Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Lovísa Arnardóttir skrifar 27. október 2026 07:21 Frumvarp um skattlagningu tæknirisa er ekki á þingmálaskrá fjármálaráðuneytisins. Samsett Guðmundur Halldór Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála Sýnar, gagnrýnir í aðsendri grein á Vísi að enn hafi engar aðgerðir verið kynntar um skattlagningu alþjóðlegra tæknifyrirtækja. Hann segir fjölmiðlafyrirtæki verða að geta treyst boðuðum aðgerðum og kallar eftir því að brugðist sé við. Málið er ekki á þingmálaskrá stjórnvalda.
Hann bendir á í grein sinni að nær ár sé liðið frá því að stjórnvöld kynntu aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla í desember í fyrra. Þar hafi staða íslenskra fjölmiðla verið dregin skýrt fram og að þeir eigi undir högg að sækja. „Íslenskir fjölmiðlar eiga undir högg að sækja. Fyrir vikið á íslenskt samfélag undir högg að sækja,“ kom fram í áætluninni. Guðmundur Halldór segist sammála þessu. „Sterkir og sjálfstæðir fréttamiðlar skipta samfélagið máli. Þeir veita stjórnvöldum og atvinnulífi aðhald og stuðla að upplýstri samfélagsumræðu,“ segir hann og að einn mikilvægasti liðurinn til að tryggja sterka fjölmiðla sé skattlagning alþjóðlegra tæknifyrirtækja. Hann segist hafa óskað eftir upplýsingum frá ráðuneytinu um stöðu verkefnisins og að svarið hafi verið á þá leið að ekki hafi farið fram heildstæð greining á skattlagningarleiðum. Hvorki liggi fyrir mat á mögulegum tekjum ríkissjóðs né tillögur um ráðstöfun þeirra. Þá hafi ráðuneytið jafnframt upplýst um að frumvarp um slíka skattlagningu sé ekki á þingmálaskrá og ekki sé unnt að segja hvort eða hvenær það verði lagt fram. Ekkert liggi því fyrir um framlagningu málsins á þessu ári eða á vorþingi 2027. „Stjórnvöld lögðu ríka áherslu á að styrkja íslenska fjölmiðla. Að enn liggi hvorki fyrir greiningar né tillögur í þeim efnum samræmist engan veginn því sem boðað var. Hvað skýrir þessa töf á einum mikilvægasta lið aðgerðaáætlunarinnar þegar önnur ríki hafa þegar byrjað að skattleggja tæknirisana og það fyrir mörgum árum?“ spyr Guðmundur. Aðgerðir kynntar erlendis Hann bendir í grein sinni á að slík skattlagning hafi víða verið kynnt. Í Austurríki hafi frá ársbyrjun 2020 verið lagður fimm prósenta skattur á tilteknar stafrænar auglýsingatekjur stórra alþjóðlegra fyrirtækja sem tengjast notendum í landinu. Frakkland leggi þriggja prósenta skatt á tiltekna stafræna þjónustu og Bretland tveggja prósenta skatt á tilteknar tekjur samfélagsmiðla, leitarvéla og netmarkaðstorga. Þá bendir hann einnig á að samkvæmt Hagstofu Íslands runnu tæpir 15 milljarðar króna til erlendra miðla vegna auglýsingakaupa árið 2024, eða 51 prósent alls auglýsingafjár. Guðmundur segir að stærðargráðan gefi tilefni til að leggja áherslu á að hefja slíka skattlagningu. „Það er ljóst að erlendir tæknirisar á borð við Meta og Alphabet taka til sín stóran hluta íslensks auglýsingafjár án þess að standa undir íslenskri fréttamennsku, dagskrárgerð og menningarumfjöllun með sama hætti og innlendir fjölmiðlar,“ segir hann og að þó svo að það sé eðlilegt að stjórnvöld gefi sér tíma verði fjölmiðlafyrirtækin að geta treyst því að boðuðum aðgerðum sé fylgt eftir. Vísir er í eigu Sýnar.
Fjölmiðlar Samfélagsmiðlar Sýn Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Sjá meira