Fjarðabyggð

Fjarðabyggð

Mannfjöldi: 5.247 (2025). Flatarmál: 1.615 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Neskaupstaður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður, Mjóifjörður, Breiðdalsvík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Rýma hús á Seyðis­firði

Ákveðið hefur verið að rýma hús á Seyðisfirði vegna snjóflóðahættu. Um tíu manns munu þurfa að yfirgefa heimili sín klukkan átta í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Síminn búinn að glamra í fjóra ára­tugi

Sofin og vakin hafa hjónin Jóna Björg Óskars­dóttir og Víglundur Jón Gunnars­son sett mark á bæjar­braginn í Nes­kaups­stað með fjöl­breyti­legum og persónu­legum verslunar­rekstri í rúm 40 ár. Nú er þó mál að linni, Víglundur hefur staðið sína síðustu vakt í bygginga­vöru­versluninni PAN og fram undan er langt og langþráð frí.

Innlent
Fréttamynd

Með skerta at­hygli af ó­þekktum á­stæðum þegar slysið varð

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hvetur þá sem flytja inn ökutæki til að flytja ekki inn bíla sem eru án loftpúða fyrir farþega í framsæti. Í nýrri skýrslu nefndarinnar um banaslys við Kross í Berufirði í mars í fyrra segir að meginorsök slyssins hafi verið að öðrum bílnum hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming og að ökumaður hafi verið með skerta athygli. 

Innlent
Fréttamynd

Hring­vegurinn lík­lega lokaður til morguns

Skólahaldi var aflýst í tveimur skólum í Múlaþingi í morgun vegna veðurs og þá loka skólar í Fjarðabyggð á hádegi. Hringveginum um Mývatn og Möðrudalsöræfi var lokað í morgun og ekki er búist við að hann opni á ný fyrr en í fyrramálið.

Innlent
Fréttamynd

Austur­land er þjóðinni mikil­vægt

Austurland er þjóðinni mikilvægt, það vitum við vel sem leggjum mikið til þjóðarbúsins. Því miður virðist sem fjarlægðin við Alþingi og suðvesturhorn landsins valdi þekkingarleysi á þessum fjarlæga stað.

Skoðun
Fréttamynd

Gaf spellvirkjunum bakk­elsi eftir að lit var skvett á heimilið

Stefaníu Helgadóttur, íbúa í Neskaupstað, brá í brún í fyrrakvöld þegar hún sá að lituðu efni hefði verið skvett á heimili hennar. Þetta sé þó ekki í fyrsta skipti sem hún verður fyrir hrekkjum ungmenna en ólíkt áður gáfu ungmennin sig fram, þrifu húsið og fengu því bakkelsi.

Innlent
Fréttamynd

Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði

Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Spenna vegna nýs mats á stærð loðnu­stofnsins

Sjávarútvegurinn bíður nú í ofvæni eftir nýju mati Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins. Fréttir sem bárust af loðnuleitinni um helgina juku mönnum bjartsýni um meiri loðnukvóta en urðu líka til þess að hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu í verði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Halda til loðnu­veiða í kvöld

Reiknað er með því að tvö skip haldi til loðnuveiða frá Neskaupstað í kvöld, Barði NK frá Síldarvinnslunni og grænlenska skipið Polar Amaroq. Polar Amaroq kom með fyrstu loðnu vertíðarinnar til Neskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Loðnu­ver­tíð hafin og floti farinn til loðnumælinga

Loðnuvertíðin er hafin en fyrsta loðnan veiddist í dag út af Austfjörðum og er stefnt að því að henni verði landað á Norðfirði á morgun. Þá héldu fimm skip á miðin í dag til loðnumælinga á vegum Hafrannsóknastofnunar en niðurstöðurnar ráða miklu um það hversu stór loðnukvótinn verður.

Innlent
Fréttamynd

Skamm­degið víkur með hækkandi sól

Dagsbirtan í Reykjavík í dag varði fimm mínútum lengur en í gær og hefur daginn núna lengt um rúma klukkustund í borginni frá stysta degi ársins. Lenging dagsins er mismunandi eftir því hvar menn eru staddir á landinu en landsmenn ættu samt flestir að vera farnir að finna fyrir því að skammdegið sé að víkja.

Innlent
Fréttamynd

Vara við gróðureldum vegna flug­elda

Almannavarnanefnd Austurlands varar við því að mikil hætta sé á gróðureldum vegna flugelda. Snjóþekja sé víða lítil og gróður þurr en nokkuð stórir eldar kviknuðu í Neskaupstað, á Reyðarfirði, Breiðdalsvík og Djúpavogi kringum áramótin.

Innlent
Fréttamynd

Hér verða áramótabrennur á gaml­árs­dag 2025

Áramótin nálgast óðfluga og halda mörg sveitarfélög í þá hefð að hlaða í áramótabrennur. Vísir tók saman lista með helstu áramótabrennum landsins, listinn er ekki tæmandi og tekur fréttastofa fagnandi ábendingum um brennur sem ekki eru á lista.

Innlent