Rooney hættur að þjálfa Guðlaug Victor Þjálfarinn Wayne Rooney og enska félagið Plymouth Argyle hafa ákveðið að slíta samstarfinu. Hann mun því ekki þjálfa landsliðsmanninn Guðlaug Victor Pálsson áfram, eins og hann hefur gert hjá tveimur mismunandi liðum undanfarin tvö ár. Enski boltinn 31. desember 2024 10:49
Viðurkennir að Man. Utd sogist í fallbaráttu: „Mjög erfiðir tímar“ Ruben Amorim segir að Newcastle sé betra lið en Manchester United og viðurkennir að liðið sem hann tók við í nóvember sé að sogast niður í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 30. desember 2024 22:52
Newcastle bætti við martröð Man. Utd Vandræði Manchester United héldu áfram í kvöld en liðið tapaði 2-0 á heimavelli gegn Newcastle, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þetta var þriðja tap Manchester United í röð í deildinni, og markatalan úr þeim leikjum er 7-0. Aston Villa og Brighton gerðu 2-2 jafntefli. Enski boltinn 30. desember 2024 21:52
Skelltu Chelsea í þriðja sigri sínum á leiktíðinni Ipswich er reyndar enn í fallsæti en fagnaði afar góðum 2-0 sigri gegn Chelsea í kvöld, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þetta var annað tap Chelsea í röð og liðið missti af tækifæri til að fara aftur upp í 2. sæti. Enski boltinn 30. desember 2024 21:44
Dómarar tilkynna áhorfendum ákvörðun sína Dómarar leikjanna í undanúrslitum enska deildabikarsins í fótbolta munu þurfa að greina frá VAR-ákvörðunum sínum í gegnum hátalarakerfi til áhorfenda, á leikvöngunum sem spilað verður á. Enski boltinn 30. desember 2024 21:00
Rashford laus úr útlegð Enski fótboltamaðurinn Marcus Rashford er kominn inn í leikmannahóp Manchester United á nýjan leik eftir að hafa verið hafður utan hóps í síðustu fjórum leikjum. Enski boltinn 30. desember 2024 17:49
Yfirgnæfandi líkur á að Liverpool verði Englandsmeistari Nýjustu útreikningar ofurtölvu tölfræðiveitunnar Opta gefa til kynna að rétt rúmlega níutíu og eitt prósent líkur séu á því að Liverpool standi uppi sem Englandsmeistari að loknu yfirstandandi tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 30. desember 2024 12:31
Skoraði í ensku og dreif sig síðan í Ally Pally Velski knattspyrnumaðurinn Brennan Johnson var á skotskónum með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær en þrátt fyrir að það væri leikdagur þá lét hann sig ekki vanta á kvöldleikina á heimsmeistaramótinu í pílu. Enski boltinn 30. desember 2024 12:00
Í stormi innan vallar en vann góðverk utan hans Þrátt fyrir að gengi Manchester United í ensku úrvalsdeildinni hafi ekki verið upp á marga fiska síðkastið er ljóst að Rúben Amorim, knattspyrnustjóri liðsins, lætur það ekki eyðileggja fyrir sér allan daginn. Hann gerði góðverk og gladdi ungan stuðningsmann félagsins á dögunum. Enski boltinn 30. desember 2024 11:01
Veltir því fyrir sér hvort nýja Liverpool þríeykið sé betra Liverpool er á toppnum í ensku úrvalsdeildinni og forskotið er átta stig eftir 5-0 stórsigur á West Ham í gær. Enski boltinn 30. desember 2024 10:00
Cristiano Ronaldo: Ef ég ætti Man. United þá myndi ég leysa vandann Cristiano Ronaldo þekkir vel til hjá Manchester United en Portúgalinn fór frá félaginu í desember 2022 og hefur spilað síðan í Sádi-Arabíu. Ronaldo segist gera sér vel grein fyrir því hvað sé vandamálið innandyra hjá United en hann notaði fiskabúr sem dæmi í útskýringum sínum á vandræðunum á Old Trafford. Enski boltinn 30. desember 2024 07:32
Guardiola var á undan Haaland með stóru fréttirnar Norski framherjinn Erling Braut Haaland er orðinn faðir í fyrsta sinn en það var ekki hann sjálfur heldur knattspyrnustjóri hans sem sagði heiminum frá því í gær. Enski boltinn 30. desember 2024 06:31
