Hvað er um að vera á sportstöðvunum í kvöld?

Fjórða umferðin í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu hefst í kvöld. Þar ber hæst baráttan í D-riðlinum þar sem að spænska meistaraliðið Real Madrid tekur á móti Borussia Dortmund, sem eru Þýskalandsmeistarar. Og örlög Englandsmeistaraliðs Manchester City gætu ráðist þar sem liðið tekur á móti Ajax frá Hollandi. Athygli er vakin á því að leikir kvöldsins hefjast klukkutíma síðar en áður og upphitun fyrir leiki kvöldsins hefst kl. 19.00.

865
01:09

Vinsælt í flokknum Fótbolti