Fyrstur forseta til að fara til Norður Kóreu

Donald Trump varð í dag fyrsti forsetinn í sögu Bandaríkjanna til að stíga fæti yfir landamærin til Norður Kóreu. Trump fundaði með Kim Jong Un leiðtoga Norður Kóreu og sammæltust leiðtogarnir um að hittast aftur til að semja um kjarnorkuafvopnun. Kim sagði gjörning Bandaríkjaforseta sýna fram á vilja til að snúa baki við fortíðinni og opna á framtíðina.

399
02:06

Vinsælt í flokknum Fréttir