

Fótbolti
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“
Grunnt virðist á því góða milli Mohameds Salah og Jürgens Klopp. Egyptinn var dularfullur í svörum eftir rifrildi þeirra í leiknum gegn West Ham United í dag.

Messi minnist fallins félaga
Lionel Messi minntist fyrrverandi þjálfara síns, Titos Vilanova, á samfélagsmiðlum en tíu ár eru liðin frá því hann féll frá.

Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, og Mohamed Salah, leikmaður liðsins, virtust rífast á hliðarlínunni í leiknum gegn West Ham United í dag.

Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins
Titilvonir Liverpool eru orðnar afar veikar eftir 2-2 jafntefli við West Ham United í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool var undir í hálfleik, kom til baka en Michail Antonio skoraði jöfnunarmark West Ham þegar þrettán mínútur voru eftir.

Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham
Rúben Amorim, knattspyrnustjóri Sporting, segist hafa gert mistök með því að funda með forráðamönnum West Ham United.

Hrósar Alonso fyrir að taka ekki við Liverpool eða Bayern: „Þarf ekki að sanna neitt“
Fyrrverandi samherji Xabis Alonso hjá Liverpool hefur hrósað honum fyrir að taka ekki við Bítlaborgarliðinu eða Bayern München, heldur halda kyrru fyrir hjá Bayer Leverkusen.

Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur leitað ráða hjá Arsene Wenger, fyrrverandi stjóra liðsins, varðandi það hvernig Skytturnar eiga að fara alla leið og verða Englandsmeistarar.

Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, er búinn að fá sig fullsaddan af gagnrýninni sem hann hefur fengið að undanförnu og bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga á blaðamannafundi í gær.

Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“
777 dagar eru þangað til HM karla í fótbolta hefst í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Þrátt fyrir að svo langur tími sé til stefnu hafa áhyggjur gert vart við sig í bandaríska stjórnkerfinu í kringum skipulag mótsins.

„Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“
Jóhannes Kristinn Bjarnason, leikmaður Bestu deildar liðs KR, kýs að halda í bjartsýnina þrátt fyrir að eiga fyrir höndum endurhæfingu vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik á dögunum.

Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds
Lið Leeds United missteig sig hrapallega í baráttunni um sæti í ensku úrvalsdeildinni næsta vetur er liðið tapaði 4-0 fyrir QPR í Lundúnum í kvöld. Úrslitin þýða að Leicester City fer aftur upp í fyrstu tilraun.

Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans
Chelsea goðsögnin John Terry sat fyrir svörum í veigamiklu viðtali á dögunum og hefur ein saga hans vakið sérstaka athygli. Töluvert hefur verið grínast með hann á samfélagsmiðlum vegna málsins.

Liverpool nær samkomulagi um Slot
Liverpool hefur náð samkomulagi við hollenska liðið Feyenoord um greiðslu fyrir þjálfara liðsins Arne Slot. Allt bendir til að hann taki við Rauða hernum af Jurgen Klopp í sumar.

Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum
Ungstirnið Arda Güler hefur ekki fengið mörg tækifæri með spænska stórveldinu Real Madrid í vetur en hann nýtti sannarlega sénsinn í sigri á Real Sociedad í kvöld.

Íslendingarnir nálgast fallið
Guðlaugur Victor Pálsson lagði upp mark í leik Eupen í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en það dugði skammt í 2-1 tapi. Liðið nálgast fall úr deildinni.

Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn fyrir Juventus sem tapaði 2-0 á heimavelli fyrir Internazionale í ítölsku kvennadeildinni í kvöld. Titilbaráttunni er gott sem lokið hjá Túrínarliðinu.

Íslendingarnir áberandi í jafntefli
Íslendingalið Lyngby berst áfram við fallið úr dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta en liðið gerði jafntefli í sex stiga leik síðdegis.

Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“
Besta upphitunin hefur göngu sína að nýju og hitað verður upp fyrir hverja umferð deildarinnar í sumar líkt og verið hefur undanfarin ár. Gestur dagsins var Ólafur Kristjánsson, þjálfari Þróttar.

Marta hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana
Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Marta hefur gefið það út að hún muni spila sína síðustu landsleiki á árinu 2024 en hún er þó samt ekkert hætt í fótboltanum.

Víkingar fengu góða sumargjöf
Stuðningsmenn Víkings fengu góða sumargjöf í gær. Þrír af efnilegustu leikmönnum félagsins skrifuðu þá undir nýjan samning við það.

Leikmaður Newcastle tók meirapróf
Matt Ritchie, leikmaður Newcastle United, virðist vera farinn að huga að lífinu eftir að skórnir fara á hilluna. Hann hefur nefnilega tekið meirapróf.

Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana
Amnesty samtökin hafa brugðist hart og hratt við nýjustu fréttum úr herbúðum Alþjóða knattspyrnusambandsins um að höfuð fótboltans í heiminum hafi gert risasamning við sádi-arabískt olíufyrirtæki.

Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu
Stjarnan og KR mætast í stórleik sextán liða úrslita Mjólkurbikars karla í fótbolta. Dregið var í hádeginu.

Rashford: Nú er nóg komið
Marcus Rashford, framherji Manchester United, er algjörlega búinn að fá sig fullsaddan af meðferðinni sem hann fær á samfélagsmiðlum.

Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi
Íslenski knattspyrnumaðurinn Brynjólfur Willumsson er ekki ofarlega á vinsældalistanum hjá þeim sem lýsti leik Kristiansund og Tromsö í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta á dögunum.

Berglind Björg komin með félagaskipti í Val
Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur gengið formlega frá félagsskiptum sínum yfir í Vals en félagsskiptin hafa nú verið staðfest á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands.

Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard
Kevin De Bruyne er besti miðjumaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Þetta segir Jamie Redknapp, álitsgjafi hjá Sky Sports.

Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool
Luke Littler nuddaði salti í sár stuðningsmanna Liverpool áður en hann vann sigur í úrvalsdeildinni í pílukasti í gær.

Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool
Arne Slot, knattspyrnustjóri Feyenoord, hefur staðfest að hann vilji taka við Liverpool.

Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz
Fresta þurfti blaðamannafundi fyrir leik Mainz og Kölnar í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem fram fer á sunnudag eftir að virk 500 kílóa sprengja síðan úr seinni heimsstyrjöldinni fannst við endurbætur á leikvanginum.