Icelandair kaupir Play Europe
Icelandair hefur gengið frá kaupum á 49 prósenta hlut í Fly Play Europe Holdco fyrir rúmar 83 milljónir króna. Félagið á dótturfélag á Möltu með maltneskt flugrekstrarleyfi. Icelandair segir leyfið auka sveigjanleika, skapa hagræðingartækifæri hér á landi og opna ný viðskiptatækifæri í Evrópu. Samkomulagið gerir Icelandair einnig kleift að auka hlut sinn síðar. Kaupin eru þó háð samkomulagi við maltnesk flugmálayfirvöld og eiga að hafa óveruleg áhrif á afkomu Icelandair á þessu ári.