Skoðun

Á­byrg sýn í mál­efnum út­lendinga

Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar

Umræðan í samfélaginu og á Alþingi um málefni útlendinga er mikilvæg og snertir öryggi samfélagsins, mannréttindi og framtíð Íslands. En það verður að ræða þessa hluti af yfirvegun, ábyrgð og virðingu og án þess að alhæfa eða setja alla útlendinga undir sama hatt.

Það er nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld hafi skýra sýn og stjórn þegar kemur að landamærum landsins. Það skiptir máli að hafa yfirsýn yfir hverjir koma til landsins og að brugðist sé við þegar lög og reglur eru brotnar. Slík stjórn snýst ekki um tortryggni í garð fólks vegna uppruna þess, heldur um að tryggja öryggi, skapa réttlæti og traust.

Við megum aldrei gleyma því að útlendingar eru ekki einn einsleitur hópur. Fólk kemur hingað til lands af ólíkum ástæðum. Margir eru að leggja sitt af mörkum til samfélagsins, sinna mikilvægum störfum og vilja skapa sér og fjölskyldum sínum betri framtíð. Við eigum að greina á milli þeirra sem eru samfélagslega ábyrgir og fylgja lögum og þeirra sem brjóta þau.

Skipulögð glæpastarfsemi er sérstakt viðfangsefni sem stjórnvöld eru að takast á við með dómsmálaráðherra fremstan í flokki. Það er verið að byggja upp öfluga löggæslu um allt land, efla alþjóðlegt samstarf og sýna markviss viðbrögð við þeim sem misnota kerfið eða ógna öryggi almennings. Ábyrg stefna felst í því að beina aðgerðum að raunverulegri hættu en ekki heilu samfélagshópunum.

Núverandi stjórnvöld eru að vinna í því að tryggja öruggt Ísland og byggja þá vinnu á mannúðlegri sýn sem sameinar ábyrgð, virðingu og traust á réttarríkinu. Það er m.a. gert með nýrri löggæsluáætlun sem dómsmálaráðherra hefur nú lagt fram, þar sem er lögð sérstök áhersla á öruggt og skilvirkt landamæraeftirlit og öflugt samstarf innanlands og milli landa.

Það skiptir nefnilega máli að við stöndum við alþjóðlegar skuldbindingar. EES-samningurinn, Schengen-samstarfið og alþjóðleg mannréttindalög leggja okkur skyldur á herðar. Við eigum að virða þær og framfylgja þeim af festu.

Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis.




Skoðun

Sjá meira


×