Þorsteinn skiptir um markvörð og tvo framherja Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerir þrjár breytingar á byrjunarliði íslenska liðsins fyrir fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2025. Fótbolti 5. apríl 2024 15:38
Ein besta vinkonan í landsliðinu orðin liðsfélagi hennar í Svíþjóð Landsliðsframherjinn Hlín Eiríksdóttir hefur verið í miklu stuði á undirbúningstímabilinu með Kristianstad í Svíþjóð en í dag verður hún í eldlínunni með íslenska landsliðinu í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2025. Fótbolti 5. apríl 2024 15:00
Man United neitar að læra Manchester United mátti þola 4-3 tap gegn Chelsea á Brúnni í leik liðanna í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á fimmtudagskvöld. Var það enn einn leikurinn á tímabilinu þar sem liðið fær á sig tvö mörk með stuttu millibili. Enski boltinn 5. apríl 2024 14:31
Kunnugleg andlit á nýjum slóðum og spennandi nýliðar Besta deild karla í knattspyrnu fer af stað á morgun, laugardag. Þar verður Ingvar Jónsson, besti markvörður deildarinnar undanfarin ár, í sviðsljósinu og þá reiknar Vísir með að Árni Snær Ólafsson standi vaktina í marki Stjörnunnar líkt og á síðasta tímabili. Fótbolti 5. apríl 2024 14:00
Uppselt í dag þó leikið sé snemma: „Ekki leiktíminn sem ég myndi velja“ „Þetta er ekki leiktíminn sem ég myndi velja mér,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta sem mætir Póllandi á Kópavogsvelli í dag, í fyrsta leik í undankeppni EM. Fótbolti 5. apríl 2024 12:01
Einn besti framherji heims í Kópavogi í dag: „Þeirra langbesti leikmaður“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta byrjar nýja undankeppni fyrir EM á Kópavogsvelli í dag, með leik við Pólland. Í pólska liðinu er markadrottningin Ewa Pajor langþekktasta nafnið. Fótbolti 5. apríl 2024 10:30
Man Utd yfir þegar 99 mín. og 17 sek. voru komnar á klukkuna Manchester United tapaði á einhvern ótrúlegan hátt 4-3 fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu þegar liðin mættust á Brúnni í Lundúnum á fimmtudagskvöld. Man United var 3-2 yfir þegar níu mínútur og sautján sekúndur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Enski boltinn 5. apríl 2024 10:01
Styttist í endurkomu en framlengir ekki í París Berglind Björg Þorvaldsdóttir, leikmaður París Saint-Germain í Frakklandi, er við það að snúa aftur á völlinn eftir barnsburð. Hún mun þó ekki spila með PSG þar sem samningur hennar rennur út nú í sumar og það er ljóst að framherjinn knái mun færa sig um set. Fótbolti 5. apríl 2024 08:30
Langur batavegur framundan: „Ég grenjaði bara af sársauka“ Fótboltamaðurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson verður frá um hríð vegna svæsinna veikinda sem herjuðu á hann á dögunum. Síðustu dagar hafa verið honum þungbærir. Íslenski boltinn 5. apríl 2024 07:31
Róbert Orri sendur á láni frá Montreal Íslenski knattspyrnumaðurinn Róbert Orri Þorkelsson hefur verið lánaður til norska félagsins Konsvinger í næstefstu deild Noregs frá MLS liði Montreal. Þetta staðfestir Montreal í yfirlýsingu á heimasíðu sinni. Fótbolti 4. apríl 2024 17:13
Synir Messi og Suárez unnu bikar saman Thiago Messi og Benjamín Suárez eru liðsfélagar hjá unglingaliði Inter Miami og þeir eru byrjaðir að vinna bikara saman. Fótbolti 4. apríl 2024 17:01
Æfðu víti með hátalara á vellinum og Glódís beðin um að taka það síðasta Glódís Perla Viggósdóttir er sannur leiðtogi og fyrirliði bæði Bayern München og íslenska landsliðsins, sem á morgun mætir Póllandi í fyrsta leik í undankeppni EM í fótbolta. Fótbolti 4. apríl 2024 15:30
Sædís óvænt með á morgun: „Kom í ljós að það er ekkert að henni“ Sædís Rún Heiðarsdóttir er mætt aftur í íslenska landsliðið í fótbolta fyrir leikinn við Pólland á morgun, viku eftir tilkynningu KSÍ um að hún væri úr leik vegna meiðsla. Fótbolti 4. apríl 2024 14:00
Ballið byrjar hjá stelpunum á morgun Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson og landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir hittu fjölmiðlamenn í tilefni af leik á móti Póllandi á Kópavogsvellinum á morgun. Fótbolti 4. apríl 2024 11:45
