Samkeppniseftirlitið sektar Samskip
Samkeppniseftirlitið hefur sektað Samskip um 4,2 milljarða króna vegna ólöglegs samráðs við Eimskip. Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að brotin séu alvarleg og að Samskip hafi við rannsókn málsins veitt ranga, villandi og ófullnægjandi upplýsingar.