Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Bikarmeistarar Þróttar völtuðu yfir Stjörnuna í dag í annarri umferð í efri hluta Bestu deildarinnar. Sannfærandi 5-1 sigur niðurstaðan fyrir heimakonum sem kláruðu leikinn í fyrri hálfleik, en staðan 3-0 í hálfleik. Stjarnan getur skammast sín fyrir frammistöðu sína, þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Íslenski boltinn 27. september 2026 15:55
„Þetta er þorpið manns“ „Þetta er bara ég með allar mínar tilfinningar utan á mér,“ segir María Edwardsdóttir, fjármálastjóri Þróttar, um ljósmynd af henni með bikarnum sem karlalið Þróttar vann sér inn á Laugardalsvelli síðustu helgi. Kvennalið Þróttar vann fyrsta titilinn í sögu félagsins viku fyrr á sama velli. Íslenski boltinn 27. september 2026 08:51
Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Breiðablik vann mikilvægan 2–1 sigur á ÍBV á Hásteinsvelli í Bestu deild kvenna í dag eftir að hafa verið marki undir í hálfleik. Allison Patricia Clark kom Eyjakonum yfir en Agla María Albertsdóttir og Bryndís Arna Níelsdóttir tryggðu Blikum sigurinn með mörkum í síðari hálfleik. Með sigrinum tryggði Breiðablik sér þrjú mikilvæg stig í titilbaráttunni og komst í 43 stig á toppi deildarinnar. ÍBV situr áfram í þriðja sæti með 30 stig. Íslenski boltinn 26. september 2026 13:16
Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér Heil umferð fór fram í neðri hluta Bestu deildar kvenna í fótbolta í gær. Fram tryggði áframhaldandi veru sína í deildinni með frábærum sigri gegn Þór/KA á útivelli. Norðankonur munu berjast við Val og Víking Reykjavík um síðasta örugga sæti deildarinnar í lokaumferðinni. Íslenski boltinn 26. september 2026 11:02
„Það er bara allt eða ekkert“ „Liðin sem skoraði fyrsta markið vann leikinn. Mér fannst svona við frekar vera ofan á þangað til fyrsta markið kemur eftir einhverskonar klafs og það var of mikið högg fyrir okkur í fyrri hálfleik. Mér fannst við taka yfir og eiga allan seinni hálfleikinn og þrýsta og pressa án þess kannski að skapa nógu mikið og ná að jafna og þannig fór sem fór“, sagði Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, eftir sárt tap gegn Fram í næst síðustu umferð í neðri hluta Bestu deildar kvenna sem þýðir að Þór/KA getur enn fallið þrátt fyrir að vera fyrir ofan fallsvæðið fyrir lokaumferðina. Sport 25. september 2026 22:28
„Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ „Bara ákveðinn léttir og virkilega ánægður með að við leikum í deildinni á næsta ári“, sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, strax eftir 2-1 sigur á útivelli gegn Þór/KA sem tryggir liðinu áframhaldandi veru í Bestu deildinni þegar ein umferð er óleikin í neðri hluta deildarinnar. Íslenski boltinn 25. september 2026 21:57
„Gaman að fara í svona úrslitaleiki“ Fram sótti 2-1 sigur norður yfir heiðar gegn Þór/KA í neðri hluta Bestu deildar karla og tryggði þar með áfram veru sína í Bestu deildinni að ári þegar ein umferð er eftir. Þór/KA þarf að bíða með örlög sín fram í lokaumferðina. Sport 25. september 2026 21:28
„Titlar eða föll hafa breyst á seinustu sekúndu“ „Spennufall, svekktur, við hefðum átt að taka þennan leik, Valsliðið spilaði vel í dag,“ sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals í þungum þönkum eftir 1-1 jafntefli gegn Víkingi á Hlíðarenda. Sport 25. september 2026 20:32
Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Valur er enn á lífi í Bestu deild kvenna eftir að hafa gert 1-1 jafntefli við Víkinga sem eru einnig í harðri fallbaráttu. Taugatrekkjandi síðari hálfleikur sem einkenndist af fáum markverðum atvikum tryggði það að liðin skyldu jöfn sem þýðir að þrjú lið, Valur, Víkingur og Þór/KA, munu berjast um síðasta örugga sætið í Bestu deildinni næsta föstudag. Íslenski boltinn 25. september 2026 17:15
Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Fram tryggði áframhaldandi veru sína í Bestu deild kvenna með 2-1 útisigri á Þór/KA á VÍS vellinum á Akureyri í kvöld. Íslenski boltinn 25. september 2026 17:15
Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Aðeins þrjú ár eru síðan Valur vann Bestu deild kvenna og tvö ár eru síðan liðið var einu stigi frá Breiðablik sem endaði á að tryggja sér titilinn. Nú er staðan önnur og situr Valur í neðsta sæti Bestu deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir. Íslenski boltinn 25. september 2026 12:01
Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Þórdís Elva Ágústsdóttir, leikmaður Breiðabliks, er kokhraust fyrir komandi Evrópuleik liðsins gegn pólsku meisturunum í liði Czarni Sosnowiec í Evrópubikarnum í dag. Ekki sé tilefni til að stíga af bensíngjöfinni núna. Íslenski boltinn 23. september 2026 12:31
Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað Á meðal nýrra liða sem hægt er að velja í nýjustu útgáfu FC-tölvuleiksins, vinsælasta fótboltatölvuleiks heims, eru núverandi Íslandsmeistarar kvenna, Blikakonur. Íslenski boltinn 20. september 2026 09:00
„Skorti yfirvegun og gæði á hólminum“ Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, sagði sitt lið hafa skort yfirvegun og gæði þegar binda átti endahnút á sóknir liðsins þegar liðið laut í lægra haldi gegn Þór/KA í dag. Fótbolti 19. september 2026 19:12
„Vinnusemi og liðsheild skilaði þessum sigri“ Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, var kampakátur með vinnuframlag síns liðs og liðsheildina þegar liðið vann Val í Bestu-deild kvenna í fótbolta í dag. Það skóp sigurinn að hans mati. Fótbolti 19. september 2026 19:08
Uppgjörið: Valur - Þór/KA 0-1 | Margrét tryggði Þór/KA dýrmæt stig á Hlíðarenda Þór/KA lagði Val að velli með einu marki gegn engu þegar liðin áttust við í fallbaráttuslag í 19. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á N1-vellinum á Hlíðarenda í dag. Íslenski boltinn 19. september 2026 17:54
Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli Fram fékk Víking R. í heimsókn á Lambhagavöllinn í fyrstu umferð úrslitakeppni neðri hluta Bestu deild kvenna í kvöld. Víkingar fara sennilega svekktari heim í kvöld með stigið en liðin skildu jöfn 2-2. Íslenski boltinn 18. september 2026 20:50
„Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Víkingur heimsótti Fram á Lambhagavöllinn í kvöld þegar fyrsta umferð úrslitakeppni Bestu deild kvenna hélt áfram göngu sinni. Það er þéttur pakki í neðri hlutanum og var Einar Guðnason þjálfari Víkinga ósáttur með að fara ekki með meira en stig heim. Sport 18. september 2026 20:39
„Töpuðum á réttan hátt” Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var sár eftir 1-0 tap liðsins gegn FH í Kaplakrika en mjög ánægður með frammistöðu sinna leikmanna. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir skoraði eina mark leiksins á 90. mínútu. Íslenski boltinn 18. september 2026 19:46
„Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” Guðni Eiríksson þjálfari FH var fyrst og fremst feginn eftir dramatískan 1-0 sigur liðsins á Stjörnunni í Kaplakrika. FH skapaði sér nóg af færum en þurfti að bíða fram á 90. mínútu eftir sigurmarki Andreu Ránar Snæfeld Hauksdóttur. Íslenski boltinn 18. september 2026 19:42
Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Þróttur varð á dögunum bikarmeistari og um er að ræða fyrsta titil í sögu félagsins. Það var því fyrirfram reiknað með að liðið kæmi örlítið þreytt til leiks í Eyjum í dag enda tekur á að vinna titla. Það var raunin í dag þar sem ÍBV vann 4-3 sigur þrátt fyrir að lenda undir. Íslenski boltinn 18. september 2026 16:32
Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri FH vann dramatískan 1-0 sigur á Stjörnunni á Kaplakrikavelli í Bestu deild kvenna í kvöld. Lengst af leit út fyrir að FH þyrfti að sætta sig við markalaust jafntefli en Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir tryggði heimakonum öll þrjú stigin með sigurmarki á 90. mínútu. FH er því komið með 40 stig, jafnt Breiðabliki á toppi deildarinnar, en Blikar eru efstir á betri markatölu. Stjarnan er áfram í fjórða sæti með 26 stig. Íslenski boltinn 18. september 2026 15:47
Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik Breiðablik tók á móti Grindavík/Njarðvík í kvöld þegar fyrsta umferð í úrslitakeppni efri hluta Bestu deild kvenna hóf göngu sína. Breiðablik gerði út um leikinn í fyrri hálfleik og fóru að lokum með öruggan 4-1 sigur af hólmi. Íslenski boltinn 17. september 2026 22:10
„Vitum hvernig fótbolta við viljum spila og hvað við stöndum fyrir“ Grindavík/Njarðvík tapaði í kvöld 4-1 gegn Breiðablik í fyrstu umferð úrslitakeppni Bestu deildarinnar í efri hluta. Gylfi Tryggvason ræddi við Vísi eftir tapið í kvöld. Fótbolti 17. september 2026 21:59
Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla „Maður hefur alveg séð það gerast áður að liðið eigi erfitt með að spila vikuna eftir bikarúrslitaleik en svo áttu Blikarnir til dæmis, karlaliðið, ekki í miklum vandræðum með það um daginn,“ segir Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík, í hádegisfréttum Bylgjunnar en liðið mætir Blikum í Bestu-deild kvenna í kvöld. Grindavík/Njarðvík tapaði fyrir Þrótti í bikarúrslitum laugardaginn síðasta. Íslenski boltinn 17. september 2026 15:00
Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, segir það ekki til marks um minni metnað í fótbolta kvenna hér á landi að liðið hafi neyðst til að skipta markverði inná sem útileikmanni í Evrópuleik í sumar. Um einstakt tilvik hafi verið að ræða. Íslenski boltinn 15. september 2026 15:02
„Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Dagný Brynjarsdóttir segir sorglegt að sjá Ísland dragast aftur úr öðrum þjóðum þegar kemur að umgjörð í fótbolta kvenna. Hún vill gefa til baka til íslenska boltans, eftir langan og farsælan feril sem atvinnumaður og landsliðskona, en heldur öllu opnu varðandi framhald sitt sem leikmaður. Íslenski boltinn 15. september 2026 08:02
Valshjartað slær enn hjá hetju KR Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir var hetja KR í dag þegar að liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili með 1-0 sigri gegn Keflavík. Valgerður, sem skoraði eina mark leiksins, er Valsari í grunninn en segir KR-hjartað sterkara. Íslenski boltinn 12. september 2026 16:44
KR upp í Bestu deildina KR tryggði sér í dag sæti í Bestu deild kvenna með 1-0 sigri gegn Keflavík í lokaumferð Lengjudeildarinnar. Íslenski boltinn 12. september 2026 15:55
Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Norska knattspyrnufélagið Molde hefur nú tryggt sér tvær af efnilegustu knattspyrnukonum landsins. Hin 17 ára Fanney Lísa Jóhannesdóttir kemur til félagsins frá Stjörnunni og hin 18 ára Sóley Edda Ingadóttir frá Val. Fótbolti 10. september 2026 17:00