Fenerbahce áfram í deildarkeppninni en Trabzonspor fær refsingu Tyrkneska liðið Trabzonspor þarf að leika sex leiki fyrir luktum dyrum í refsingarskyni eftir að áhorfendur ruddust inn á völlinn í leik liðsins gegn Fenerbahce í síðasta mánuði. Fótbolti 4. apríl 2024 10:00
Ísland upp um eitt sæti hjá FIFA en Norðmenn niður fyrir Malí Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hækkaði sig um eitt sæti á nýjasta styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins sem var gefinn út í morgun. Fótbolti 4. apríl 2024 09:16
Fótboltamaður skotinn til bana Suðurafríski knattspyrnumaðurinn Luke Fleurs lést í gærkvöldi eftir að hann var skotinn í bílaráni í nágrenni við Jóhannesarborg. Fótbolti 4. apríl 2024 08:01
Segir of mikið álag á æfingum ekki ástæðuna fyrir meiðslavandræðum Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, blæs á þær vangaveltur að æfingastíll hans sé að valda miklum meiðslavandræðum liðsins. Fótbolti 4. apríl 2024 07:31
Skítakuldi en spennt fyrir því að spila á Kópavogsvelli Ísland mætir Póllandi á föstudaginn kemur í fyrsta leik liðsins í undankeppni fyrir EM 2025 sem fram fer í Sviss. Miðjumaðurinn Alexandra Jóhannsdóttir er nokkuð brött og finnst allt í góðu að leikurinn fari fram á Kópavogsvelli enda var hún lengi vel í röðum Breiðabliks. Fótbolti 4. apríl 2024 07:00
Óvíst hvort Nkunku verði meira með á leiktíðinni Fyrsta tímabil Christopher Nkunku í ensku úrvalsdeildinni fer seint í sögubækurnar. Hann hefur verið meira og minna meiddur síðan hann gekk í raðir Chelsea frá RB Leipzig og verður líklega ekki meira með það sem eftir lifir leiktíðar. Enski boltinn 3. apríl 2024 23:00
Foden með sýningu og Man City gefur ekkert eftir í toppbaráttunni Phil Foden skoraði þrennu í gríðarlega öruggum sigri Englandsmeistara Manchester City á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni, lokatölur 4-1. Enski boltinn 3. apríl 2024 21:15
Ísak Bergmann og félagar áttu aldrei möguleika gegn Leverkusen Verðandi Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen eru komnir í bikarúrslit eftir gríðarlega sannfærandi 4-0 sigur á Fortuna Düsseldorf. Ísak Bergmann Jóhannesson er á láni hjá Düsseldorf sem vonast til að vinna sér inn sæti í þýsku úrvalsdeildinni í vor. Fótbolti 3. apríl 2024 20:55
Skytturnar á toppinn Arsenal er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á nýliðum Luton Town. Þá gerði Brighton & Hove Albion markalaust jafntefli við Brentford. Enski boltinn 3. apríl 2024 20:25
Reyna að sannfæra Xavi um að vera áfram Forráðamenn spænska knattspyrnurisans Barcelona gera nú hvað þeir geta til að sannfæra þjálfara liðsins, Xavi, um að vera áfram við stjórnvölin. Xavi stendur þó fast á sínu og mun hætta í sumar. Fótbolti 3. apríl 2024 19:47
Hallgrímur Mar ekki með í upphafi tímabils Hallgrímur Mar Steingrímsson verður ekki með KA þegar leikar hefjast í Bestu deild karla í knattspyrnu nú um helgina. Hann hefur verið að glíma við veikindi og verður ekki klár í fyrsta leik. Íslenski boltinn 3. apríl 2024 17:45
Þröng á þingi í Bayern: „Auðvitað hugsar maður um þetta“ Karólína Lea Vilhjálmsdóttir verður væntanlega í stóru hlutverki með íslenska landsliðinu í komandi leikjum við Pólland á föstudag og Þýskaland næsta þriðjudag, í undankeppni EM í fótbolta. Fótbolti 3. apríl 2024 17:01
Ingibjörg hreinskilin eftir erfiða mánuði: „Búið að vera mjög strembið“ „Þetta er búið að vera mjög strembið, ég viðurkenni það alveg. Það er gott að koma heim,“ segir Ingibjörg Sigurðardóttir, landsliðskona í fótbolta, sem hefur átt afar erfiða tíma eftir að hún flutti frá Noregi til Þýskalands í vetur. Fótbolti 3. apríl 2024 15:00
Réðu nýjan landsliðsþjálfara án vitundar knattspyrnusambandsins Kamerúnska knattspyrnusambandið hefur lýst yfir mikilli undrun eftir að íþróttamálaráðuneyti landsins réði Marc Brys sem nýjan þjálfara karlalandsliðsins. Fótbolti 3. apríl 2024 13:31
Ronaldo hlóð í þrennu annan leikinn í röð Cristiano Ronaldo hlóð í enn eina þrennuna er Al Nassr vann 8-0 risasigur gegn Abha í sádiarabísku deildinni í knattspyrnu í gær. Þetta var annar leikurinn í röð sem Ronaldo skorar þrennu. Fótbolti 3. apríl 2024 12:31
Rubiales handtekinn í tengslum við spillingarmálið Luis Rubiales, fyrrverandi forseti spænska knattspyrnusambandsins, var í morgun handtekinn á flugvellinum í Madríd. Fótbolti 3. apríl 2024 12:01