera það sem við getum til að vinna leikinn,“ segir Ýmir Örn Gíslason á hóteli íslenska landsliðsins í Zagreb degi eftir skell gegn Króötum.

Gætið ykkar: Engir bræður en einn heitur frá Benidorm
Það er líklega ekki margt sem ber að varast fyrir íslenska landsliðið í dag, gegn slöku liði Argentínu. Ísland verður að vinna leikinn en þarf svo að treysta á að Grænhöfðaeyjar taki stig gegn Egyptalandi, eða að Slóvenía taki stig gegn Króatíu.

HM í dag: Fréttamaður í lífshættu og kvöldið ónýtt
Mikil svaðilför á steikhús í Zagreb er rakin í HM í dag. Einn kafnaði næstum því á matnum, aðrir köfnuðu næstum úr skítafýlu og annar sturtaði sér yfir þjóninn vegna afgreiðslunnar.

Loforð Slóvena: Ætla að eyðileggja partýið hjá nágrönnum sínum
Íslendingar þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að Slóvenar mæti í sinn síðasta leik á HM í handbolta í kvöld án þess að leggja allt í sölurnar til þess að vinna nágranna sína í Króatíu.

„Svekkjandi ef einn hálfleikur eyðileggur mótið hjá okkur“
„Þetta er gríðarlega þungt og maður svona hálfpartinn trúir þessu ekki enn þá. Þetta er staðan og við erum enn að spila fyrir Ísland þannig að við verðum að rífa okkur upp og spila vel gegn Argentínu,“ segir Viggó Kristjánsson en hann var enn að sleikja sárin eftir Króataleikinn er Vísir hitti hann í gær.

Ótrúlegt atvik á HM: Þjálfari Dana hrinti boðflennu sem dreifði rusli
Nikolaj Jacobsen, þjálfari heimsmeistara Danmerkur, reiddist og ýtti í burtu aðgerðasinna sem hljóp inn á völlinn í Boxen í gær, þegar Danir og Tékkar áttust við á HM í handbolta. Maðurinn dreifði konfettí um gólfið og sameinuðust leikmenn og starfsmenn um að hreinsa til eftir hann.

Býst ekki við neinni aðstoð frá Slóvenum
Snorri Steinn Guðjónsson var boginn en ekki brotinn þegar hann var tekinn tali á hóteli íslenska karlalandsliðsins í handbolta í gær. Hann stefnir á sigur á Argentínu í dag en eftir það þarf íslenska liðið að treysta á önnur úrslit til að eiga möguleika á sæti í 8-liða úrslitum.

„Viljum sýna hvað við erum góðir“
„Þetta var svolítið skrýtin nótt og mikið að meðtaka,“ sagði landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson svefnlítill er Vísir hitti á hann á hóteli landsliðsins í dag.

Frakkland og Þýskaland í átta liða úrslit
Frakkland og Þýskaland, lærisveinar Alfreðs Gíslasonar, eru komin í átta liða úrslit HM karla í handbolta. Frakkar fara þangað með fullt hús stiga líkt og Danir.

Danir áfram með fullt hús stiga
Danmörk heldur áfram að vinna örugga sigra á HM karla í handbolta. Nú voru það Tékkar sem lágu í valnum.

Aldís Ásta fór á kostum
Aldís Ásta Heimisdóttir átti frábæran leik þegar Skara lagði Kristianstad í efstu deild sænska kvennahandboltans í dag.

Allir vonsviknir af velli í Varazdin
Austurríki og Holland urðu á endanum að sætta sig við jafntefli, 37-37, í milliriðli tvö á HM karla í handbolta í dag. Það eykur líkurnar á að Ungverjar fylgi Frökkum upp úr riðlinum, og í 8-liða úrslit við lið úr milliriðli Íslands.

Fljúgandi start og Fram jók á raunir Eyjakvenna
Fram kom sér aftur upp fyrir Hauka í 2. sæti Olís-deildar kvenna í handbolta í dag með öruggum sigri gegn ÍBV í Vestmannaeyjum, 25-17.

Vildi Viktor aftur inn í fyrri hálfleik: „Gekk andskotinn ekkert upp“
Þeir Bjarni Fritzson og Ásgeir Örn Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsmenn Íslands í handbolta gerðu upp svekkjandi sex marka tap Íslands gegn Króatíu á HM í handbolta í hlaðvarpssætinu Besta sætið. Þar veltu þeir vöngum yfir því hvað betur hefði mátt fara í leik íslenska liðsins.

Gengst við því að hafa gert mistök
„Mér líður bara eins og eftir þungt högg. Þetta er erfitt. Þetta voru gríðarleg vonbrigði. Eftir góða leiki að ná ekki að fylgja því eftir. Að einn svona slakur hálfleikur geti verið svona dýr er leiðinlegt,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, í samtali við Vísi degi eftir slæmt tap fyrir Króatíu.

