Orri skoraði í erfiðu tapi FCK FC Kaupmannahöfn tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í dönsku úrvalsdeildinni þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Nordsjælland í dag, 3-2. Orri Steinn Óskarsson skoraði fyrra mark FCK. Fótbolti 25. ágúst 2024 16:18
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Víkingur 4-0 | Blikar kaffærðu Víkingi í seinni hálfleik Breiðablik lagði Víking að velli með fjórum mörkum gegn engu þegar liðin áttust við í lokaumferð Bestu deildar kvenna í fótbolta áður en deildinni verður skipt í tvo hluta á Kópavogsvelli í dag. Víkingur er eina liðið fyrir utan Val sem náð hefur í stig gegn Breiðabliki, með 2-1 sigri í Víkinni fyrri leik liðanna í sumar. Blikar áttu því harma að hefna eftir þennan leik. Fótbolti 25. ágúst 2024 15:54
Naumur sigur í fyrsta deildarleik Kompanys Bayern München þurfti að hafa mikið fyrir því að vinna Wolfsburg, 2-3, í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fyrsti deildarleikur Bæjara undir stjórn Vincents Kompany. Fótbolti 25. ágúst 2024 15:27
Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu Ísaki og félögum sigur Fortuna Düsseldorf vann 1-2 endurkomusigur á Ulm í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 25. ágúst 2024 14:38
Ekkert gengur hjá Kristianstad Íslendingarnir þrír voru á sínum stað í byrjunarliði Kristianstad sem tapaði fyrir Piteå, 0-1, í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 25. ágúst 2024 13:52
Christoph Daum látinn Einn fremsti fótboltaþjálfari Þýskalands á sínum tíma, Christoph Daum, lést í gær, sjötíu ára að aldri. Banamein hans var lungnakrabbamein. Fótbolti 25. ágúst 2024 11:32
Nökkvi skoraði í átta marka jafntefli St. Louis City fór illa að ráði sínu gegn Portland Timbers í MLS-deildinni í Bandaríkjunum í nótt. Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði eitt marka liðsins í 4-4 jafntefli. Fótbolti 25. ágúst 2024 10:46
Nýliðarnir sækja tíunda leikmann sumarsins Nýliðar Ipswich hafa fest kaup á enska vængmanninum Jack Clarke. Hann er tíundi leikmaðurinn sem Ipswich kaupir í sumar. Fótbolti 24. ágúst 2024 22:30
Inter vann öruggan sigur gegn Íslendingaliði Lecce Ítalíumeistarar Inter Milan vann öruggan 2-0 sigur er liðið tók á móti Íslendingaliði Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 24. ágúst 2024 20:49
Hákon lagði upp mark í sigri Lille Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson lagði upp fyrra mark Lille er liðið vann 2-0 sigur gegn Angers í 2. umferð frönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Fótbolti 24. ágúst 2024 18:55
Markasúpa í leikjum dagsins í Lengjudeildunum Óhætt er að segja að nóg af mörkum hafi verið skoruð í leikjum dagsins í Lengjudeildum karla og kvenna í dag. Alls litu 29 mörk dagsins ljós í fimm leikjum. Fótbolti 24. ágúst 2024 17:53
Elías hafði betur í fimm marka Íslendingaslag Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í Midtjylland unnu sterkan 3-2 sigur er liðið tók á móti Íslendingaliði SønderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 24. ágúst 2024 16:36
Lewandowski tryggði Börsungum stigin þrjú Robert Lewandowski reyndist hetja Barcelona er liðið vann 2-1 sigur gegn Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 24. ágúst 2024 16:32
Þýskur blaðamaður hleypur til minningar um Atla Eðvalds Í dag fer Reykjavíkurmaraþonið fram þar sem margir hlaupa í þágu góðs málefnis. Þýskur blaðamaður hleypur til minningar um einn dáðasta íþróttamann Íslands. Fótbolti 24. ágúst 2024 09:01
Styttist í endurfundi hjá Lukaku og Conte Napoli færist nær því að kaupa belgíska framherjann Romelu Lukaku frá Chelsea. Fótbolti 23. ágúst 2024 23:16
