Enski boltinn

Aston Villa hættir við mál­sókn gegn Carragher

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jamie Carragher baðst afsökunar á orðum sínum og nú hefur Aston Villa ákveðið að hætta við að stefna honum.
Jamie Carragher baðst afsökunar á orðum sínum og nú hefur Aston Villa ákveðið að hætta við að stefna honum. Getty/Michael Regan

Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa hefur fallið frá hótun sinni um málsókn gegn Jamie Carragher, knattspyrnusérfræðingi Sky Sports.

Á föstudag hafði Villa sagst ætla að höfða mál gegn fyrrverandi varnarmanni enska landsliðsins vegna þess sem félagið kallaði „óásættanlegar móðganir“ sem Carragher lét falla í hlaðvarpinu Stick to Football.

Fyrrverandi varnarmaður Liverpool orðaði þá Unai Emery, knattspyrnustjóra Aston Villa, við það að taka við af Michael Carrick hjá Manchester United og sagði stuðningsmönnum Aston Villa að „þegja“ þegar þeir gagnrýndu hann.

Carragher baðst afsökunar á laugardag á því að hafa notað „klaufalegt og rangt“ orðalag og sagði ummæli sín hafa verið „sögð í gríni“.

Þótt Aston Villa hafi aldrei höfðað mál gegn Carragher hefur félagið nú fallið frá hótun sinni um að gera það í kjölfar afsökunarbeiðni hans.

Emery, sem kom til Villa árið 2022, hefur gjörbreytt gengi félagsins. Spánverjinn hefur leitt félagið úr fallbaráttu yfir í að vera fastagestur í Meistaradeildinni, auk þess sem hann stýrði liðinu til sigurs í Evrópudeildinni árið 2026.

Carragher gaf hins vegar í skyn að Emery myndi vilja stýra „risafélagi“ á ný, en hann hefur áður stýrt Paris St-Germain og Arsenal.

„Það er ákveðin goggunarröð í fótbolta, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr,“ sagði Carragher meðal annars og endaði á því að segja: „Aston Villa verður aldrei Manchester United.“

Í færslu á samfélagsmiðlum á laugardag dró Carragher ummæli sín til baka.

„Ég vil biðja Aston Villa, eigendur félagsins og stuðningsmenn þess afsökunar. Orðalag mitt í þessari viku var klaufalegt og rangt,“ skrifaði Carragher.

„Ég get fullvissað stuðningsmenn Villa um að þetta var sagt í gríni, en ég skil að það hafi ekki komist þannig til skila, svo ég biðst afsökunar,“ skrifaði Carragher.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×