Tilnefningar til Eddunnar:: Hljóð og tónlist
Tónlist og hljóðvinnsla þriggja verka er tilnefnd til EDDU-verðlauna í flokknum "Hljóð og tónlist." One Point Zero, Voksne Mennesker og Töframaðurinn.
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.
Tónlist og hljóðvinnsla þriggja verka er tilnefnd til EDDU-verðlauna í flokknum "Hljóð og tónlist." One Point Zero, Voksne Mennesker og Töframaðurinn.
Útlit tveggja verka þótti verðskulda tilnefningu til EDDU-verðlauna. Leikmyndin í ONE POINT ZERO, brúðurnar í LATABÆ og búningarnir í LATABÆ.
Myndataka þriggja verka var tilnefnd í flokknum "Myndataka og klipping". Þetta eru GARGANDI SNILLD, HEIMUR KULDANS og LATIBÆR.
Fimm myndir hlutu tilnefningu í flokknum "Heimildamynd ársins." RITHÖFUNDUR MEÐ MYNDAVÉL eftir Helgu Brekkan, RAGNAR Í SMÁRA eftir Guðnýju Halldórsdóttur, AFRICA UNITED eftir Ólaf Jóhannesson, UNDIR STJÖRNUHIMNI. eftir Helga Felixson og Titti Johnson og GARGANDI SNILLD eftir Ara Alexander.
Þrír karlar hlutu tilnefningu til EDDU-verðlauna fyrir leikstjórn. Dagur Kári (Voksne Mennesker), Ólafur Jóhannesson (Africa United) og Marteinn Þórsson & Jeff Renfro (1.0).
Þrjú verk eru tilnefnd í flokknum "Handrit ársins". Africa United, Voksne Mennesker og Latibær.
Stöð2 og RÚV hlutu tvær tilnefningar hvor og Skjár1 eina tilnefningu í flokknum "Sjónvarpsþáttur ársins."
IDOL stjörnuleit 2, Sjáumst með Silvíu Nótt og Það var lagið, hlutu tilnefningu sem "Skemmtiþáttur ársins."
Þrjú myndbönd voru tilnefnd í flokknum "Tónlistarmyndband ársins." Whatever með Leaves, Find what you get með Bang Gang og Crazy Bastard með 70mínútur vs.Quarashi.
Latibær, Stelpurnar og Danskeppnin hlutu öll tilnefningu í flokknum "Leikið sjónvarpsefni ársins."
"Töframaðurinn", "Þröng sýn" og "Ég missti næstum vitið" keppa um EDDU-verðlaunin í flokki stuttmyndar ársins.
Þrjár myndir keppa um titilinn "Kvikmynd ársins". Voksne Mennesker, Strákarnir okkar og One Point O.
Fimm karlar eru tilnefndir til verðlauna í flokknum "Leikari / leikkona ársins í aukahlutverki."
Fimm listamenn eru tilnefndir til verðlauna í flokknum "Leikari / leikkona ársins í aðalhlutverki," þrjár konur og tveir karlar.
Kvikmyndirnar Í takt við tímann, sem Ágúst Guðmundsson leikstýrði, og Strákarnir okkar, í leikstjórn Róberts Douglas, munu á næstu dögum berjast um að verða framlag íslenskra kvikmynda til Óskarsverðlaunanna. Það eru meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sem munu ákveða hvor myndanna verður framlag Íslands. Um 850 manns hafa atkvæðisrrétt en kosið verður daganna 26. og 27. september.
Dagskrá Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík var kynnt í dag en hátíðin verður opnuð 29. september og stendur til 9. október.
Alls sáu 12.382 manns þriðju Stjörnustríðsmyndina, Hefnd Sith, hér á landi um síðustu helgi og voru tekjur af myndinni tæpar 10 milljónir íslenskra króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu. Þetta mun vera langstærsta opnun ársins og er myndin langvinsælust í bíó með yfir 70% af heildaraðsókninni. Uppselt var á nánast allar sýningar á föstudag og sunnudag og dagsýningarnar á laugardag.
Um sextán þúsund manns hafa sótt Íslensku kvikmyndahátíðina, IIFF, á fyrstu tíu sýningardögunum. Í tilkynningu frá hátíðahöldurum segir að hún hafi þar með slegið öll aðsóknarmet fyrri kvikmyndahátíða hérlendis.
