Enski boltinn

Piers Morgan baunar á Carragher

Valur Páll Eiríksson skrifar
Piers Morgan segir Jamie Carragher að sýna smá kjark.
Piers Morgan segir Jamie Carragher að sýna smá kjark. Samsett/Getty

Fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan skilur ekkert í því að fótboltasérfræðingurinn Jamie Carragher skuli biðjast afsökunar á ummælum sínum um Aston Villa. Félagið hótaði Carragher lögsókn vegna ummæla sem hann lét falla í vikunni.

„Aston Villa mun höfða mál gegn Jamie Carragher vegna óásættanlegra móðgana hans í garð félagsins og stuðningsmanna þess,“ sagði í tilkynningu Aston Villa og stjórnarformanns liðsins Nassef Sawiris.

Hinn 48 ára gamli Carragher hafði sagt í hlaðvarpinu Stick to Football að „Aston Villa verði aldrei Manchester United“ og gaf í skyn að Unai Emery, þjálfari Aston Villa, gæti þess í stað farið til United og tekið við af Michael Carrick.

Carragher brást svo við tíðindum af lögsókn Aston Villa í gær með því að biðjast afsökunar á ummælunum. Þau hafi verið sögð í hálfgerðu gríni en orðaval hans hafi verið óvarlegt.

Fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan greip afsökunarbeiðni Carraghers á lofti og spurði hvurn fjandann hann væri að gera. Hann sagði honum jafnframt að sýna smá kjark og standa á sínu.

„Af hverju í ósköpunum ertu að biðjast afsökunar? Sýndu smá pung,“ sagði Morgan á X.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×