Heilsugengið - Læknirinn læknaði veikt nýra sitt með því að fasta
Læknirinn Hallgrímur Þ. Magnússon segir okkur hvað hann gerir þegar hann verður veikur og segir hann okkur frá einni reynslusögu þar sem hann fór í góða föstu sem læknaði hann á magnaðan hátt. Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona segir okkur frá því hvernig hún losaði sig við lyf og lagaði húðvandamál með réttu mataræði. Ritsjórinn Björk Eiðsdóttir fær ráðleggingar hjá Þorbjörgu vegna mikils vinnuálags og svefnvandamála sem því fylgja. Og Solla Eiríks býr svo til dásamleg spínatbuff sem snilld er að frysta og eiga fyrir vikuna með æðislegri hvítlaukssósu og einnig býr hún til súper gott og fljótlegt morgunbúst fyrir Björku, en það er fljótlegt hollustustart fyrir vinnudaginn.
 
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    