Fargufur uppfylli ekki kröfur um hreinlætisaðstöðu
Skortur er á því að almenn hreinlætisaðstaða sé við sumar fargufur og enginn sem sótt hefur um leyfi fyrir fargufu hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands hefur uppfyllt slíka kröfu. Framkvæmdastjórinn hefur áhyggjur af mögulegri smithættu í gufunum.