Alfreð missti föður sinn sama dag og hann mætti Dönum á HM
Gísli Bragi Hjartarson múrarameistari og fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri er látinn. Gísli, sem var á 86. aldursári, er faðir Alfreðs Gíslasonar, landsliðsþjálfara Þýskalands og fyrrverandi landsliðsmanns í handbolta og lést hann á þriðjudaginn síðastliðinn, 21.janúar, sama dag og Alfreð stýrði Þýskalandi gegn Danmörku á HM í handbolta.

HM í dag: Erfitt kvöld með erkifífli
Það voru þyngsli í HM í dag eftir slaka frammistöðu strákanna okkar gegn Króatíu sem fer að líkindum langt með að senda þá heim.

Bjarni var kominn á lista hjá Icelandair: „Rotaðir frá fyrstu mínútu“
Stemningin og meðbyrinn sem var með íslenska landsliðinu á HM í handbolta hvarf snarlega með tapinu gegn Króatíu í gærkvöld. Fólk sem ætlaði að fljúga til Zagreb á 8-liða og jafnvel undanúrslitaleik hjá Íslandi heldur núna í veika von.

Sjáðu markið sem hefði bjargað Íslandi á HM
Eins og vonbrigðin yfir tapi Íslands gegn Króatíu í gærkvöld séu ekki nógu mikil þá nístir sjálfsagt inn að beini að jöfnunarmark Slóvena gegn Egyptum, sem hefði svo gott sem komið Íslandi inn í 8-liða úrslitin, skyldi ekki fá að standa í gær.

Ásgeir Örn: „Eigum okkur eiginlega engar málsbætur með þetta“
Ásgeir Örn Hallgrímsson fór yfir varnarleik íslenska karlalandsliðsins í handbolta í tapinu fyrir Króatíu, 32-26, í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar.

Myndasyrpa frá svekkelsinu í Zagreb
Ísland tapaði fyrir heimaliði Króatíu, 32-26, í öðrum leik sínum í milliriðli 4 á heimsmeistaramótinu í handbolta karla í gær. Fyrir vikið eru möguleikar Íslendinga á að komast í átta liða úrslit orðnir ansi litlir.

Skýrsla Vals: Svartur Dagur í Zagreb
Það er einn Íslendingur sem á hrós skilið eftir þungt kvöld í Zagreb. Því miður er það Dagur Sigurðsson.

Hvernig kemst Ísland áfram?
Von íslenska karlalandsliðsins í handbolta á að komast í átta liða úrslit á HM er ansi veik eftir slæmt tap fyrir Króatíu í kvöld, 32-26. En hvað þarf að gerast til að Ísland komist upp úr milliriðli 4 og í átta liða úrslit?

Samfélagsmiðlar eftir tapið: „Ömurleg auglýsing fyrir McDonald‘s“
Landsliðsmenn Íslands voru verðlaunaðir með McDonald‘s hamborgurum eftir sigurinn í síðasta leik. Þeir eiga engar hamingjumáltíðir skilið í kvöld ef marka má Íslendinga sem tjáðu sig á samfélagsmiðlum um tapið slæma gegn Króatíu.

Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Hér varð hrun
Eftir að hafa unnið fyrstu fjóra leiki sína á HM á íslenska karlalandsliðið í handbolta allt í einu litla möguleika á að komast í átta liða úrslit eftir stórt tap fyrir Króatíu, 32-26, í Arena Zagreb í kvöld.

„Fyrri hálfleikurinn var alveg frábær“
„Við fengum rosa góða byrjun á leiknum, vörnin var alveg hrikalega sterk og markvarslan góð. Fengum ekkert hraðaupphlaup út úr því en náðum að komast í sóknirnar og klára þær ágætlega,“ sagði landsliðsþjálfari Króatíu, Dagur Sigurðsson, eftir sigurinn gegn Íslandi.

Logi Geirs: „Það er ótrúlegt að liðið sé komið í þessa stöðu“
Logi Geirsson var sleginn eins og fleiri Íslendingar eftir stóra tapið á móti Króatíu í kvöld. Hvernig er hægt að klúðra mótinu í einum hálfleik?

„Verðum bara að vera bjartsýnir og hafa trú“
„Þetta er ótrúlega svekkjandi,“ sagði Elliði Snær Viðarsson eftir tapið gegn Króatíu á HM í handbolta í kvöld. Hann heldur þó í bjartsýnina og von um sæti í 8-liða úrslitum.

Tölfræðin á móti Króatíu: Níu prósent markvarsla í fyrri hálfleik
Íslenska karlalandsliðið í handbolta fékk slæman skell á móti Króatíu í öðrum leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta. Liðið mátti ekki tapa með fjórum mörkum eða meira en skellurinn var stærri. Sex marka tap kippti íslenska liðinu harkalega niður á jörðina og hálfa leið út úr mótinu.