Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Freyja Þórisdóttir skrifar 28. október 2026 17:10 Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banka en Stefnir hf., dótturfélag bankans, fagnaði 30 ára starfsafmæli í ár. Vísir/Vilhelm Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi er í samræmi við markmið að sögn bankastjóra. Hann segir áform stjórnvalda um að hækka bankaskatt um ríflega 75 prósent þó vera skammsýna ráðstöfun og það sé nauðsynlegt að til staðar sé framtíðarsýn um starfsumhverfi fyrirtækja. Skattahækkunin muni í tilfelli Arion banka nema um 1.700 milljónum á ári.
Þetta er haft eftir bankastjóranum í Kauphallartilkynningu en þar segir einnig að miðað við áform ríkisstjórnarinnar muni hækkunin vera afturvirk og ná til yfirstandandi árs. Ekki vænleg ráðstöfun „Þetta er að okkar mati skammsýn ráðstöfun til að mæta tímabundnum aðstæðum en ef af verður þá er eðlilegt að hún falli niður eftir 1-2 ár,“ er haft eftir Benedikt Gíslasyni, bankastjóra Arion banka. Mikilvægt sé að huga að samkeppnishæfni Íslands í sambandi við skattinn sem leggst á skuldir fjármálafyrirtækja sem séu að stærstum hluta innlán viðskiptavina. „Við víkjum okkur auðvitað ekki undan því að greiða skatta til samfélagsins en fyrir eru skattar á íslensk fjármálafyrirtæki vel umfram það sem gerist í löndunum í kringum okkur auk þess sem hér eru í gildi margvíslegar séríslenskar lagakröfur sem hafa kostnað í för með sér,“ er einnig haft eftir bankastjóra í tilkynningunni. Ef aðeins sé horft til síðasta árs hafi starfsemi Arion banka, að dótturfélögum undanskildum, skilað samfélaginu um 15 milljörðum króna í skatttekjur. Þjónustutekjur lækka milli ára Þá er einnig skrifað um að afkoma bankans á þriðja ársfjórðungi sé góð og í samræmi við markmið. Arion banki skilaði hluthöfum sínum 8,7 ma.kr. á fjórðungnum, samanborið við 8,2 ma.kr. á sama ársfjórðungi síðasta árs. Hagnaður á hlut var 6,42 krónur, samanborið við 5,95 krónur fyrir ári. Hreinar þjónustutekjur bankans lækkuðu hins vegar milli ára, í lok þriðja ársfjórðungs 2026 eru þær 3,8 milljarðar króna en voru 4,0 milljarðar króna í lok þriðja ársfjórðungs 2025. „Kjarnastarfsemi okkar gengur vel og áfram er góður vöxtur í innlánum en dregið hefur úr vexti útlána sem endurspeglar viðvarandi hátt vaxtastig. Eigin- og lausafjárstaða Arion samstæðunnar er áfram góð og við erum nú sem fyrr í góðri stöðu til að styðja við viðskiptavini okkar í þeim verkefnum sem þeir takast á hendur,“ er haft eftir bankastjóra í tilkynningunni. Samstaðan mikilvæg Lán til viðskiptavina lækkuðu um 3 milljónir króna eða 0,2 prósent á fjórðungnum, en innlán frá viðskiptavinum jukust um 33 milljarða króna eða 3,3 prósent, er fram kemur í tilkynningunni. Rekstur Varðar skilaði 0,4 milljóna króna hagnaði, sem er minna en fyrir ári en þá var hagnaðurinn 0,7 milljónir króna. Samsett hlutfall var 85,7 prósent á þriðja ársfjórðungi 2026 samanborið við 88,2 prósent á sama fjórðungi í fyrra. „Sú samstaða sem náðist fyrr í þessum mánuði meðal stjórnvalda, sveitarfélaga og fjölmargra fyrirtækja í baráttunni gegn verðbólgu var mikilvæg og átti sinn þátt í að uppsagnarákvæði kjarasamninga var ekki virkjað,“ er haft eftir Benedikt. Forsendur séu nú til staðar fyrir lækkun verðbólgu og þar með lækkun stýrivaxta. „Vissulega er margt í ytra umhverfi sem við höfum ekki stjórn á en með víðtækri samstöðu höfum við gert það sem í okkar valdi stendur til að stuðla að lækkun verðbólgu,“ stendur þar ennfremur.
Arion banki Uppgjör og ársreikningar Fjármálafyrirtæki Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Lánamál Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira