Íslendingar þurfi ekki að óttast
Sérfræðingur í Evrópurétti og einn höfunda álitsgerðar telur Íslendinga ekki þurfa að óttast að Evrópusambandið taki yfir vatns- eða orkuauðlindir landsins. Sama gildi um lagningu sæstrengs til Íslands. Ný auglýsing þar sem raunveruleg hætta er sögð á því að íslenska orka myndi streyma úr landi hefur vakið athygli.