Enski boltinn

„Guð­john­sen er stórt nafn í fót­boltanum“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Feðgarnir Andri Lucas og Eiður Smári. Hvur veit nema Andri eigi líka eftir að spila fyrir Chelsea.
Feðgarnir Andri Lucas og Eiður Smári. Hvur veit nema Andri eigi líka eftir að spila fyrir Chelsea. vísir/getty

Að eiga þekktan föður sem náði langt í fótbolta getur verið erfitt. Andri Lucas Guðjohnsen segir það aftur á móti ekki lengur trufla sig að vera nefndur í sömu andrá og faðir hans, Eiður Smári.

„Það er ekkert þannig lengur en var þannig fyrst þegar ég var yngri,“ segir Andri Lucas en bræður hans hafa líka þurft að sætta sig við samanburðinn við pabba.

„Guðjohnsen-nafnið er stórt á Íslandi og í Evrópu. Bara í fótbolta yfir höfuð. Ég er búinn að venjast þessu en Svenni bróðir þurfti kannski helst að glíma við þetta enda elstur og fyrsti Guðjohnsen sonurinn til að koma í fótboltaheiminn á eftir pabba. Mér finnst við strákarnir hafa gert nokkuð vel til að venjast þessu og erum að gera okkar hluti.“

Andri hefur fylgst vel með föður sínum síðustu misseri eftir að hann kom inn sem annar þjálfara KA. Sú vegferð fékk ekki farsælan endi því KA féll í lokaumferð Bestu deildarinnar.

„Við töluðum saman eftir leik. Ég nýbúinn að vinna og skora tvennu en hann var að falla með KA. Það var frekar svekkjandi. Ég veit að hann hefur mjög gaman af þessu og mér fannst hann heilt yfir gera vel með KA þann tíma sem hann var með liðinu. Hann elskar fótbolta eins og flestir í fjölskyldunni. Vonandi heldur hann þessu áfram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×