Uppsagnir sagðar fordæmalausar
Áttatíu og sex starfsmönnum Reykjavíkurborgar var sagt upp störfum í dag í hópuppsögn sem nær til velferðar-, skóla- og frístundasviða. Formaður Sameykis segir um að ræða fólk í framlínustörfum og gagnrýnir uppsagnarferlið harðlega.