Mörg félög selji áfengi án leyfis
Forseti ÍSÍ segir ótækt að íþróttafélögin selji áfengi á íþróttaviðburðum án þess að hafa til þess leyfi. Innan við helmingur félaga á höfuðborgarsvæðinu má selja áfengi þó fleiri geri það og ekkert þeirra er með útiveitingaleyfi. Heilbrigðisráðherra segir að skýra þurfi reglur.