Bellingham missir líklega af leiknum gegn strákunum hans Heimis Jude Bellingham missir væntanlega af næstu leikjum enska landsliðsins vegna meiðsla. Fótbolti 23. ágúst 2024 21:47
Byrjuðu þetta tímabil eins og þeir enduðu það síðasta: Sigurmark á 101. mínútu Segja má að Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen hafi tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið á síðasta tímabili í upphafsleik þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Fótbolti 23. ágúst 2024 20:58
Jóhann Berg spilaði fyrsta leikinn gegn stjörnunum í Al Ahli Í morgun var greint frá því að Jóhann Berg Guðmundsson væri genginn í raðir Al Orubah frá Burnley. Í kvöld lék hann svo sinn fyrsta leik fyrir sádi-arabíska félagið. Fótbolti 23. ágúst 2024 20:13
Mikael og félagar tylltu sér á toppinn með stórsigri Gott gengi Mikaels Neville Anderson og félaga í AGF hélt áfram þegar þeir unnu 0-4 útisigur á Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fótbolti 23. ágúst 2024 18:56
Sjáðu perlu Úlfs í fyrsta leik eftir að hann kvaddi Bestu deildina Úlfur Ágúst Björnsson skoraði stórglæsilegt mark, eftir að hafa lagt upp mark, í fyrsta leik nýs tímabils með Duke í bandaríska háskólafótboltanum í gær. Fótbolti 23. ágúst 2024 17:16
Allir leikmenn til sölu Það er ófremdarástand hjá franska úrvalsdeildarfélaginu Lyon. Félagið þarf að safna hundrað milljónum evra áður en félagaskiptaglugginn lokar. Fótbolti 23. ágúst 2024 16:32
Midtjylland á von á sekt fyrir að syngja „UEFA mafía“ Malmö FF, HJK Helsinki og Brann hafa öll fengið háar sektir fyrir að gefa í skyn að spilling ríki innan evrópska knattspyrnusambandsins, FC Midtjylland mun væntanlega bætast í þann hóp bráðum. Fótbolti 23. ágúst 2024 15:31
Hildur í spænska boltann Landsliðskonan Hildur Antonsdóttir er farin frá Hollandi til Spánar og mun spila með Madrid CFF í vetur. Fótbolti 23. ágúst 2024 13:53
Jóhann kynntur til leiks í Sádi-Arabíu Landsliðsfyrirliði Íslands í fótbolta, Jóhann Berg Guðmundsson, er orðinn leikmaður Al Orobah í Sádi-Arabíu. Þetta staðfesti félagið með myndbandstilkynningu í dag. Fótbolti 23. ágúst 2024 13:29
Þórir að fara frá Lecce og líklega á leið til Danmerkur Danska úrvalsdeildarfélagið Viborg hefur lagt fram kauptilboð í Þóri Jóhann Helgason, leikmann Lecce á Ítalíu. Fótbolti 23. ágúst 2024 12:33
Kórsmálinu ekki lokið: HK gæti enn verið refsað Máli HK vegna frestaðs leiks við KR í Bestu deild karla er ekki lokið þrátt fyrir að leikurinn hafi farið fram í gærkvöld. Líklegt þykir að HK-ingar verði sektaðir vegna mistaka við framkvæmd leiks. Íslenski boltinn 23. ágúst 2024 12:17
Sjáðu 4. deildar hetjur HK gegn KR og markasúpu Víkinga Það voru tveir bráðskemmtilegir leikir á dagskrá á Stöð 2 Sport í gærkvöld og nóg af mörkum sem nú má sjá á Vísi. Fótbolti 23. ágúst 2024 11:02
Dybala sagði nei takk við ellefu milljarða tilboði Argentínski framherjinn Paulo Dybala lætur peningana frá Sádi-Arabíu ekki freista sín og hann ætlar frekar að spila áfram með ítalska félaginu Roma. Fótbolti 23. ágúst 2024 10:31
Klúðraði færi sem voru 94 prósent líkur á að skora úr Marc Guiu, leikmaður Chelsea, klúðraði sannkölluðu dauðafæri í leik gegn Servette í umspili um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í gær. Fótbolti 23. ágúst 2024 07:02
„Sá þetta ekki fyrir mér þegar ég átti afmæli síðast“ Óskar Örn Hauksson hélt upp á fertugsafmælið sitt með því að koma inn á í 5-0 sigri Víkings gegn Santa Coloma í fyrri leik liðanna um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 22. ágúst 2024 21:06