Lífið

Um­deildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Alex Cooper er orðin móðir.
Alex Cooper er orðin móðir. John Nacion/Variety via Getty Images

Hlaðvarpsstjarnan Alex Cooper, sem stýrir hinu gríðarlega vinsæla hlaðvarpi Call Her Daddy, er orðin móðir í fyrsta sinn. Cooper, sem er gjarnan kölluð daddy eða pabbi af aðdáendum sínum, deildi tímamótunum á samfélagsmiðlum í dag.

Alex Cooper er gift Matt Kaplan og voru þau bæði að verða foreldrar í fyrsta sinn en þau reka saman fjölmiðilinn Unwell. Hlaðvarp Cooper hefur ratað á vinsældarlista um allan heim undanfarin ár þar sem hún ræðir við ýmsar stjörnur um daginn og veginn.

Cooper hefur verið umdeild og gagnrýnd á sínum ferli, meðal annars fyrir það að forðast alfarið gagnrýnar spurningar og gera viðmælendum sínum hátt undir höfði. Þá hefur samfélagsmiðlastjarnan Alix Earle sömuleiðis rætt opinberlega um einelti og niðurlægingu sem hún varð fyrir af hálfu Cooper þegar Earle vann með henni um stund. 

Tímaritin Bloomberg og Vanity Fair fjölluðu líka um stóran hóp starfsmanna Unwell sem kom nafnlaust fram í viðtölum og ásakaði hjónin um eitrað vinnuumhverfi og mjög óviðeigandi samskiptamáta. Cooper vísaði ásökununum alfarið á bug og sagði þær tilraun til að eyðileggja ímynd fyrirtækisins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.