Stóra stærðfræðikeppnin hafin í grunnskólum landsins Stóra stærðfræðikeppnin 3. nóvember 2026 13:15 Næstu fimm vikur keppast nemendur um að leysa stærðfræðiverkefni, safna verðlaunum og sigra keppnina. Íslenska námsgagnafyrirtækið Evolytes stendur að keppninni í samstarfi við Andvara farsældarhraðal. Rúmlega 12.000 nemendur í um 130 grunnskólum víðs vegar um landið taka þátt í Stóru stærðfræðikeppninni sem hófst í gær. Næstu fimm vikur keppast nemendur um að leysa stærðfræðiverkefni, safna verðlaunum og sigra keppnina. Markmið keppninnar er bæði kveikja áhuga nemenda og byggja sterkan grunn í á stærðfræði. „
Stóra stærðfræðikeppnin gengur út á það að búa til spennu fyrir því að læra stærðfræði,“ segir Íris hjá íslenska námsgagnafyrirtækinu Evolytes, sem stendur að keppninni í samstarfi við Andvara farsældarhraðal. Frá vinstri: Guðbjörg Aðalsteinsdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur og kennari, Adrien Eiríkur Skúlason, fjármálastjóri, Íris E. Gísladóttir, stofnandi, Sigurður Gunnar Magnússon, leikjasérfræðingur, og Mathieu Grettir Skúlason, stofnandi og framkvæmdastjóri. „Við viljum sýna hvað það getur verið gaman að æfa stærðfræði þegar við leggjumst öll á eitt. Þegar börn finna fyrir framförum, keppast um að reikna og upplifa sig fær getum við styrkt jákvætt viðhorf þeirra til stærðfræði og bætt námsárangur þeirra.“ „Með keppninni vonumst við til að kveikja áhuga og sjálfstraust nemenda um allt land og veita kennurum námskerfi sem léttir þeim störfin og hjálpar þeim að mæta hverju barni þar sem það stendur.“ Litlir skólar eiga jafna möguleika Keppnin stendur til 4. desember og fer fram í ævintýraheimi Evolytes. Þar leysa börnin stærðfræðiverkefni til að komast áfram, uppgötva nýja staði og safna svokölluðum Evolýtum. Verkefnin aðlagast getu hvers barns svo allir geti æft sig á sínum forsendum. „Þegar börn finna fyrir framförum, keppast um að reikna og upplifa sig fær getum við styrkt jákvætt viðhorf þeirra til stærðfræði og bætt námsárangur þeirra.“ Skólarnir keppa um hæsta meðalfjölda svaraðra stærðfræðispurninga á nemanda. Stærð skólans ræður því ekki úrslitum og litlir skólar eiga jafna möguleika á sigri og fjölmennari skólar. Samhliða keppninni vinna allir þátttakendur að sameiginlegu markmiði. Þegar heildarfjöldi svara nær ákveðnum áföngum opnast ný verðlaun og viðbætur í leiknum sem allir njóta. „Þannig myndast spenna í skólunum,“ segir Íris. „Krakkarnir um allt land eru að safna verðlaunum inni í Evolytes námsleiknum og vinna saman þvert yfir landið.“ Sigurskólinn fær einnig vegleg verðlaun og þar er hugsað til bæði nemenda og kennara. Krakkarnir í Kársnesskóla fylgjast spennt með. „Síðast fór skólinn sem vann í bíó með krakkana og kennararnir fóru í spa með búbblum. Okkur fannst mikilvægt að kennarar uppskæru líka.“ Stefna á yfir tvær milljónir réttra svara Stóra stærðfræðikeppnin fer nú fram í annað sinn. Í fyrra svöruðu þátttakendur yfir 1,7 milljónum stærðfræðispurninga og nú vonast aðstandendur til að komast enn lengra. „Við erum spennt að ná yfir tveggja milljóna markið í réttum svörum,“ segir Íris. Keppnin er hluti af Þjóðarverkefni í stærðfræði sem hófst skólaárið 2025–2026. Almenningur getur fylgst með framvindunni á vef Evolytes. Þar sýnir lifandi teljari heildarfjölda svara og einnig má sjá stöðu skólanna. Þegar skóladagurinn hefst og börnin