Innlent

Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabba­meins­gaur“ hafa

Samúel Karl Ólason skrifar
Guðmundur Felix Grétarsson.
Guðmundur Felix Grétarsson. Vísir/Arnar

Handleggirnir sem Guðmundur Felix Grétarsson fékk ágrædda árið 2021 eru farnir að hafna honum. Hann segir það líklega vegna krabbameinsmeðferðar sem hann er í eftir að hafa greinst með krabbamein í nefi í sumar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í myndbandi sem Guðmundur Felix birti í gærkvöldi, þar sem hann sagði frá jákvæðum vendingum varðandi krabbameinið.

Í myndbandinu segir Guðmundur Felix, sem gekkst undir skurðaðgerð eftir að hann greindist með krabbamein í nefi. Þá var meinið fjarlægt og stóð til að hann færi í geislameðferð. Það var fyrir tveimur vikum en henni var frestað þegar læknar fundu eitthvað sem talið var að gæti verið nýtt mein.

Svo reyndist ekki. Guðmundur Felix sagði í myndbandinu í gær að geislameðferðin væri byrjuð. Hann væri að ljúka þessum kafla.

Þá sagði hann frá því að fyrir tveimur vikum hefði einnig komið í ljós að upp væri komið nýtt vandamál með handleggi hans, sem talið er að gæti verið vegna krabbameinsferðarinnar sem hann hefur verið í að undanförnu.

Guðmundur Felix sagði að það sem hefði verið mjög áhugavert við málið væri að sýni hefðu verið tekin af útbrotum á handleggjum hans. Þau hefðu sýnt fram á að það væri ekki svo að líkami hans væri að hafna handleggjunum, eins og síðast, heldur væru handleggirnir að hafna honum.

„Það getur víst gerst af því að gjafamergurinn sem er í handleggjunum framleiðir eigin hvítu blóðfrumur. Handleggirnir eru bara búnir að fá nóg. Til fjandans með þetta. Ég ætla ekki að hanga lengur með þessum krabbameinsgaur.“

Að öðru leyti sagðist hann hafa það gott og sagði frá því að í gær hefði hann verið edrú í nítján ár.


Tengdar fréttir

Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið

Guðmundur Felix Grétarsson birti fyrstu myndina af sér eftir að hann gekkst undir skurðaðgerð í Frakklandi. Hann greindist nýverið með krabbamein í nefi.

Guðmundur Felix kominn með krabbamein

Guðmundur Felix Grétarsson hefur greinst með krabbamein í nefi og þarf að láta fjarlægja það. Hann fékk fregnirnar í fyrradag og hafði búið sig undir það versta. Guðmundur segist hafa séð það svartara og ætla að berjast við þetta eins og annað. 

Guðmundur Felix léttur í lauginni

Guðmundur Felix Grétarsson deildi í gærkvöldi myndbandi af sér í sundlaug þar sem hann sést hreyfa annan handlegginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×