Nakið og ódulið kynlíf er rauði þráðurinn í kvikmyndinni <em>Nine Songs</em> sem sýnd verður í kvöld á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Aðalleikari myndarinnar segir þetta engan veginn klámmynd heldur raunsæja mynd af sambandi karls og konu og býst hann við að íslenskir áhorfendur taki myndinni vel.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð verður sett formlega í Háskólabíói í kvöld og verður opnunarmynd hátíðarinnar <em>Motorcycle Diaries</em> eftir Brasilíumanninn Walter Salles, en hann er kominn sérstaklega til landsins til að vera viðstaddur sýninguna. Myndin var tilnefnd til þrennra Óskarsverðlauna í ár og hlaut verðlaun fyrir bestu tónlistina.
Fyrsta kvikmynd leikstjórans Barkar Gunnarssonar, hin íslensk-tékkneska Sterkt kaffi, er í sjöunda sæti yfir það mikilvægasta sem gerðist árið 2004 á kvikmyndasviðinu, samkvæmt hinu víðlesna tékkneska dagblaði Nedélní svet. Í efsta sæti er tilnefning tékknesku myndarinnar Zelary til Óskarsverðlauna fyrr á árinu.
Stuðmannamyndin "Í takt við tímann" var frumsýnd í dag í Smárabíói. Myndin er sjálfstætt framhald af vinsælustu íslensku kvikmynd sem gerð hefur verið, "Með allt á hreinu". Persónurnar eru þær sömu, en þær eru orðnar tuttugu árum eldri og búnar að taka ýmsum breytingum.
EDDU verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Nordica Hótel í kvöld.
Kvikmyndin Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson krækti í fimm verðlaun á Edduverðlaunahátíðinni sem haldin var á Hótel Nordica. Kaldaljós var valin mynd ársins, Ingvar E. Sigurðsson var valinn besti leikarinn og Kristbjörg Kjeld besta leikkonan í aukahlutverki. Hilmar Oddsson fékk einnig verðlaun fyrir leikstjórn Kaldaljóss og Sigurður Sverrir Pálsson fyrir besta hljóð og mynd.
Stórleikkonan Helga Braga og sjónvarpsmaðurinn Kristján Kristjánsson úr Kastljósinu eru kynnar Edduverðlaunanna sem afhent verða á Nordica Hóteli sunnudagskvöldið 14. nóvember.
Kosning til Edduverðlaunanna stendur nú sem hæst en kosningu lýkur á laugardag. Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían (ÍKSA) kynnti tilnefningar til Edduverðlaunanna í lok október og hófst þá einnig Netkosning hér á Vísi. Almenningi gefst eingöngu kostur á að kjósa á Vísi. Þátttaka hefur verið mjög góð, á sjötta þúsund manns hafa tekið þátt í kosningunni.
Norrænir bíódagar standa nú yfir í Háskólabíói og í Sambíóunum í Keflavík. Sýndar verða sex úrvalsmyndir frá Svíþjóð, Noregi Danmörku. Þeirra á meðal er sænska gamanmyndin Kops, í leikstjórn Josef Fares, þess hins sama og gerði síðast smellinn "Jalla Jalla". Þá er sjálfstætt framhald myndarinnar Elling sýnt á norrænum bíódögum, Mors Elling.
"Hátíðin verður með hefðbundnu sniði enda ekki þörf á að breyta strúktúrnum. Þó má upplýsa að þemað í þetta sinn er "sögurnar". Þessi bransi gengur út á að segja sögur í ýmsu formi og innslögin segja okkur sögurnar á bak við tjöldin; hvaða hlutverki hver og einn gegnir," segir Pétur Óli Gíslason framkvæmdastjóri Storm, sem sér um Eddu-verðlaunahátíðina.
"Þetta kom mér mjög á óvart og ég átti alls ekki von á þessu. Fékk bullandi hjartslátt við tilnefninguna en er búinn að jafna mig. Það er allt í fínu lagi núna," segir kvikmyndagerðarmaðurinn Páll Steingrímsson þegar hann er spurður út í stóru tíðindin; að fá heiðursverðlaun Eddu þetta árið.
Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður fær heiðursverðlaun Eddunnar í ár. Kolbrún Bergþórsdóttir ræddi við Pál um heimildarmyndagerð, ferðalög og stóriðjumál.