setjast við stærðfræðina tekur talan að hækka. Keppnin er hluti af Þjóðarverkefni í stærðfræði sem hófst skólaárið 2025–2026. Með stuðningi Andvara farsældarhraðals bauðst öllum grunnskólum landsins gjaldfrjáls aðgangur að námsefninu fyrir tvo árganga ásamt nemendum í sérkennslu. Nær allir grunnskólar nýttu sér aðganginn fyrsta árið og nemendur svöruðu yfir níu milljónum spurninga á skólaárinu. Grunnurinn þarf að vera til staðar Íris hefur lengi brunnið fyrir því að breyta viðhorfi barna til stærðfræði. „Markmiðið mitt í áratug hefur verið að útrýma þessari setningu: Ég er ekki stærðfræðimanneskja,“ segir hún. Hún bendir á að þegar nemendur missi af ákveðnum grunnatriðum í stærðfræðitímum geti það haft áhrif á framhaldið. Í stærðfræði byggi ný viðfangsefni gjarnan á því sem áður hefur verið lært. „Yfirleitt, þegar fólk gefst upp á stærðfræði, hefur það einhvers staðar misst úr eða ekki náð tökum á efninu. En það þarf samt að halda áfram með bekknum. Í stærðfræði verðurðu að hafa grunninn til að geta haldið áfram.“ Þarna geti einstaklingsmiðað námsefni skipt máli. Barn sem þurfi meiri æfingu fái verkefni við hæfi en annað geti haldið áfram í flóknari viðfangsefni. Markmiðið sé að fleiri upplifi árangur og öðlist sjálfstraust. „Allir geta lært stærðfræði á sínum hraða.“ Meiri yfirsýn fyrir kennara Evolytes er jafnframt verkfæri fyrir kennara sem fá upplýsingar um námsframvindu hvers nemanda. Þannig geta þeir séð hvar þörf er á frekari æfingu og brugðist við. „Við viljum gefa kennurum tól sem styður þá í að kenna og leggja inn námsefni hjá krökkunum." „Kennarinn fær upplýsingar í rauntíma um hvar allir standa. Kennararnir geta hópað saman þá sem eru í erfiðleikum með sama efnið, gripið fyrr inn í og aðlagað kennsluna miklu betur að nemendunum sem þeir eru með,“ segir Íris. Hún bendir á að mikil vinna felist í að útbúa einstaklingsmiðað námsefni og fara handvirkt yfir úrlausnir til að greina stöðu hvers barns. „Við viljum gefa kennurum tól sem styður þá í að kenna og leggja inn námsefni hjá krökkunum. Þannig hafi þeir meiri tækifæri til að grípa snemma inn í.“ Í könnun meðal íslenskra kennara á fyrsta ári Þjóðarverkefnisins töldu allir svarendur kennaraviðmótið gagnlegt og 87 prósent sögðu notkunina hafa dregið úr vinnuálagi. Íslensk hugmynd í fjórum heimsálfum Upphaf Evolytes má rekja til rannsóknarverkefnis árið 2014 þar sem sálfræði og tölvunarfræði voru sameinaðar til að auka áhuga og námsárangur nemenda í stærðfræði. Í dag er námsefnið á tólf tungumálum og hefur náð til skóla í fjórum heimsálfum. Íris segir áhuga nemenda vera lykilatriði og gagnvirknin skipti þar miklu. Börnin fái strax viðbrögð við því hvort svörin séu rétt eða röng og ævintýrið hvetji þau áfram. „Við viljum vekja áhuga þeirra svo þau fái tækifæri til þess að móta nauðsynlega grunnfærni í stærðfræði,“ segir hún. Í Stóru stærðfræðikeppninni fá þúsundir barna nú tækifæri til þess að æfa sig saman, fagna framförum og uppgötva að stærðfræði getur verið spennandi viðfangsefni.
Skóla- og menntamál Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Stóra stærðfræðikeppnin hafin í grunnskólum landsins Minna plast og meiri tenging við upprunann hjá Nándinni í Firði Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur „Hörður Grímsson er orðinn lúxusvandamál“ Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Sjá meira