Pep kastar inn hvíta handklæðinu og segir liðið þurfa hjálp Pep Guardiola, þjálfari Englandsmeistara Manchester City, er búinn að gefast upp á því að reyna að verja titilinn. Fótbolti 29. desember 2024 22:30
„Eina sem ég hugsa um er að Liverpool vinni titilinn“ Mohamed Salah átti enn einn stórleikinn er Liverpool vann öruggan 5-0 útisigur gegn West Ham í síðasta leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni áður en nýtt ár gengur í garð. Fótbolti 29. desember 2024 21:02
Fyrrverandi markvörður West Ham hættur í krabbameinsmeðferð Ludek Miklosko, fyrrverandi markvörður West Ham, hefur tekið ákvörðun um að afþakka frekari krabbameinsmeðferð, þremur árum eftir að hann greindist með meinið. Fótbolti 29. desember 2024 20:31
Jason Daði kom inn af bekknum og skoraði Jason Daði Svanþórsson skoraði þriðja mark Grimsby er liðið vann öruggan 3-0 sigur gegn Port Vale í ensku D-deildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 29. desember 2024 17:21
Forest skaust upp í annað sæti Ótrúlegt gengi Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni hélt áfram í dag er liðið vann 0-2 sigur gegn Everton. Fótbolti 29. desember 2024 17:12
Ófarir Spurs halda áfram Tottenham gengur flest í mót þessa dagana en liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Wolves á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 29. desember 2024 17:00
Enduðu árið með stæl Liverpool vann afar öruggan 0-5 sigur er liðið heimsótti West Ham í síðasta leik liðanna á árinu 2024. Enski boltinn 29. desember 2024 16:48
Ratcliffe áfram með niðurskurðarhnífinn á lofti Enginn virðist óhultur þegar Sir Jim Ratcliffe, minnihlutaeigandi í Manchester United, brýnir niðurskurðarhnífinn, ekki einu sinni góðgerðarsamtök félagsins. Enski boltinn 29. desember 2024 15:15
Stefán Teitur og félagar kvöddu árið með sigri Preston lyfti sér upp í 13. sæti ensku B-deildarinnar með 3-1 sigri á Sheffield Wednesday í dag. Enski boltinn 29. desember 2024 14:32
„Vonandi færir nýja árið okkur titla“ Declan Rice, leikmaður Arsenal, er bjartsýnn fyrir nýju ári og vonast til að liðið vinni titla árið 2025. Fótbolti 28. desember 2024 16:17
Ráku annan þjálfarann á tímabilinu Forráðamenn enska liðsins Stoke hafa litla þolinmæði fyrir slæmu gengi liðsins og hafa nú rekið annan þjálfarann á tímabilinu. Fótbolti 28. desember 2024 15:44
Salah, Son og De Bruyne gætu farið frítt næsta sumar Óhætt er að segja að það séu nokkur stór nöfn á listanum yfir þá leikmenn sem renna út á samningi í ensku úrvalsdeildinni næsta sumar. Fótbolti 28. desember 2024 14:17
Gæti þurft að fylla vörnina af miðjumönnum Meiðslalisti Tottenham Hotspur lengist bara og lengist og í hlutfalli við listann eykst hausverkur þjálfara liðsins, Ange Postecoglou. Fótbolti 28. desember 2024 13:30
Segir Hákon betri en Flekken: „Þetta lék bara í höndunum á honum“ Markmannsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fylgdist vel með þegar Hákon Rafn Valdimarsson þreytti frumraun sína með Brentford í ensku úrvalsdeildinni í fotbolta. Hann segir Hákon vera betri markvörð en keppinaut hans um markvarðarstöðu liðsins. Enski boltinn 28. desember 2024 11:31
Saka búinn í aðgerð og verður frá í meira en tvo mánuði Enski landsliðsmaðurinn Bukayo Saka verður frá keppni í meira en tvo mánuði vegna meiðsla sem hann varð fyrir í 5-1 sigri Arsenal gegn Crystal Palace. Fótbolti 28. desember 2024 10:48
Hákon 21. Íslendingurinn til að spila í efstu deild á Englandi Hákon Rafn Valdimarsson varð í gær 21. Íslendingurinn til að spila í efstu deild á Englandi. Fótbolti 28. desember 2024 08:02
Hákon kom inn á og hélt hreinu í fyrsta úrvalsdeildarleiknum Hákon Rafn Valdimarsson lék sinn fyrsta úrvalsdeildarleik fyrir Brentford er hann kom inn af varamannabekknum í markalausu jefntefli gegn Brighton & Hove Albion í kvöld. Fótbolti 27. desember 2024 21:27