klæddust bláu og minntust Patreks Freys
Nemendur við Borgarholtsskóla klæddust bláu í dag og minntust skólafélaga síns Patreks Freys Sveinssonar, sem lést í bílslysi á Miklubraut í síðustu viku, aðeins sautján ára gamall. Í hádeginu fóru nemendur út á bílastæði skólans og mynduðu Pé fyrir Patrek auk þess sem bláar vöfflur voru bakaðar.