Ísland í dag - Heldur niðri einkennum Parkinsons meðal annars með styrktaræfingum.

Dagskrárgerðarmaðurinn vinsæli á Bylgjunni, Kristófer Helgason greindist með Parkinsons veikina fyrir tveimur árum. En hann hefur fundið ýmsar leiðir til að halda niðri einkennum veikinnar. Ásamt lyfjum hefur Kristófer meðal annars notað hreyfingu sína sem þjálfari í gríðarlega vinsælum ketilbjöllu námskeiðum í World Class til þess að slá á einkennin og einnig passar hann upp á hollt mataræði og heldur streitu í lágmarki. Hann segist finna mikinn mun á líðan sinni í hvert sinn sem hann hreyfir sig og tekur á því í styrktaræfingum. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og ræddi við Kristófer og einnig fyrrverandi samstarfskonu hans í Reykjavík síðdegis þáttunum á Bylgjunni Þórdísi Valsdóttur sem nú er aðstoðarkona dómsmálaráðherra. En Þórdís er dugleg að mæta í ketilbjöllu tímana hjá Kristófer.

499
11:47

Vinsælt í flokknum Ísland í dag