Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Þingmenn takast á um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið á aukaþingfundi í dag. Fylgjast má með fundinum í beinni á Vísi. Innlent 28.5.2026 13:30
Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur samkomulag náðst um að þingheimur greiði síðar í dag atkvæði um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB. Málið er nú til umræðu á aukaþingfundi. Innlent 28.5.2026 12:02
Mikil sorg á Alþingi Þrösturinn sem legið hefur á eggjum í Alþingisgarðinum er horfinn úr hreiðrinu ásamt eggjunum fjórum. Þingkona segir málið hryggja sig meira en eðlilegt sé, svartur köttur sem heldur til í garðinum liggi undir grun. Lífið 28.5.2026 11:52
Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Forsvarsmenn félagsins VÁ! – félags um um vernd fjarðar mættu í dag á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Tilefnið er frumvarp til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga. Fulltrúar VÁ! bentu á að um 70 prósent af núverandi sjókvíaeldi er ólögmætt vegna þess að starfsemi þess gengur í berhögg við núgildandi lög um vitamál. Innlent 26. maí 2026 14:36
Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Forseti Alþingis segir sátt virðast um það meðal þingflokksformanna að ljúka umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB á morgun. Útlit er því fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram þann 29. ágúst. Innlent 26. maí 2026 12:01
„Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist taka umfjöllun um dýrt og fágað úr sem hún á létt. Sjálf fylgist hún ekki með fréttum af þessu tagi og veltir því upp hvort Davíð Oddsson hafi ekki átt álíka fínt armbandsúr á sinni embættistíð án þess að því hefði verið slegið upp í Morgunblaðinu. Lífið 24. maí 2026 14:02
„Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Ný skýrsla um eignarhald íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja sýnir aðeins „toppinn á ísjakanum“ að sögn þingmanns Samfylkingarinnar, sem hyggst fara fram á ítarlegri upplýsingar. Tuttugu stærstu sjávarútvegsfélög landsins eiga samtals um 400 milljarða í öðrum félögum en í skýrsluna vantar eignir upp á milljarða þar sem notast var við rúma túlkun á því sem telst tengdir aðilar. Innlent 23. maí 2026 14:08
Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Tuttugu stærstu fiskiútgerðir Íslands eiga yfir 400 milljarða króna í öðrum félögum, aðallega í öðrum útgerðum en einnig í íslenskum og erlendum fyrirtækjum sem ekki tengjast sjávarútvegi. Viðskipti innlent 23. maí 2026 10:38
Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Allsherjar- og menntamálanefnd mun að öllum líkindum afgreiða frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð í næstu viku. Til stóð að afgreiða frumvarpið á yfirstandandi þingi, fyrir mars, og að úrræðið yrði opnað í júní á þessu ári. Það stenst ekki en enn er tími til að ná málinu í gegn. Innlent 22. maí 2026 14:02
Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, vill að þjóðin fái að vita fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið hvaða samningsmarkmið Ísland ætli að leggja upp með í loftslags-, orku- og flugmálum. Hún segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugsamgöngum til og frá Íslandi og spurði ráðherra hver kostnaðurinn yrði ef Ísland næði ekki markmiðum um allt að 55 prósenta samdrátt í losun. Innlent 22. maí 2026 12:42
Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Töluverður munur er á þeim fjölda úr hverjum grunnskóla sem útskrifast úr framhaldsskóla. Það sýnir ný skýrsla mennta- og barnamálaráðherra. Í skýrslunni kemur fram að flestir útskrifaðir framhaldsskólanemendur skólaárið 2023-2024 komu úr stórum safnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 22. maí 2026 06:33
Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Fyrrverandi forseti Alþingis segir það hálfsúrrealískt að sjá málverk af sjálfri sér afhjúpað á þinginu níu árum eftir að hún gegndi embætti. Verkið kostaði tæpar tvær milljónir og vitnar í heimsfrægan listamann. Innlent 21. maí 2026 19:30
Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. Lífið 21. maí 2026 07:02
„Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Sjálfstæðismenn mættu í vígahug í fyrirspurnartíma eftir hlé sem gert var á þingstörfum meðan sveitarstjórnarkosningarnar fóru fram, fullir sjálfstrausts eftir kosningaúrslitin. Þeir vildu þjarma að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og spurðu hana út í efnahagsstjórnina. Kristrún varðist fimlega. Innlent 20. maí 2026 17:01
Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Utanríkisráðuneytið telur að áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið myndu kosta tæpa 1,9 milljarða króna og taka um tvö ár. Verði viðræðurnar samþykktar í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu myndu eiginlegar viðræður hefjast fyrir lok árs. Innlent 19. maí 2026 18:34
Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Getur gervigreindin rætt frumvörp, tekið mál til skoðunar, tekið afstöðu og greitt atkvæði eftir því hvernig alþingiskosningar fóru? Skoðun 19. maí 2026 15:31
Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur boðað til opins fundar í dag til að fjalla um stöðu samgangna til Vestmannaeyja og nauðsyn ferjuáætlunar. Eyjólfur Árnason innviðaráðherra verður gestur fundarins, sem hefst klukkan 15. Innlent 18. maí 2026 14:31
Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Utanríkismálanefnd Alþingis afgreiddi þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðilda að Evrópusambandinu úr nefnd í morgun. Orðalagi spurningarinnar hefur verið breytt og svarmöguleikar verða einfaldlega já og nei. Minnihluti nefndarinnar bókaði mótmæli. Innlent 18. maí 2026 11:15
Arndís Anna til Bifrastar Háskólinn á Bifröst hefur ráðið Arndísi Önnu K. Gunnarsdóttur, fyrrverandi alþingismann, til starfa sem lektor við lagadeild háskólans. Innlent 15. maí 2026 10:33
Þingmaður á verðlaunapalli með skólastrákum: „Auðvitað er þetta fyndið“ Þingmaður Samfylkingarinnar gerði sér lítið fyrir og hljóp fyrstur í mark í karlaflokki í 3,5 kílómetra hlaupi í Neshlaupinu í gær. Hann rataði þannig á verðlaunapall, en með honum þar stóðu tveir ungir piltar, annar tæplega tíu ára og hinn þriggja. Ekki er þó allt sem sýnist, að sögn þingmannsins. Lífið 10. maí 2026 19:47
Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Hildur Sverrisdóttir, sem á sæti í forsætisnefnd, vill ekkert tjá sig um bréf sem Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi sendi þingheimi öllum. Bréfið er kyrfilega merkt trúnaðarmál en þjóð veit þá þrír vita. Innlent 7. maí 2026 14:26
Tapaði ellefu milljónum David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans. Lífið 7. maí 2026 07:00
Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi telur forsætisnefnd hafa brotið á sér í meðferð nefndarinnar á meintu einelti hans í garð starfsfólks Ríkisendurskoðunar. Í bréfi til þingmanna segir hann stöðuna á milli sín og nefndarinnar fordæmalausa og segist ætla að leita réttar síns. Innlent 6. maí 2026 22:30
Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Allsherjar- og menntamálanefnd hyggst leggja fram breytingartillögu á frumvarpi dómsmálaráðherra sem felst í því að óleyfilegt verði að vista börn á fyrirhugaðri brottfararstöð. Nefndarmaður segir tillöguna hafa komið frá ráðuneytinu. Innlent 6. maí 2026 21:08