Íslenski boltinn

„Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“

Sindri Sverrisson skrifar
Markús Páll mætti glæsilegur til fara í Stúkuna um helgina áður en hann flaug svo til móts við stóra bróður sinn á Ítalíu.
Markús Páll mætti glæsilegur til fara í Stúkuna um helgina áður en hann flaug svo til móts við stóra bróður sinn á Ítalíu. Sýn Sport

Hinn tvítugi Markús Páll Ellertsson fór á kostum með liði ÍA í sumar og var valinn efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar. Hann mætti í beina útsendingu í lokaþætti Stúkunnar og greindi frá því að markmið sitt hefði verið að skora 15 mörk líkt og hann einmitt gerði.

„Auðvitað hefði ég viljað að liðið myndi enda ofar en þetta. En já, markmiðið var 15 mörk og það má því segja að ég hafi náð því,“ sagði Markús Páll sem endaði þó með ÍA í 4. sæti deildarinnar. Viðtalið við Markús má sjá hér að neðan.

Klippa: Stúkan - Markús Páll efnilegastur og náði markmiðinu

Markús er uppalinn Framari en eftir dvöl á Ítalíu sneri hann heim til Íslands og ákvað að spila með ÍA í sumar. Aðspurður hvenær hann hefði hætt að hugsa: „Ég vona að ég standi mig“ og hugsað þess í stað: „Ég er maðurinn“ svaraði hann hlæjandi:

„Eftir fyrsta leik,“ en bætti svo við:

„Eftir fyrsta leikinn á undirbúningstímabilinu hugsaði ég reyndar: „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Ég skoraði ekki og þá byrjaði smá stress. En svo þegar tímabilið byrjaði og ég skoraði tvö mörk í fyrsta leik þá sá ég að ég gæti þetta alveg.“

Ljóst er að Markús gæti vel átt eftir að feta í fótspor eldri bróður síns, Mikaels Egils, sem spilar í ítölsku A-deildinni og með íslenska A-landsliðinu. Hann flaug einmitt strax um helgina í frí til bróður síns og ætlar svo að slaka á í golfi en hvert stefnir svo sá efnilegasti í Bestu deildinni?

Vel tekið og kynntist glæstri sögu ÍA

„Auðvitað stefni ég bara lengra og hærra. Ég veit ekki hvað er að gerast núna, vil ekki vita það, og það er svolítið undir umboðsmanninum komið að sjá hvað er best fyrir mig. Fyrir þetta tímabil tók ég ákvörðun um að koma upp á Skaga og ég sé að það var rétt hugmynd.“

Fótboltinn er hvergi eins samofinn sögu bæjar eins og á Akranesi og Markús varð vel var við áhuga fólks og glæsta sögu ÍA:

„Ég spilaði vel þannig að það voru bara allir að koma upp að mér og segja að ég stæði mig vel og svona,“ sagði Markús léttur.

„Áður en ég fór upp á Skaga vissi ég þannig séð ekkert um sögu Skagans en maður lærir hana þegar maður fer þangað og fattar hversu mikið vald er þarna,“ bætti hann við en viðtalið má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

„Hún gæti orðið okkar lang­besti leik­maður“

„Hún verður ein af skærustu stjörnum okkar [Íslendinga],“ segir Guðni Eiríksson, þjálfari FH, um Ídu Marín Hermannsdóttur, besta leikmann Bestu deildarinnar á nýafstöðnu tímabili.

„Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“

„Þetta er búið að vera langt tímabil og mikið af „upp og niður“-augnablikum. Bæði erfiðir tímar og frábærar stundir saman,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson um nýafstaðið tímabil með Víkingi. Hann varð aftur Íslandsmeistari með liðinu og var svo kosinn besti leikmaður ársins af leikmönnum Bestu deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×